Fréttablaðið - 06.06.2009, Síða 78
50 6. júní 2009 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Pæjugleraugu frá Christian Dior
fyrir kynþokkafulla ritarann sem
blundar í okkur öllum. Fást hjá Gler-
augnasmiðjunni.
Geggjað fjólublátt bikiní
í anda sjöunda áratug-
arins frá Myla. Fæst í
Systrum, Laugavegi.
Á sjöunda áratugnum varð Edie Sedgwick fræg fyrir klæðaburð sinn
sem einkenndist af svörtum sokkabuxum, leikfimisbol, síðum antík
eyrnalokkum og gömlum pelsum. Einfalt útlit sem krafðist ekki mik-
illar úthugsunar en var þrælflott á henni. Flestar viljum við einmitt
geta litið vel út án þess að klæða okkur upp í flóknar múnderingar.
Fötin eiga að klæða konuna en ekki konan fötin sagði einhver speking-
ur en mér finnst slíkt oft gleymast þegar ég sé tískuskvísur á öldur-
húsum bæjarins. Það missir einhvern veginn marks að vera í ógurlega
víðri og flippaðri flík í öllum regnbogans litum ef hún hylur algerlega
persónuleika manneskjunnar sem er einhvers staðar inni í henni, og
hver er tilgangurinn með að skarta dásamlega fögrum og viðkvæm-
um háhæluðum skóm úr fínustu skóbúðum borgarinnar til að vera
í á dansgólfi þar sem enginn sér þá og þeir eru iðulega traðkaðir í
spað? Best klæddu konur heims hafa í gegnum tíðina einmitt verið
þær konur sem hafa kunnað að klæðast flíkum sem virkilega klæða
þær og ýta undir þokka þeirra og persónuleika í stað þess að kaffæra
hann.
En svo við snúum okkur aftur að hinni fallegu en ógæfusömu Sedg-
wick þá voru einföld leikfimisföt og einfaldir kjólar oftast uppistað-
an í fataskápnum hennar. Undanfarin ár hafa leggings, ein þægileg-
asta flík sem hægt er að ganga í, tröllriðið öllu og mér sýnist ekkert
lát vera þar á. Í sumar geta leggings aftur verið uppistaðan í gard-
eróbunni og það er mesta furða að það sé ekki til American Appar-
el-búð hér í borginni til að nálgast þær allra bestu. Leggings skáka
þröngum gallabuxum í þægindum og svo er hægt að klæða sig í rokk-
aðar útgáfur eins og þær sem eru úr leðurlíki eða jafnvel háglans-
aplasti. Það eina sem er klárlega ekki mjög töff er þegar konur voru
farnar að nota leggings undir pils í stað sokkabuxna og svo jafnvel í
flatbotna sandölum við. Leggings á í raun að nota eins og buxur og
þá aðeins við stutta kjóla og síða toppa eða stuttermaboli. Háir hælar
eða stígvél eru svo ómissandi við. Um þessar mundir er líka hægt að
finna bráðsniðugar gallaleggings í verslunum eins og Zöru, Topshop
og Gyllta kettinum sem eru í raun bara þægilegri og kynþokkafyllri
útgáfa af gallabuxunum sjálfum.
Einfalt og þægilegt
Hönnuðir vestra sýndu frumlega takta þegar kom að kvenmannsyfirhöfn-
um fyrir næsta vetur. Snið voru gjarnan víð og dramatísk og litir notaðir
óspart. Það er ljóst að næsta haust gengur næstum því hvaða litasamsetn-
ing eða snið sem er, nema kannski að þröngu einföldu sniðin séu alveg
dottin út af tískukortinu. Mynstur, pelsar og pelskragar voru einnig vin-
sælir ásamt beltum í mittið og skemmtilegum smáatriðum eins og hlið-
arhnöppum og rennilásum. - amb
KÁPUR Í ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM
Flottar, hlýjar og kósí
ULL Græn stutt ullarkápa
með stórum hnöppum
hjá Yigal Azourel.
OKKUR
LANGAR Í
…
> GEIMFARAR HJÁ LOUIS VUITTON
Lúxusvörufyrirtækið Louis Vuitton hefur iðulega
notast við stjörnur í auglýsingaherferðum sínum.
Um þessar mundir eru það geimfarar sem sitja
fyrir á ljósmyndum Annie Liebovitz, þeir Buzz
Aldrin, Neil Armstrong og Jim Lovell. Sjáið
dýrðina á www.louisvuittonjourneys. com „Gladiator“-sandala fyrir
sumarið eins og Kate Moss
er í. Fást í Gallerí Evu,
Laugavegi.
DRAPPLITT
Kvenleg stutt
ullarkápa frá
Diane Von
Furstenberg.
KÖFLÓTT
Smart
rauðköfl-
ótt hneppt
kápa frá
Yigal
Azourel.MÓNÓ-
KRÓM Falleg
svört/hvít
kápa með
rennilásum
frá Matthew
Williamson.
SKEMMTILEG Lífleg stutt
kápa í svörtu og hvítu frá
Diane Von Furstenberg.
Upplifið nýjasta S
ims leikinn sem e
r mun
stærri, opnari og
fjölbreyttari en á
ður!
SENDU SM
S EST SIMS
Á NÚMERIÐ
1900
- ÞÚ GÆ
TIR UNNÐ E
INTAK!
Fullt af aukavinni
ngum: Tölvuleikir
,
DVD myndir, g
os og margt fleira
!
KOMIN
N Í
ELKO!
9. HVER VINNUR!
199 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.