Fréttablaðið - 11.06.2009, Síða 22

Fréttablaðið - 11.06.2009, Síða 22
22 11. júní 2009 FIMMTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Þetta var nokkru eftir 1980. Ég var staddur í Leníngrað, hún hét því nafni þá þessi sögufræga og fallega borg austast við Eystra- salt, ég bjó á Hótel Pribaltiskaya, útlendingar voru yfirleitt hafðir þar í hæfilegri fjarlægð frá mið- borginni. Ég fór ferða minna með leigubílum og spurði einn bíl- stjórann hvað ný Lada kostaði út úr búð. Hann sleppti stýrinu og slengdi tíu fingrum tvisvar upp í loftið. Ég hafði ekki hugmynd um, hversu mikils virði 20.000 rúblur voru, og kunni ekki við að spyrja bílstjórann um laun hans. Hótelið var mammútur að vexti, og ég veitti því athygli á barnum, að þar voru margar ungar stúlkur einar síns liðs, misföngulegar. Ein þeirra gaf sig á tal við mig, og ég fagnaði félagsskapnum: nú fékk ég færi á að afla mér gagnlegra upplýsinga um ástand og horfur, kaup og kjör. Það skipti engum togum, að stúlkan gat sagt mér allt, sem ég vildi vita um fjölda ísskápa í eldhúsum og stássstof- um borgarinnar og annað slíkt. Hagvísar og félagsvísar um borg- ina og landið léku á vörum henn- ar. Þar kom, að ég spurði hana um launakjör háskólakennara. Áttu við lektor, dósent eða prófessor? spurði hún eldsnöggt á móti. Segj- um prófessor, svaraði ég. Andsvar hennar fól í sér, að það tæki próf- essor í Leníngrað sjö ár að vinna sér inn fyrir nýrri Lödu, og hann gerði ekki annað á meðan. Ég gat sagt mér það sjálfur, hvers kyns var með þessar stelpur þarna á barnum: þær voru þarna í við- skiptaerindum. Eða voru þetta kannski bara venjulegar stelpur að afla sér ókeypis enskuþjálfun- ar? Eða jafnvel útsendarar? Allt þrennt kannski? Þegar ég kom aftur heim til Stokkhólms, bar ég þessa lauf- léttu lífsreynslusögu af barnum á Pribaltiskaya undir vinnufé- laga minn, sem hafði lært rúss- nesku í sænska hernum. Hann var ekki lengi að leysa gátuna: hún hefði aldrei spurt lektor, dós- ent eða prófessor nema hún væri útsendari, sagði hann, því að ella hefði hún ekki kunnað gervalla launatöflu háskólans utan að. Nú þykknaði þráðurinn. Hvað gat útsendari yfirvalda hafa viljað mér í Leníngrað? Þetta er Moskva Nú rifjast upp fyrir mér annað atvik frá þessum árum. Ég sat á frostköldum janúardegi við skrifborðið mitt í Stokkhólmi djúpt sokkinn í útreikninga, nema síminn hringdi, og sem ég lyfti heyrnartólinu heyrði ég sagt: Þetta er Moskva. Ég sperrti eyrun. Hringjarinn hélt áfram: Prófessor Leonid Vitaliy- evich Kantorovich, Nóbelsverð- launahafi í hagfræði, er fárveik- ur, hann þjáist af krabbameini í ristli, getið þér hjálpað? Rúss- neskir læknar gátu ekki hjálp- að sjúklingnum, geislameðferð dugði ekki, og eina vonin var opinbert boð að vestan um spít- alavist. Í lok ræðunnar kynnti hringjarinn sig sem prófessor í hagnýtri stærðfræði í Moskvu- háskóla. Mér heyrðist frú Kant- orovich sitja hjá honum við sím- ann. Ég skrifaði niður númerið og óskaði þeim allrar blessunar. Þegar ég hafði nokkru síðar náð í yfirlækninn á krabbadeildinni á Karólínska spítalanum í Stokk- hólmi og sagt honum söguna, reyndi ég að hringja í númerið í Moskvu til að gefa prófessorn- um skýrslu. Stúlkan við skipti- borðið í Stokkhólmi sagði, að eftir eina hringingu hefði símtólinu verið lyft í Moskvu og í það sagt djúpri röddu: Við áttum ekki von á símtali frá útlöndum. Við frek- ari eftirgrennslan á símstöðinni í Moskvu kom fram, að eitthvað væri athugavert við númerið. Hvað þýddi það? Var síminn hler- aður? Ég hringdi í forstöðumann Nóbelsstofnunarinnar í Stokk- hólmi, þar eð hann hafði verið gestgjafi Leonids Kantorovich, þegar hann kom til Stokkhólms 1975 að taka við Nóbelsverð- laununum, og sagði honum sög- una. Hann sagðist mundu athuga málið með aðstoð utanríkisráðu- neytisins. Meira gat ég ekki gert. Ég þurfti að fara til Princeton daginn eftir, kenndi þar. Líður nú fram á vor. Einn fagran apríl- morgun við morgunverðarborð- ið úti í garði í glampandi sólskini opna ég New York Times og sé langa minningargrein um Leonid Kantorovich. Þegar ég spurðist fyrir um málið í Stokkhólmi, kom á daginn, að Svíunum hafði ekki tekizt að hafa upp á honum og ekki heldur prófessornum, sem hafði hringt í mig. Hjálparleysi Var þessi fátæklega tilraun mín til að hjálpa deyjandi manni í Moskvu orsök athyglinnar, sem ég naut á barnum á Pri- baltiskaya? Sagan væri safa- ríkari, ef svo væri, en svarið er nei. Símtalið frá Moskvu barst 1987, Kantorovich lézt þá um vorið, nokkrum árum eftir þessa fyrstu heimsókn mína til Len- íngrað. Og yngismærin talna- glögga? Kannski var hún bara svona vel að sér. Reynslusögur frá Rússlandi Í DAG | Minningar að austan ÞORVALDUR GYLFASON UMRÆÐAN Ögmundur Jónasson svarar Kristni H. Gunnarssyni Minn gamli félagi á Alþingi, Kristinn H. Gunnarsson, er ekki hrifinn af því að ég vilji breyta lögum um Seðlabanka Íslands og færa hann undir lýðræðislegt almannavald. Að undanförnu hef ég gagnrýnt Seðla- bankann fyrir að halda uppi vaxtastigi sem þrengir hættulega að skuldsettum heimil- um og fyrirtækjum. Hef ég sagt að Seðlabank- inn eigi að þjóna almannahag, ekki einvörðungu hags munum fjármagnseigenda. Á heimasíðu sinni segir Kristinn að ég sé heldur betur kominn í hring því á sínum tíma hafi ég gagnrýnt Davíð Odds- son, þáverandi forsætisráðherra, fyrir að veitast að stofnunum sem sýndu sjálfstæði; stofnunum á borð við Þjóðhagsstofnun, sem beinlínis hafi verið lögð niður þegar hún hafi óhlýðnast framkvæmdarvald- inu. Er Kristinn búinn að hafa upp á ræðum sem ég flutti á Alþingi þar sem ég gagnrýndi þetta ráðslag. Kristinn þyrfti að leggjast í meiri rannsóknir ef hann vildi fella sanngjarna dóma um minn málflutning. Oft gagnrýndi ég Þjóð- hagsstofnun fyrir að sýna framkvæmd- arvaldinu of mikla fylgispekt, ekki síst þegar telja átti kjarkinn úr launaþjóðinni í aðdraganda kjarasamninga. Ég hafði með öðrum orðum gagnrýnt Þjóðhagsstofnun fyrir að rísa ekki undir því hlutverki sínu að gefa óhlutdrægar og raunsannar upp- lýsingar. Þetta var hennar hlutverk. Seðlabankinn hefur vissulega það hlut- verk með höndum að veita upplýsing- ar en hann er jafnframt framkvæmdaaðili. Að þessu leyti er hann frábrugðinn Þjóðhagsstofnun í grundvallaratriðum. Hann handstýrir vaxtastig- inu í landinu! Vextir eru sem kunnugt er bein- tengdir inn í hagsmuni þeirra sem eiga fjármagn og hinna sem eru skuldsettir. Þegar í ljós kemur að hagsmunir hinna skuldsettu eru fyrir borð bornir að flestra manna dómi þá þurfum við sem samfélag að geta gripið í taumana. Það er kallað lýðræði. Er ekki komið nóg af alræði peninga- valdsins? Höfundur er heilbrigðisráðherra. Alræði eða lýðræði? ÖGMUNDUR JÓNASSON R íkisendurskoðun sendi skýrslu til Alþingis í maí um íslensk muna- og minjasöfn. Undirtitill skýrslunnar er Meðferð og nýting á ríkisfé, sem er ekki rang- hermt. Fjármunir sem Alþingi höndlar með eru ekki fé ríkisins, heldur fé almennings. Skýrslan er gott veganesti fyrir þá nýkjörnu þingmenn sem þurfa að taka til í rekstri ríkisins, spara í stað þess að auka tekjur. Í upphafi þessa árs störfuðu sextíu lista-, náttúru- og menn- ingarminjasöfn í landinu. Ríkisendurskoðun notar orðið „full- burða“ um þau, sem er fjarri sanni. Fá þeirra eru fullburða, ef nokkurt. Þau eru öll í fjársvelti, enda of mörg og of lítil. Ríkisendurskoðun segir þess utan vera 200 – tvö hundruð – safnvísa, setur og sýningar á sama sviði. Og þeim fer fjölg- andi: úti um allt land er verið að búa til einhver gripasöfn sem menn telja vera ferðaþjónustu til framdráttar. Flest eru þau sprottin af söfnun einstaklinga eða félagasamtaka. Til þessa málaflokks renna á þessu ári 1.600 milljónir, þar af tæplega helmingur til safna og stofnana sem ekki eru í ríkis- eigu. Það er athyglisvert að úthlutun þessa fjár er að stærstum hluta í höndum fjárlaganefndar þingsins – 52%. Safnaráð deil- ir út 15%, menntamálaráðuneyti 23%, önnur ráðuneyti eru að dreifa til skjólstæðinga 8% og Húsafriðunarnefnd ríkisins 2%. Þess má geta að það er menntamálaráðuneyti sem á að annast þennan málaflokk í verkaskiptingu ráðuneyta. Drjúgur hlutur fjárlaganefndar í stýringu fjár til safna skýrist af hreppapoti og hagsmunagæslu og er ábyrgðin nefndarinnar. Þá er ábyrgðin ekki minni hjá menntamálaráðherrum síðari ára. Þessi stefna ber í sér hentistefnu og skort á faglegum viðmið- um bæði í vörslu og sýningu. Hún dregur safnskipan í landinu niður á plan áhugamennskunnar og er öld á eftir vegna van- kunnáttu og heimsku þeirra sem ábyrgð bera á málaflokknum. Hún sýnir algera forakt og vanþekkingu fjárveitingarvaldsins og opinberar almennt ábyrðarleysi alþingismanna – bæði gagn- vart eldri söfnum og starfi þar og eins gagnvart hlutverki safna – og þar með menningararfinum. Ríkisendurskoðun tekur kurteislega fram að fjöldi safna hér – eitt safn á hverja ríflega 1.200 íbúa – sé í blóra við stefnu í nálægum löndum þar sem söfnum hafi skipulega verið fækkað með samruna; stærri söfn hafi gleypt hin smærri. Enda sér hver maður að þessi glundroði í safnarekstri er della og ein- ungis afleiðing stefnuleysis stjórnvalda og ístöðuleysis þing- manna. Nú á að setja á fót sérstaka stofnun um þessi mál og þar með létta á starfsfólki menntamálaráðuneytis. Er það lausn á málinu? Enn ein stofnunin. Níu ráða pakki til þingsins ætti að hjálpa eitthvað til, en fróðlegt væri ef eldri þingmenn gætu uppfrætt okkur um hvernig það kom til að þessi fámenna þjóð taldi sig hafa efni á að reka öll þessi söfn, setur, sýningarsali og hvað það er kallað. Frú Katrín þarf sannarlega að taka til í sínum ranni. Nýtt safn opnað í hverri viku: Ruglið í safna- rekstri ríkisins PÁLL BALDVIN BALDVINSSON SKRIFAR Sigríður klöguð Fjórir mikilsmetnir hagfræðingar rituðu tvær greinar í Fréttablaðið og Morgunblaðið í gær, þar sem þeir komu Sigríði Benediktsdóttur til varn- ar. Sigríður á sæti í rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið, en eins og kunnugt er klagaði Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeft- irlitsins, Sigríði til Páls Hreins- sonar, formanns nefndarinnar, eftir að hún lét þau orð falla í viðtali við bandarískt háskólarit að orsök fjármálakreppunnar væri „óhæfileg græðgi margra“ og „andvaraleysi eftirlitsstofnana“. Almenn og almælt Hagfræðingarnir Jón Steinsson og Gauti B. Eggertsson skrifuðu varnar- grein fyrir Sigríði í Fréttablaðið í gær. Að þeirra mati voru fullyrðingar Sigríðar ekki grundvöllur vanhæfis, heldur bæði almenn og almælt tíðindi og lýstu viðhorfi „sem flestir hagfræðingar um allan heim deila“. Hagfræðingarnir Jón Daníelsson og Gylfi Zoëga tóku hins vegar upp hanskann fyrir Sigríði á síðum Morgunblaðsins. Sakleysisleg en óheppileg Gylfi og Jón Daníelsson stíga hins vegar varlegar til jarðar en Jón Steinsson og Gauti. Þótt þeir tali vissulega máli Sigríðar fara þeir ekki leynt með að þeim þykir heldur verra að hún hafi látið áðurnefnd orð falla; þeir kalla ummælin „sakleysisleg en óheppi- leg“ og draga jafnvel í efa að rétt hafi verið eftir henni haft (þótt ekkert hafi komið fram sem bendi til þess) en bæta við að „flest allir Íslendingar gætu tekið undir“ þau. Það ber sem sagt örlítið á milli í túlkunum hagfræðing- anna á orðum Sigríðar. Þeir fyrrnefndu segja flesta hagfræðinga í heimi geta tekið undir þau. Þeir síðarnefndu telja eingöngu flesta Íslendinga geta tekið undir þau. bergsteinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.