Fréttablaðið - 06.06.2009, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 6. júní 2009 3
Nesstofa opnar á nýjan leik
laugardaginn 6. júní klukkan 13.
Nesstofa er eitt af elstu húsum
landsins, byggð á árunum 1761–
1767 sem embættisbústaður land-
læknis. Er húsið hluti af húsasafni
Þjóðminjasafns Íslands en í umsjá
Lækningaminjasafns Íslands.
Í sumar gefst gestum kostur á að
kynnast byggingarsögu Nesstofu og
fræðast um þær viðamiklu viðgerðir
sem fóru fram í tveimur áföngum
á vegum Þjóðminjasafns og húsa-
friðunarnefndar undir stjórn Þor-
steins Gunnarssonar arkitekts. Þá
hefur verið gefinn út ítarlegur leið-
sögubæklingur um húsið, en hann
má meðal annars nálgast á heima-
síðu Lækningaminjasafnsins, www.
laekningaminjasafn.is
Í Nesstofu verður einnig sýn-
ing um söfnun lækningaminja,
starfsemi Lækningaminjasafns
og framtíðaráform. Einnig verð-
ur kynning á fyrirhugðu húsnæði
Lækningaminjasafnsins í Nesi
sem Seltjarnarnesbær er að láta
reisa eftir verðlaunateikningu
Yrki arkitekta. Safnbygging-
in mun einnig mynda glæsilega
umgjörð um menningarviðburði á
Seltjarnarnesi sem og þjóna þeim
fjölmörgu útivistarunnendum
sem daglega eiga leið um svæð-
ið. Þar er meðal annars gert ráð
fyrir kaffihúsi, safnbúð og góðri
aðstöðu til funda- og ráðstefnu-
halda.
Nesstofa verður opin alla daga í
sumar á milli klukkan 13 og 17 og
er aðgangur ókeypis.
Nesstofa verður
opin í allt sumar
Saga fjarskipta og þróun tal-
stöðva í farartækjum á Íslandi í
60 ár endurspeglast í talstöðva-
safni Sigurðar Harðarsonar.
Sigurður Harðarson rafeinda-
virki hefur safnað talstöðvum í
fjörutíu ár og spanna þau rúm-
lega sextíu ára sögu fjarskipta
á Íslandi. Laugardaginn 6. júní
klukkan 14 verður opnuð sýning á
safni talstöðva Sigga Harðar, eins
og hann er ávallt kallaður, í Sam-
göngusafninu á Skógum undir
Eyjafjöllum.
Tækin skipta hundruðum,
frá fyrstu Morse-tækjum til
gemsa, og koma frá fjallamönn-
um, lögreglu, björgunarsveitum,
rútu fyrirtækjum, leigubílum,
almannavörnum og áhugamönn-
um um fjarskiptatækni.
Mörg tækjanna eru virk og
á sýningunni má heyra sam-
skipti á morsi og tali, meðal ann-
ars samskipti skipbrotsmanna á
togaranum Elliða, sem fórst 10.
febrúar 1962, og björgunarmanna
þeirra.
Siggi Harðar smíðaði fyrsta
útvarpstækið sitt þrettán ára
gamall árið 1957 og hefur síðan þá
smíðað mörg tæki og sendi stöðvar.
Hann hafði strax í upphafi mikinn
áhuga á fjarskiptatækni. Eftir að
námi lauk í rafeindavirkjun árið
1966 vann hann meira og minna
við fjarskiptabúnað ásamt við-
gerðum á útvarps- og sjónvarps-
tækjum. Á þeim tíma voru gömul
tæki aðallega geymd til að taka úr
þeim varahluti og þannig söfnuð-
ust fyrir tæki.
Þegar breytingar hafa orðið á
fjarskiptatækni hér á landi, hefur
Siggi ávallt haldið eftir eintaki
af hverri gerð sem hann hefur
komist yfir, stundum með því að
komast í geymslur þjónustufyrir-
tækja sem hafa verið að taka til.
Þessi söfnun hefur einnig spurst
út í gegnum tíðina og menn hafa
gefið gömul eintök.
Elstu tækin eru frá árinu 1945
frá því að fjarskipti voru gefin
frjáls á Íslandi eftir stríðið.
Talstöðvasafn opn-
að á Skógum í dag
Sigurður Harðarson hefur safnað tal-
stöðvum í fjörutíu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á sýningunni eru allt frá morse-tækjum
til GSM-síma.
Mikil vinna hefur verið lögð í endurbætur á Nesstofu. MYND/ÍVAR BRYNJÓLFSSON
Söguslóð verður opnuð formlega
á Suðausturlandi nú um helgina.
Hún nær frá Berufirði út á Skeið-
arársand. Dagskrá verður í Löngu-
búð á Djúpavogi í dag og Þór-
bergssetri í Suðursveit á morgun
sem fjallar um ferðir og fyrstu
búsetu manna á svæðinu. Siglt
verður út í Papey og að Papýli í
Steinadal að loknum erindum og
opnun sögusýninga. - gun
Söguslóð opnuð
SÖGUSLÓÐ NÆR FRÁ BERUFIRÐI
ÚT Á SKEIÐARÁRSAND.
Í Þórbergssetri verður menningar-
dagskrá á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GUN
Finnski kórinn Canzonetta Nova
mun flytja Petite Messe Solen-
elle eftir Rossini í Langholtskirkju
annað kvöld, 7. júní klukkan 20.
Einsöngvarar með kórnum eru
allir íslenskir, Hulda Björk Garðars-
dóttir sópran, Sesselja Kristjáns-
dóttir messósópran, Garðar Thor
Cortes tenór og Davíð Ólafsson
bassi. Hljóðfæraleikarar eru Mikko
Niemi á píanó og Bjarni Jónatans-
son á harmoníum. Stjórnandi er
Erkki Rajamäki, en þess má geta
að bæði hann og Mikko Niemi
eru kennarar við Sibeliusar-tónlist-
arakademíuna í Helsinki.
Finnskt-íslenskt
FINNSKUR KÓR Í LANGHOLTS-
KIRKJU.
Einsöngvarar og harmóníuleikari
ásamt formanni kórsins í Finnlandi.