Fréttablaðið - 06.06.2009, Page 66
38 6. júní 2009 LAUGARDAGUR
Hvernig veðrátta hentar þér best?
Bland í poka.
Ég panta mér pitsu með …
… hráskinku og klettasalati.
Hvaða kæki ertu með? Smá
störur, en þær eru mjög endur-
nærandi.
Þegar ég var lítil hélt ég lengi
að … … mér stæðu allar dyr
opnar.
Mig hefur alltaf langað í …
… finnskt sauna og útisturtu í
garðinn heima.
Hvaða frasa ofnotar þú? Uppá-
haldsfrasinn minn þessa dagana
er: „Mamma sem rokkar feitt“,
en það var lítil yndisleg bekkjar-
systir sonar míns sem sagði mér
að ef ég færi í veltibílana á vorhá-
tíðinni í Háteigsskóla þá væri ég
sko mamma sem rokkaði feitt. Ég
stóðst ekki mátið og rokkaði svo
sannarlega feitt í nokkra daga á
eftir!
Ef þú yrðir að fá þér húðflúr –
hvernig húðflúr myndirðu fá þér
og hvar myndirðu láta setja það?
Það væri kannski lítil fluga á lítt
áberandi stað.
Hvaða teiknimyndapersónu
myndirðu vilja fóstra? Ég gæti
hugsað mér eina af persónum
Miyazaki, til dæmis Chihiro. Per-
sónur hans eru flóknar og þær
vekja hjá manni alls konar spurn-
ingar og vangaveltur.
Eftirlætislykt? Blómailmur.
Hvernig hringitón ertu með í
símanum þínum? Eitthvað mjög
staðlað sem ég veit ekki hvað heit-
ir en eftir að hafa hlustað á 7. sin-
fóníu Sjostakovitsj í gær gæti ég
alveg hugsað mér brot úr henni í
símann minn.
Eftirlætisgrænmeti og hvaða
grænmeti geturðu alls ekki borð-
að? Eggaldin elska ég en sveppi í
dós þoli ég ekki.
Hvaða sjö hluti leggurðu til í
gott afmælispartí? Það er nýlega
yfirstaðin afmælishrina hjá mér
svo ég er bara alveg orðin uppi-
skroppa með ferskar hugmyndir.
En ef ég ætti að nefna eitt atriði þá
er það afmæliskaka með kertum
að sjálfsögðu.
Hverju tekurðu fyrst eftir í fari
fólks? Almennum mannasiðum.
Nefndu fjórar vefsíður sem
þú ferð gjarnan á. Amazon.com,
designboom.com, cibone.com og
honnunarmidstod.is.
Hvaða bíómynd geturðu horft á
aftur og aftur? Spirited Away eftir
Miyasaki.
Þú færð þér páfagauk. Í hvern-
ig lit, hvað nefnirðu hann og hvaða
fimm orð kennirðu honum að
segja? Ljósblár, ég myndi nefna
hann Bláskjá og forðast það að
kenna honum að tala.
Seint á kvöldin finnst mér gott
að fá mér … tesopa.
Fegurð er fólgin í … heildinni.
Að hanna vörur getur ver-
ið… flókið.
Ef ég fengi það verkefni að gera
eitthvað skemmtilegt við Hljóm-
skálagarðinn myndi ég ef til vill …
… flytja Árbæjarsafn í hann en það
væri mikilvægt að hafa safnið ekki
innan girðingar.
Mamma sem rokkar feitt
Tinna Gunnarsdóttir iðnhönnuður hefur hlotið mikið lof fyrir sköpun sína síðustu ár. Nú á fimmtudaginn var opnuð sýningin Af gróðri
jarðar í Gallery Turpentine, þar sem Tinna og eiginmaður hennar, Sigtryggur Bjarni Baldvinsson myndlistarmaður, sýna ný verk.
ÁRBÆJARSAFNIÐ NIÐUR Í BÆ Tinna Gunnarsdóttir segist myndu vilja færa Árbæjarsafnið í Hljómskálagarðinn.
FULLT NAFN: Valgerður Tinna Gunnarsdóttir
FÆÐINGARÁR: 1968
Á HUNDAVAÐI: Sjálfstætt starfandi hönnuður á Íslandi frá
árinu 1992. Kennsla, greinaskrif, sýningarstjórnun, stjórnarseta
ýmiss konar, sýningarþátttaka. Svo blandast eiginmaðurinn og
börnin þrjú inn í þetta allt saman á einn eða annan hátt. Allt
myndar þetta eina heild þar sem líf og starf rennur saman.
ÞR
IÐ
JA
G
R
Á
Ð
A
N
■ Á uppleið
Íslenskur bjór.
Orðinn svo
bragðgóður að
hann slær þeim
bestu erlendu við.
Skál fyrir íslenskri
framleiðslu!
Reiðhjól. Veðrið er orðið yndislegt
og upplagt að leggja sitt af mörkum
til vistvæns lífernis í sumar.
■ Á niðurleið
Sléttir síðir
toppar. Geo-
metrískar klipp-
ingar og sléttujárn
dóu með gamla
góða Sirkus.
„Quiz“ á Facebook. Farin að snúast
um hver þekkir Kalla á Akranesi vel
eða hvort manns innra dýr sé refur.
FÆRÐUBRJÓSTSVIÐAEÐA
SÚRT BAKFLÆÐI?...
...Nú færðu Losec Mups* án lyfseðils í næsta apóteki!
Nýtt!
annt um líf og líðan
Notkunarsvið: Losec Mups sýruþolnar töfl ur innihalda efnið omeprazol sem hemur magasýruframleiðslu. Losec Mups er notað við tilfallandi
brjóstsviða og súru bakfl æði. Ekki má nota lyfi ð ef þú ert með ofnæmi fyrir omeprazoli eða einhverju öðru innihaldsefnanna eða samhliða lyfjum sem innihalda atazanavir. Gæta
skal varúðar ef þú færð einhver af eftirtöldum einkennum: Verulegt þyngdartap, endurtekin uppköst, kyngingarerfi ðleika, blóðuppköst eða blóð í hægðum. Þá skal hafa samband
við lækni. Látið lyfjafræðing vita um önnur lyf sem eru notuð eða hafa nýlega verið notuð. Meðganga og brjóstagjöf: Losec Mups má nota á meðgöngu. Konur með barn á brjósti
eiga að leita ráða hjá lækni áður en notkun hefst. Skömmtun: Ein Losec Mups 20 mg tafl a ekki oftar en einu sinni á sólarhring. Ef einkennin hafa ekki horfi ð eftir 14 daga stöðuga
notkun skal hafa samband við lækni. Gleypa á töfl urnar heilar með ½ glasi af vökva. Hvorki má tyggja þær né mylja. Töfl urnar má leysa upp í vatni eða einhverjum súrum vökva
(t.d. ávaxtasafa) og taka þannig inn. Það skiptir ekki máli hvort Losec Mups er tekið inn með eða án matar. Algengustu aukaverkanir eru: Höfuðverkur, niðurgangur, ógleði/
uppköst, kviðverkir, hægðatregða og aukinn vindgangur. Lesið vandlega allan fylgiseðilinn sem fylgir lyfi nu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Mars 2009.
*Omeprazol
MÆLISTIKAN