Fréttablaðið - 06.06.2009, Qupperneq 94
66 6. júní 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. þvogl, 6. tímaeining, 8. skáhalli, 9.
prjónavarningur, 11. ólæti, 12. miklu,
14. strengjahljóðfæri, 16. tveir eins,
17. nagdýr, 18. for, 20. sjó, 21. gefa frá
sér reiðihljóð.
LÓÐRÉTT
1. kornstrá, 3. frá, 4. skordýr, 5. dauði,
7. yfirmannslegur, 10. atvikast, 13.
angan, 15. slagæð, 16. þvottur, 19.
tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. babl, 6. ár, 8. flá, 9. les,
11. at, 12. mikið, 14. selló, 16. tt, 17.
mús, 18. aur, 20. sæ, 21. urra.
LÓÐRÉTT: 1. hálm, 3. af, 4. blaðlús,
5. lát, 7. reistur, 10. ske, 13. ilm, 15.
ósæð, 16. tau, 19. rr.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Sóley Sigurjóns.
2 Helvítis fokking fokk.
3 Stefán Baldvin Stefánsson.
„Þegar Kaninn fór tók hann með
sér þau húsgögn sem eitthvað vit
var í og kostuðu hugsanlega ein-
hvern pening. Þegar mér buð-
ust þessi antíkhúsgögn frá Hótel
Borg á 2009-verðlaginu þá hik-
aði ég ekki eitt augnablik,“ segir
Einar Bárðarson, athafnamaður
með meiru, sem rekur Officera-
klúbbinn á gamla varnarsvæðinu
í Reykjanesbæ. Hann komst held-
ur betur í álnir þegar honum voru
boðnir forláta stólar og aðrir ant-
íkmunir sem eitt sinn prýddu hið
sögufræga hótel í miðborg Reykja-
víkur. Einar hyggst nota þá í svo-
kallað VIP-herbergi, þótt hann vilji
ekki meina að það verði eingöngu
fyrir einhverja útvalda. „Nei, það
eru eiginlega allir gestir klúbbsins
sem eru útvaldir,“ segir Einar.
Stólarnir eru sumir hverjir frá
fyrstu árum Hótels Borgar sem
hinn goðsagnakenndi Jóhannes
Jósepsson, sem var oftast kallað-
ur Jóhannes á Borg, lét reisa. „Já,
einhverjir af þeim eru hátt í áttatíu
ára gamlir og Jóhannes notaði þá
sjálfur,“ segir Einar, kampakátur
með kaupin enda ekki á hverjum
degi sem menn fá slíka dýrgripa
nánast beint upp í hendurnar. Ann-
ars er dagskráin þétt í Officera-
klúbbnum, svokallað Striks-kvöld
verður í kvöld en eftir viku treður
SSSól upp ásamt Sprengjuhöllinni
og Lísu Idol-keppanda. - fgg
Keypti sögufræg hús-
gögn af Hótel Borg
DÝRGRIPIR Einar festi kaup á nokkrum antíkstólum frá Hótel Borg, sumir þeirra eru
hátt í áttatíu ára gamlir.
Nafn: Sigurður Guðmundsson.
Aldur: 31 árs.
Starf: Tónlistarmaður.
Stjörnumerki: Fiskur.
Búseta: Ég bý í miðbæ Reykjavíkur.
Fjölskylda: Á kærustu og er
barnlaus.
„Jú, jú, þetta er rétt, það er samt búið
að laga hann núna,“ segir Róbert Gunn-
arsson, einn af hinum ástsælu silfur-
drengjum og leikmaður Gummersbach í
Þýskalandi. Þýska blaðið Der Bild birti
nýverið mynd af verðandi eiginkonu
Róberts, Svölu Sigurðardóttur, þar sem
hún stóð með brotinn EHF-Evrópubik-
ar. Róbert vann hann með liði sínu á
mánudaginn þegar Gummersbach lagði
slóvenska liðið Gorenje Velenje í Köln.
Róbert viðurkennir að þetta hafi
verið svolítið skondið atvik og honum
þótti ekkert síður fyndið að þýska stór-
blaðið skyldi birta myndina af unn-
ustunni með brotna bikarinn. „Það er
svona lok á bikarnum sem er alltaf að
detta af og ofan á því er merki EHF og
það brotnaði. Ekkert stórmál svo sem
og kannski orðum aukið að hún hafi
brotið sjálfan bikarinn,“ segir Róbert
og bendir á að það hafi örugglega um
þrjú hundruð fílefldir karlmenn með
stórar og miklar handboltalúkur hand-
leikið þennan bikar og misst umrætt
lok í gólfið. Svala hafi hins vegar bara
verið svo óheppin að merkið skyldi
brotna þegar það gerðist hjá henni „En
þessu var að sjálfsögðu klínt á hana,“
segir Róbert og hlær og bætir því við
að öllum hafi þótt þetta bara nokkuð
skemmtilegt. „Það hlógu í það minnsta
allir að þessu.“
Langþráð sumarfrí er fram undan
sem Róbert hyggst nýta til góðra verka.
Hann og bikarbrjóturinn Svala eru
nefnilega að fara að gifta sig í júní þótt
línumaðurinn harðskeytti vilji sem
minnst um þá veislu tala.
freyrgigja@frettabladid.is
Kærasta Robba braut Evrópubikarinn
MIKIÐ HLEGIÐ Kærasta Róberts Gunnarssonar og verðandi eiginkona,
Svala Sigurðardóttir. Hún varð fyrir því óláni að brjóta Evrópubikarinn
sem unnustinn hafði unnið.
„Það er ekkert eiginlegt nafn
komið á myndina, köllum hana
bara Laddi - The Movie þótt hún
sé ekkert um Ladda og líf hans,“
segir Þorsteinn Gunnar Bjarnason
kvikmyndaleikstjóri. Þorsteinn er
að fara að leikstýra sinni fyrstu
mynd í fullri lengd og ræðst ekki á
garðinn þar sem hann er lægstur.
Hefur fengið sjálfan Ladda í aðal-
hlutverkið en ár og dagar eru liðn-
ir síðan þessi ástsælasti grínleik-
ari birtist síðast á hvíta tjaldinu;
samkvæmt Imdb.com var það í
kvikmyndinni Stella í framboði frá
árinu 2002 þar sem hann endurtók
hlutverk hins víðfræga Salomons
en það er önnur saga.
Meðal mótleikara Ladda í mynd-
inni er síðan hin alþjóðlega Lata-
bæjar-stjarna Stefán Karl Stefáns-
son þannig að ekki verður annað
sagt en að ferill Þorsteins fái fljúg-
andi start. Hann hefur sjálfur enga
skýringu á því af hverju honum
tókst að fá þessa tvo grínkónga til
liðs við sig. „Þegar stórt er spurt.
Ég trúi því bara að þeir hafi séð
að þetta gæti orðið skemmtileg
mynd.“
Um er að ræða gamanmynd um
örlagaríkan dag í lífi manns þar
sem allt fer á annan veg en upp-
haflega var gert ráð fyrir. „Þetta
er svona „road-movie, vegamynd
eins og það heitir víst á íslensku,
og gerist bæði í höfuðborginni
og sveitum landsins,“ segir Þor-
steinn en tökur á myndinni ættu
að hefjast á þessu ári. Þorsteinn
viðurkennir að það sé óneitan-
lega svolítið stressandi að vera að
fara að leikstýra kvikmynd með
bæði Ladda og Stefáni Karli. „Já,
ég væri að ljúga því ef ég væri
ekki með í maganum yfir þessu,
en ég er með gott fólk með mér,“
segir Þorsteinn. „Til að mynda
er Gunnar Björn Guðmundsson
aðstoðarleikstjóri og hann verður
mín hægri hönd enda kominn með
dágóða reynslu,“ en Gunnar Björn
leikstýrði til að mynda Astrópíu
sem sló rækilega í gegn í íslensk-
um kvikmyndahúsum.
Þorsteinn lærði sín fræði í Kvik-
myndaskóla Íslands, nam þar bæði
handritsskrif og leikstjórn. „Svo
fór ég til London í mastersnám í
leiklist og kom bara aftur heim
síðasta sumar,“ útskýrir Þorsteinn
sem er hvergi banginn þótt efna-
hagsástandið á Íslandi sé ekki upp
á marga fiska. „Það þarf ekki allt-
af að vera dýrt að gera bíómynd.“
freyrgigja@frettabladid.is
ÞORSTEINN GUNNAR: MEÐ Í MAGANUM YFIR FYRSTU MYNDINNI
GRÍNKÓNGAR SAMEIN-
AÐIR Á HVÍTA TJALDINU
HVERGI BANGINN
Þorsteinn Gunnar Bjarnason er að fara að leikstýra sinni fyrstu mynd í
fullri lengd. Og hún skartar grínkóngunum Ladda og Stefáni Karli í aðal-
hlutverkum. Leikstjórinn segist vera með smá í maganum yfir þessu öllu
en kveðst þó vera hvergi banginn.
„Björn Hlynur Haraldsson fyrir þá
sem vilja fá hann á smettið,“ kallast
hópur sem Ísleifur Birgisson, hljóð-
maður í Þjóðleikhúsinu, stofnaði á
Facebook. Þeir félagar komu nýver-
ið frá Frakklandi þar sem
leiksýningin Sædýrasafn-
ið var sýnd en þar mun
leikarinn hafa hald-
ið því fram að hann
ætlaði aldrei að fara
á Face book. Ísleifur
ákvað því að stofna
umræddan stuðnings-
hóp til að telja honum
hughvarf. Fjöldi leikara hefur nú
skráð sig í hópinn í von um að
Björn Hlynur láti undan, en þar á
meðal eru Nanna Kristín Magnús-
dóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir og
Rúnar Freyr Gíslason.
Bergljót Arnalds rithöfundur og
Páll Ásgeir Davíðsson lögmað-
ur ganga í það heilaga í Dómkirkj-
unni í dag og er herlegu brullaupi
slegið upp á Búðum fram
yfir helgi. Bergljót hefur
sett upp sérlega síðu,
virago.is/brudkaup, þar
sem menn geta skráð
sig til þátttöku en eitt
og annað er á dag-
skrá, svo sem: Ferð
á Snæfellsjökul þar
sem Kristbjörg Krist-
mundsdóttir leiðir blessunarathöfn,
kaffi á Hellnum og „brunch“ með
brúðhjónunum. Veislustjóri er Pétur
Blöndal.
Hrunið eftir stjörnusagnfræðing-
inn Guðna Th. Jóhannesson rýkur
út og muna elstu menn í útgáfu-
geiranum ekki annað eins. Er
þá Arnaldur Indriðason undan-
tekning eins og í öðru í íslensk-
um bókabransa. Vegna fyrirsjáan-
legrar eftirspurnar og þess að útlit
var fyrir pappírsskort og komu úr
fyrstu prentun þrjú þús-
und eintök, sem þykir
mikið. Sólarhring eftir
formlegan útgáfudag
er það upplag langt
komið og leggja útgef-
endur Guðna nú
drög að annarri
prentun. -ag / jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI