Fréttablaðið - 11.06.2009, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Laugavegi 80, 101 Reykjavík sími 561 1330www.sigurboginn.is
17% AFSLÁTTUR
AF BLÚSSUM, PEYSUM OG BOLUM
fram að 17. júní.
ÞJÓÐHÁTÍÐARSTEMNING!!!
ÚTSALA
Opið mán. - fös. frá kl. 11:00 - 18:00Laugardaga frá kl. 11:00 – 16:00Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík,
sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
BERLÍNARMÚRINN varð tískuhönnuðinum þýska, Dani-
el Rodan, innblástur fyrir nýjustu tískulínu hans. Tuttugu ár eru
frá falli múrsins og í fötum Rodan má sjá hinar ýmsu graff-
myndir sem prýddu áður múrinn umdeilda.
„Þetta eru allt hálsmen sem ég hekla utan um perlur og eru mis-munandi að lit, ýmist einlit, tví-lit eða þrílit,“ segir Elín Hrund en hún hefur lengi unnið við ýmis tímarit sem tengjast höntísku
tíðina og sameinaði því heklið mitt og skartgripagerðina í þess-um hálsfestum.“Elín Hrund byrjaði að prófasig áfram ð
inu er hægt að skoða hálsfestarn-ar á www.this.is/elinhrund eðasenda henni póst á
Heklar hálsmenMikill uppgangur er um þessar mundir í hekli og prjóni og Elín Hrund Heiðarsdóttir hefur ekki farið var-
hluta af þeim áhuga. Hún heklar litaglaðar og stórar hálsfestar sem hún ber með stolti.
Elín Hrund er fantafínn heklari og hefur heklað alls kyns öðruvísi hluti í gegnum tíðina, svo sem frumlegt páskaskraut.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Hringdu í sí
34%
74%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Fréttablaðið er með 117%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft...
FIMMTUDAGUR
11. júní 2009 — 137. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
ELÍN HRUND HEIÐARSDÓTTIR
Heklar litríkar
hálsfestar
• tíska • heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
landið mitt austurland
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009
Mikil
viðurkenning
Ulla Magnússon var
sæmd heiðursorðu
alþjóðasamtak-
anna SOS-barna-
þorpa.
TÍMAMÓT 26
LANDIÐ MITT AUSTURLAND
Ferðir, söfn, sýningar
og öðruvísi gisting
Sérblað um Austurland
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
Sjá nánar á www.betrabak.is
Er von á gestum?
Svefnsófadagar í júní
Brangelinu-
æðið búið
Ýmsar sögur af
skilnaði Brads og
Angelinu.
FÓLK 38
VERSLUN Starfsfólk bókabúðar Máls og menningar á
Laugavegi 18 býr sig nú undir að yfirgefa húsnæðið
sem verslunin hefur verið í síðan 1961. Að óbreyttu
hættir verslunin þar í ágúst.
„Já, við erum aðeins farin að taka til inni á lager
og erum að svipast um eftir nýju húsnæði,“ segir
Elsa María Ólafsdóttir verslunarstjóri.
Eigandi hússins, Kaupangur, hefur krafist hærri
leigu eftir að ríkið tók yfir rekstur búðarinnar.
„Og við getum ekki verið með svo háa álagningu á
bækur,“ segir Elsa. Hún viti ekki hvað komi í stað
verslunarinnar. „Kannski á að opna nýtt diskótek,
vantar ekki fleiri þannig við Laugaveg?“ spyr hún.
Þetta sé áfall fyrir miðborgina. Elsa segist þó halda
í vonina, að takist að semja við Kaupangur. Eigandi
Kaupangs vill ekki ræða við fjölmiðla, enda er enn
verið að semja.
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segist
vona að búðin, eins og aðrar verslanir við Laugaveg-
inn, geti verið þar áfram. „Ég efast þó um að borgin
geti haft aðkomu að þessu máli,“ segir hún.
Dagur B. Eggertsson, oddviti minnihlutans í borg-
arstjórn, segir erfitt að benda á mikilvægari verslun
á Laugavegi. „Við munum kalla eftir heildaryfirliti
um þessi mál í borgarráði til að sjá hvort borgin geti
komið að þessu.“ Borgarráð fundar í dag. - kóþ
Kaupangur krefst mun hærri leigu en áður eftir að ríkið varð eigandi Pennans:
Mál og menning undirbýr brottför
LÉTTSKÝJAÐ SV-TIL Í dag verður
hæg norðlæg eða breytileg átt.
Bjartviðri suðvestan og vestan til
en skýjað og dálítil væta af og til
Norðaustan- og Austanlands. Hiti
víðast 7-15 stig, hlýjast í uppsveitum
suðvestanlands.
VEÐUR 4
9
8
7
12
11
14
SVERRIR GUÐJÓNSSON
Breyttist í
Tom Waits
Söng fyrir nýkvæntan son sinn
FÓLK 46
Vei yður, þér hræsnarar
Ber að skilja þetta vaxtastig sem
vantraust á framtíðarhorfur
Íslands? segir Jón Baldvin Hanni-
balsson.
UMRÆÐAN 24
Tap í
Makedóníu
Ísland tapaði
sínum þriðja
leik í röð í
undankeppni
HM 2010 í
Makedóníu í gær.
ÍÞRÓTTIR 40
DÓMSMÁL Ólafur Þór Hauksson,
sérstakur saksóknari, telur að
fjölga þurfi starfsmönnum emb-
ættisins um helming „að minnsta
kosti“. Vegna fjölskyldutengsla Val-
týs Sigurðssonar ríkissaksóknara
undirbýr dómsmálaráðherra laga-
breytingu til að setja sérstakan
ríkissaksóknara, sem annast mál
sem frá embætti Ólafs koma. Björn
Bergsson hæstaréttardómari mun
gegna stöðunni.
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks sak-
sóknara, sagði í Kastljósviðtali
í gærkvöldi að rannsókn á efna-
hagshruninu muni litlu skila nema
embættið verði stóreflt. Hún vill
að ráðnir verði þrír saksóknarar,
einn fyrir hvern banka, einnig end-
urskoðendur og fleiri erlendir sér-
fræðingar. Hún vill jafnframt að
ríkissaksóknari víki en hann er
faðir Sigurðar Valtýssonar, for-
stjóra Exista.
Ólafur Þór tekur undir með Evu
Joly hvað varðar styrkingu emb-
ættisins. „Að minnsta kosti“, segir
hann þegar blaðamaður spyr hvort
nauðsynlegt sé að fjölga starfs-
mönnum hans úr tólf í 24. Upp-
haflega voru hugmyndir Evu Joly
um að starfslið Ólafs væri 25 til
30 manns. „Betur má ef duga skal
og mat hennar er byggt á upplýs-
ingum frá okkur um væntanleg-
an málafjölda og eðli mála. Nú eru
komin til embættisins á þriðja tug
mála og við vitum að fleiri eru á
leiðinni.“
Ólafur segir það lagalegt atriði
hvort þrír saksóknarar verði
ráðnir, eftir hugmyndum Evu. Velta
megi fyrir sér hvort það verði einn
sérstakur saksóknari og til hans
svari þrír saksóknarar, einn fyrir
hvern banka. „Slíkt væri ugglaust
hægt að útfæra. Öll styrking emb-
ættisins myndi flýta því verki sem
fram undan er,“ segir Ólafur.
Ragna Árnadóttir dómsmálaráð-
herra greindi ríkisstjórn frá því á
þriðjudag að Eva Joly geri kröfu
um þrjá saksóknara. Eins að hún
væri að undirbúa lagabreyting-
ar í þá átt en að það yrði að ger-
ast innan þess fjárlagaramma sem
embættinu hefur verið búinn. „Ég
tel mig ekki vera í aðstöðu til að
fara fram á frekara fjármagn, í
ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu, en
myndi fagna því ef frekara fjár-
magn finnst.“
Ragna ætlar að skipa Björn
Bergsson hæstaréttarlögmann
sem ríkissaksóknara við hlið Val-
týs Sigurðssonar vegna vanhæfis
hans, og undirbýr frumvarp í þeim
tilgangi. Björn mun annast öll mál
sem frá embætti sérstaks saksókn-
ara koma. Valtýr hafði fyrr lýst sig
vanhæfan í málefnum varðandi
bankahrunið. - shá
Mannekla hamlar rannsókn
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, telur illa staðið að rannsókn á bankahruninu. Hún vill að ríkissak-
sóknari víki. Sérstakur saksóknari vill að fjölgað verði í starfsliði hans úr tólf í 24. Málin hrannast upp.
TRÚMÁL Til stendur að stofna
nunnuklaustur á Egilsstöðum í
húsnæði þar sem lyfjaverslun-
in Lyfja var áður.
Að sögn lyfsalans, Öddu
Birnu Hjálmarsdóttur, hefur
Lyfja ákveðið að selja húsnæð-
ið og það ætla nunnurnar að
nýta sér.
Gert er ráð fyrir íbúðum
fyrir nunnurnar á efri hæð og
í kjallara hússins en kirkju og
annarri aðstöðu á jarðhæð.
Adda Birna telur að húsnæð-
ið henti nýju hlutverki vel en
nunnurnar koma til Egilsstaða
á vegum rómversk-kaþólskra
kapúsínamunka sem stofnuðu
munkaklaustur í Þorlákssókn
á Kollaleiru í Reyðarfirði árið
2007, hið fyrsta á Austurlandi í
450 ár, eða síðan Skriðuklaust-
ur lagðist af.
Aðeins eitt nunnuklaust-
ur er nú starfrækt á Íslandi,
en það er Karmel-klaustrið í
Hafnarfirði, sem stofnað var á
haustdögum 1940. - shá
Klaustur á Egilsstöðum:
Nunnur í stað
lyfjaverslunar
BARA EIN TEGUND? Þessir frísku ferfætlingar fönguðu athygli nærstaddra á Klambratúni í veðurblíðunni í gær. Prýðilega virtist fara
á með hundunum tveimur og kanínunni, sem boðin var velkomin í leikinn eins og ekkert væri sjálfsagðara. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM