Fréttablaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
Í dag er mánudagurinn 8.
júní,159. dagur ársins.
3.07 13.27 23.48
2.07 13.11 0.20
Opið 07 til 01
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is
Flug+ bíll í Mið-Evrópu
Fáðu þér bílaleigubíl
frá Budget og keyrðu um
Evrópu þvera og endilanga
með fjölskyldunni! Nánar á
www.icelandexpress.is/budget
Það er tilvalið að fljúga á einn
áfangastað okkar, þvælast um
Evrópu á bílaleigubíl og
fljúga heim frá öðrum
áfangastað!
A
B
með ánægju
Sæluvika í Svartaskógi 22.–29. ágúst
Vikuferð
Allt
innifalið
Innifalið: Flug til Basel með sköttum og öðrum
greiðslum, akstur til og frá flugvelli, gisting á 4*
Hotel Baren með fullu fæði allan tímann og íslensk
fararstjórn.
Lúxemborg 16.–21. júlí
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Evrópa er fjölskylduvæn
Mamma, pabbi og börnin kætast saman á ferðalagi um Evrópu, því þar
finna allir eitthvað við sitt hæfi. Skemmtigarðar, útivist, furðulegir
dýragarðar, flatlendi, fjöll – og allt þar á milli. Svo er alveg gráupplagt að
leigja bíl frá Budget og þvælast um, hún Evrópa er svo spennandi!
Bókaðu þína fjölskylduferð í sumar á www.icelandexpress.is
Verð á mann í tvíbýli:
139.900 kr.
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir
Innifalið: Flug til Frankfurt Hahn með sköttum og
öðrum greiðslum, hótelgisting á 4* Novotel
Kirchberg í 5 nætur með morgunverðarhlaðborði.
Verð á mann í tvíbýli:
89.900 kr.
Basel
Frankfurt HahnEindhoven
Friedrichshafen
París
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Hverjum þeim sem heillast af bók ber skylda til að segja frá
henni,“ segir í lögum bókaáhuga-
fólks og nú hef ég hnotið um eina
slíka. Fars krig heitir hún og er
eftir Norðmanninn Bjørn Westlie.
Landar hans voru svo hrifnir af
henni að þeir veittu honum Brage-
prisen í fyrra. Fars krig er sann-
söguleg bók þar sem Bjørn segir
frá föður sínum, Petter, sem skráði
sig í Waffen-SS í Seinna stríði og
var sendur á vígstöðvarnar í Úkr-
aínu. Hrifning hans á Þjóðverjum
var slík að hann breytti ættarnafn-
inu Vestli í Westlie.
ÞJÓÐVERJAR ásældust olíulindir
og kornakra Úkraínu og var Petter
og félögum hans lofað þar jarðar-
parti að stríði loknu. Bjørn veltir
því fyrir sér hvernig líf hans
hefði orðið hefðu Þjóðverjar sigr-
að. Hann hefði þá alist upp í Úkr-
aínu þar sem heimamenn hefðu
verið látnir þræla á ökrunum fyrir
herraþjóðina. Petter kól illa á fæti
í stríðinu en tókst þó að sleppa við
aflimun. Hann lifði hildarleikinn
af og sneri aftur til Noregs þar
sem hann hlaut fangelsisdóm fyrir
landráð. Petter leið fyrir fortíðina
og flíkaði ekki reynslu sinni af víg-
stöðvunum.
ÞAÐ var ekki fyrr en hann var
orðinn fjörgamall að Bjørn tók að
ganga á hann. Sumt lét Petter uppi,
annað ekki. Ekki bætti úr skák að
feðgarnir töluðust ekki við árum
saman eftir að Petter reiddist því
heiftarlega að sonardóttir hans var
frædd um íslam í fermingarundir-
búningnum. Það féll gamla nasist-
anum ekki. Loks tókst þeim feðgum
þó að ná sáttum, sem betur fer því
annars hefði bókin aldrei orðið til.
Bjørn fór til Úkraínu í leit að svör-
um og eru kaflarnir þaðan magn-
aðir. Furðulítil ummerki finnast nú
eftir alla Gyðingana sem eitt sinn
bjuggu þar svo öldum skipti.
EFTIR jafnsláandi lýsingar kemur
endirinn unaðslega á óvart því þar
segir frá því þegar Petter, þá orð-
inn háaldraður, flutti úr miðborg
Oslóar þar sem honum þótti inn-
flytjendur orðnir heldur áberandi.
Hann settist að úti á landi og leit-
aði þar læknis vegna gamla fóta-
meinsins. Læknirinn kunni sitt fag
svo Petter leið betur í fætinum en
nokkru sinni fyrr. Hann tók miklu
ástfóstri við lækninn sinn og lauk á
hann lofsorði við son sinn. Það væri
auðvitað ekki í frásögur færandi ef
læknirinn hefði ekki verið ramm-
útlenskur – Muhammed nokkur
Iqbal frá Pakistan! Fars krig er ein
þeirra dásemdarbóka sem bíða þín
á Bókasafni Norræna hússins.
Stríðið hans
pabba