Fréttablaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 6
6 8. júní 2009 MÁNUDAGUR
Opinn fundur
Útiræktun á erfðabreyttu byggi
Þriðjudaginn 9. júní frá 13-16
Grand Hótel - Hvammur
Kynnt verður umsókn l ú ræktunar á erfðabrey u
byggi sem Umhverfisstofnun hefur l meðferðar.
Frestur l að skila inn athugasemdum hefur verið
framlengdur l 12. júní næstkomandi.
Allir velkomnir
Nánar á Umhverfisstofnun.is
HÁTÍÐAHÖLD Sjómannadagurinn
var haldinn hátíðlegur um allt
land í gær og raunar var helgin
víða undir lögð enda hefur þróunin
hin síðari ár verið sú að skipulögð
sjómannadagskrá teygir sig yfir á
nokkra daga.
Í Reykjavík hófust hátíðar-
höldin á laugardag og héldu síðan
áfram í gær með skemmtidagskrá
á Grandagarði. Að sögn Guðmund-
ar Hallvarðssonar, formanns sjó-
mannadagsráðs, tókust hátíðar-
höldin vel. „Við fengum afar góðar
undirtektir með þennan tilflutn-
ing á sjómannadeginum frá Mið-
bakka og út á Grandagarð enda
meiri nálægð við Sjóminjasafnið
og varðskipið Óðin svo dæmi séu
tekin. Þangað streymdi geysilegur
fjöldi fólks báða dagana auk þess
sem það leit á furðufiska Hafrann-
sóknastofnunar, bragðaði sjávar-
fang, fór í siglingar og fleira.“
Guðmundur segir að það sem
standi upp úr sé þó að þetta er í
fyrsta skipti, frá því að sjómanna-
dagurinn var fyrst haldinn hátíð-
legur árið 1938, sem enginn hefur
farist á sjó á milli sjómannadaga,
en mannslífin hafa oft skipt tugum.
„Því var engin stjarna í minningar-
fánanum sem var gengið með inn
í sjómannadagsmessuna í Dóm-
kirkjunni að þessu sinni,“ segir
Guðmundur, en herra Karl Sigur-
björnsson biskup predikaði auk
þess að minnast drukknaðra sjó-
manna.
Um miðjan dag var svo að venju
hátíðardagskrá en hún fór að
þessu sinni fram í Sjóminjasafn-
inu á Grandagarði. Þar flutti Jón
Bjarnason sjávarútvegsráðherra
ávarp ásamt fulltrúum sjómanna
og útvegsmanna.
Aðspurður segist Guðmundur
ekki vita til þess að nokkur íslensk
skip hafi verið á veiðum í gær. „Ég
held að allir hafi virt lög um að
vera í landi á sjómannadaginn.“
- ve
Engin stjarna var í minningarfánanum í sjómannadagsmessunni:
Ekkert banaslys á sjó á einu ári
FROÐUFJÖR Á Granda gátu börnin farið
í froðupartí, hoppukastala, teygjubraut,
klifurkastala og margt fleira.
STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, segist munu krefja Steingrím J.
Sigfússon fjármálaráðherra svara í þinginu í dag hví hann
hafi sagt á miðvikudaginn var að engar
formlegar viðræður væru þá hafnar í
Icesave-deilunni.
„Ég spurði að því í óundirbúnum fyrir-
spurnartíma hvort eitthvað væri að ger-
ast í málinu en þá var farið að kvisast
út í þinginu og meðal fjölmiðlamanna
að svo væri,“ segir Sigmundur. „Hann
svaraði því til að svo væri ekki, að við-
ræður væri ekki einu sinni hafnar. Svo
kemur bara í ljós að það er alls ekki
rétt.“ Hann segist undrast leyndina yfir
málinu og aðförunum við að viðhalda henni.
Samkomulagið við Breta og Hollendinga verður kynnt
þingmönnum í vikunni. - jse
Formaður Framsóknarflokksins vill skýringu á misvísandi svari fjármálaráðherra:
Spyr hvort ráðherra hafi blekkt þingheim
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
„Eins og þingmönnum er kunnugt
var afgreidd ályktun um það á þingi
þar sem stjórnvöldum var falið
það verkefni að ræða við bresk
og hollensk stjórnvöld um lyktir
þessarar deilu og síðan hefur með
reglubundnum hætti verið skýrt frá
því hvað aðhafst hefur verið í þeim
efnum og meðal annars utanríkis-
málanefnd verið haldið upplýstri
um það. Viðræður eða þreifingar
milli aðila hafa gengið hægar en
ætlunin var, m.a. vegna þess að Bretar hafa
ítrekað óskað eftir frestun á fundum sem
fyrirhugaðir voru. Það er verið að reyna að
koma í gang formlegum samninga-
viðræðum en þær eru ekki hafnar
heldur eru könnunarþreifingar eða
könnunarviðræður í gangi. Ég held
að ég geti fullvissað hv. þingmann
um að það standi ekki til að ganga
frá einhverju samkomulagi á
morgun eða einhverja næstu daga
og áður en til slíks kæmi yrði að
sjálfsögðu haft samráð við utanríkis-
málanefnd og aðra þá aðila sem
þingið hefur haft til að fylgjast með
framvindu þessara mála. Staða málsins er sú
að það eru könnunarviðræður eða könnunar-
þreifingar í gangi.“
SVAR STEINGRÍMS VEGNA ICESAVE
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
Fylgist þú með íslenska karla-
landsliðinu í knattspyrnu?
Já 43%
Nei 57%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Telur þú að Íslendingar hafi
náð hagstæðum samningi í
Icesave-deilunni?
Segðu skoðun þína á vísir.is
SJÁVARÚTVEGUR Tillögur Hafrann-
sóknastofnunarinnar fela í sér að
þorskveiðikvótinn verði tíu þúsund
tonnum minni en nú er.
Atli Gíslason, formaður sjávar-
útvegs- og landbúnaðarnefndar,
segir að með tillögunum sé Haf-
rannsóknastofnunin í raun að auka
þorskveiðikvótann frá því í fyrra
um tuttugu þúsund tonn. „Það voru
ákveðin 130 þúsund tonn fyrir síð-
asta fiskveiðiár en Einar K. Guð-
finnsson [fyrrverandi sjávarútvegs-
ráðherra] tók það upp hjá sér í
febrúar rétt fyrir stjórnarslit að
bæta við þrjátíu þúsund tonnum,“
segir Atli. „Það er mín skoðun að
lífríki eigi að njóta vafans. Það er
betra að ganga ekki á höfuðstól-
inn.“
Atli telur að þessar breytingar
séu nauðsynlegar, þrátt fyrir bágt
efnahagsástand. „Ef við tökum of
mikið úr lífríkinu endum við eins og
bankarnir. Við eigum ekki að vera
í „loftbólubisness“ með auðlindirn-
ar okkar í hafinu, við erum mjög
brennd af því í bankastarfsemi. Við
verðum bara að hugsa um sjálfbæra
þróun og vistvænar veiðar og fara
varlega,“ segir hann. „Ég treysti sér-
fræðingum Hafrannsókna stofnunar-
innar í þessu máli. Þeir hefðu mátt
fá meiri peninga til rannsókna og
annað slíkt en þetta eru áratuga-
rannsóknir sem þeir byggja á.
Þetta er markviss ráðgjöf hjá þeim
ár eftir ár og við erum í stórhættu
ef við fylgjum þeim ekki. Við eigum
ekki að taka geðþóttaákvarðanir
eins og Einar K. Guðfinnssson tók
rétt fyrir stjórnarslit.“
Einar vísar því á bug að um geð-
þóttaákvörðun hafi verið að ræða.
„Sú ákvörðun mín var vel rökstudd.
Nú sjáum við líka á mati Hafrann-
sóknastofnunarinnar á stöðu þorsk-
stofnanna að viðmiðunarstofnarnir
í þorskinum eru að stækka, þannig
að það er ljóst að ákvörðun mín frá
því í vetur var fyllilega rökstudd og
langt innan við öll mörk sjálfbærra
veiða,“ segir hann. „Ég tel að það
sé skynsamlegt að halda sig við þá
ákvörðun sem ég tók á síðasta vetri.
Þá var það tilkynnt af minni hálfu
að gert væri ráð fyrir því að þetta
væri ákvörðun til tveggja ára. Mín
rök eru þau að 160 þúsund tonna afli
væri vel innan marka sjálfbærrar
nýtingar og við þessar efnahags-
legu aðstæður sem við búum við
núna held ég að það væri skynsam-
legast að reyna að feta þá slóð.“
Einar Valur Kristjánsson,
útgerðar maður á Ísafirði og
stjórnar maður í LÍÚ, segir að Haf-
rannsóknastofnunin sé á réttri leið
en betur má ef duga skal. „Ég er að
vona að maður fái að sjá eitthvað
meira en 150 þúsund tonn. Mínum
skipstjórum finnst vera mikill
fiskur. Við höfum ekki verið að
veiða þorsk í mörg ár, við erum allt-
af að flýja hann, þannig að manni
finnst 150 vera í lægri kantinum. En
stóra fréttin er að þetta er staðfest-
ing á því að þetta er á réttri leið,“
segir hann. freyr@frettabladid.is
Útilokar ákvarðanir
í anda Einars K.
Formaður sjávarútvegsnefndar segir að Íslendingar eigi ekki að vera í „loftbólu-
bisness“ með auðlindir hafsins. Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra segir ákvörðun
sína um stækkun kvóta hafa verið langt innan marka sjálfbærra veiða.
ÞORSKVEIÐAR Tillögur Hafrannsóknastofnunarinnar fela í sér að þorskveiðikvótinn
verði 150 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
ATLI
GÍSLASON
EINAR K.
GUÐFINNSSON
KJÖRKASSINN