Fréttablaðið - 06.06.2009, Page 44
6. júní 2009 LAUGARDAGUR4
„Sýningin er frábrugðin venjulegri
skólasýningu enda höfum við lagt
töluvert í umgjörðina,“ segir Sól-
veig Sveinbjörnsdóttir, kennari á
listnámsbraut Iðnskólans í Hafn-
arfirði, sem undanfarið hefur
unnið að því að setja upp vorsýn-
ingu skólans í Smáralind.
„Þetta er árlegur viðburður en
hins vegar er sýningin tvöföld í ár.
Hún var fyrst í skólanum frá 16.
til 24. maí og verður nú á göngu-
götu Smáralindar frá 4. til 14.
júní,“ upplýsir Sólveig. „Sýningin
er sett upp í byggingastillönsum
sem ná upp á aðra hæð þannig að
fólk á báðum hæðum getur skoðað
þá hluti sem eru til sýnis,“ segir
Sólveig en kennarar Iðnskólans
settu sýninguna upp með hjálp
nemenda.
Þema sýningarinnar að þessu
sinni er Ferli.
Þar gefur
að líta hluti
sem nemendur hafa
smíðað úr málmi, tré,
plasti og gleri. „Við
sýnum bæði verk eftir
nemendur
sem eru for-
námi í skól-
anum núna og
verk frá skóla-
árum fyrri nemenda
sem nú eru starfandi
hönnuðir,“ segir
Sólveig og hvet-
ur sem flesta
til að mæta og
skoða afrakstur-
inn.
solveig@frettabladid.is
Dýrmæt nemendaverk
Vorsýning Iðnskólans í Hafnarfirði stendur yfir í Smáralind til 14. júní. Þar gefur að líta verk nemenda
skólans sem eru af fjölbreyttum toga, allt frá smágerðum listmunum til uppgerðs bíls.
Sýningin er sett upp á stillönsum sem sumir hverjir ná alla leið upp á aðra hæð.
Þannig geta sem flestir á báðum hæðum Smáralindar notið sýningarinnar.
Veglegir kertastjakar úr tré og gleri.
Tréborð með hillum og fóðraður
bolli sem hefur hlotið nýtt hlutverk
sem sælgætisskál.
Sólveig Sveinbjörnsdóttir, kennari á listnámsbraut Iðnskólans í Hafnarfirði, setti upp
sýninguna með dyggri aðstoð kennara og nemenda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Epli í fallegum vasa og skrautlegir
eggjabikarar.
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
a
r
1
4
6
0
.2
4
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
www.eirberg.is • 569 3100
Stórhöfða 25
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍK
Skeifunni 3j · Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
Einkatímar og hópatímar
Sumarnámskeið ÍTR
Skráning er hafin
DREKINN
HELSA