Fréttablaðið - 11.06.2009, Blaðsíða 34
11. JÚNÍ 2009 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● landið mitt austurland
Í gömlu fiskvinnsluhúsi á
Stöðvarfirði er nú ljósmynda-
sýning og handverksmark-
aður.
Salthúsið var opnað á Stöðvarfirði í
síðustu viku en þar er búið að setja
upp ljósmyndasýningu um fisk-
verkun á staðnum og myndbands-
verk um fiskveiðar og fiskverkun.
Auk þess hefur handverksmarkaði
verið komið á fót en litið er á húsið
sem viðbót við afþreyingu fyrir
ferðamenn á staðnum.
„Í húsinu var fiskvinnsla fram
til ársins 2005 en þá var stærstum
hluta af fiskvinnslu og útgerð hætt
á Stöðvarfirði og kvótinn fluttur
annað,“ segir Magnús Sigurðsson,
annar eigenda hússins. „Það hefur
síðan verið nýtt sem geymsla fyrir
húsbíla og fellihýsi en ávallt staðið
tómt á sumrin.“
Húsið stendur við aðalgötu í
miðjum bænum og tók Magnús
eftir því í fyrrasumar að ferða-
menn, sem koma í tugþúsundatali
til bæjarins á hverju sumri til að
skoða Steinasafn Petru, voru að
ganga í kringum húsið og forvitn-
ast um hvað þar hefði verið. Magn-
ús og Einþór Skúlason, hinn eig-
andi hússins, ákváðu því að opna
það og gæða lífi.
„Húsið er um þúsund fermetr-
ar og í einu rýminu höfum við með
hjálp listamanna og ýmissa styrkt-
araðila komið upp ljósmyndasýn-
ingu með myndum frá fiskvinnsl-
unni á Stöðvarfirði. Í kælinn sett-
um við svo upp myndvarpa og þar
rúlla tvö myndbönd sitt á hvað.
Annað er frá Félagi ungs fólks
í sjávarútvegi og sýnir á lifandi
hátt hvernig fiskurinn kemur úr
sjónum í trollinu og úr togaran-
um til löndunar, fiskverkunar og
pökkunar. Hitt er verk eftir Gjörn-
ingaklúbbinn Icelandic Love Corp-
oration og sýnir demantsskreytt-
ar konur í brúðarkjólum að verka
fisk,“ lýsir Magnús.
Fremst í húsinu hefur hand-
verksfólk á staðnum svo komið á
fót markaði en hann verður opinn
alla daga frá klukkan 10 til 16 til
21. ágúst. Magnús segir svo aftur
von á húsbílum og fellihýsum í hús
í vetur en myndirnar verða áfram
á veggjunum og telur hann allt
eins líklegt að leikurinn verði end-
urtekinn að ári. - ve
Aflögðu fiskvinnslu-
húsi gefið nýtt líf
Salthúsið stendur í miðjum bænum og
hefur löngum vakið forvitni ferðamanna.
Fiskvinnslu og útgerð var að mestu hætt á Stöðvarfirði fyrir nokkrum árum. Í Salthúsinu er búið að setja upp sýningar tengdar
fiskveiðum og fiskverkun á staðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þerribjarg er ein af perlum Fljótsdalshéraðs. MYND/KRISTINN ÞORSTEINSSON
Nýverið var sett á laggirnar nýtt gönguverkefni á Fljótsdalshér-
aði sem ber nafnið Heiðarbýlin. Verkefnið er hluti af uppbygg-
ingu menningartengdrar ferðaþjónustu á Jökuldalsheiðinni sem
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshérað og Kaupvangur,
menningar- og menntasetur Vopnfirðinga, standa að.
Heiðarbýlin eru 22 talsins og verður hólkur með upplýsingum
um býlið, ábúendur og sögur tengdar því settur upp hjá hverju
þeirra, ásamt gestabók og stimpli. Kort til að safna stimplum
verður til sölu í Sænautaseli og á upplýsingamiðstöðvum á Egils-
stöðum og Vopnafirði.
Viðurkenning verður veitt þeim sem skila inn korti með níu
stimplum og lenda þeir í potti sem dregið verður úr á Timbur-
mannamorgni Ormsteitis hinn 16. ágúst í Sænautaseli og verða
veglegir vinningar í boði.
Heiðarbýlin bætast við annað gönguverkefni Fljótsdalshéraðs
sem fór af stað í fyrra og ber nafnið Perlur Fljótsdalshéraðs, þar
sem einnig er safnað stimplum fyrir hverja perlu Fljótsdalshér-
aðs. - mmf
Gengið á milli heiðar-
býla Fljótsdalshéraðs
Skógardagurinn mikli verður
haldinn hátíðlegur í fimmta sinn
um Jónsmessuna, 20. júní. „Jóns-
messan er okkar hátíð vegna
þess að þá er oftast búið að planta
mestu,“ segir Edda Kr. Björnsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Skógardags-
ins mikla, og bætir við að dagurinn
sé hálfgerð uppskeruhátíð skógar-
bænda á Austurlandi.
Á dagskrá Skógardagsins mikla
á Hallormsstað verður meðal ann-
ars skógarhlaup og skemmtiskokk,
Íslandsmeistaramótið í skógar-
höggi, skógarleikir og þrautir, fé-
lagar í Þjóðdansafélagin Fiðrildin
fljúga um skóginn og skógardags-
lagið verður sungið. „Við erum
líka með fígúrur sem eru tileink-
aðar skóginum og eru búnar til af
konu af svæðinu. Þetta eru skóg-
arpúkarnir Petra og Pjakkur. Svo
bjóðum við upp á heilgrillað naut
að hætti Héraðsmanna, grillaðar
pylsur, ketilkaffi og skógarlumm-
ur með nýsoðinni rabarbarasultu,“
upplýsir Edda.
Ókeypis verður inn á svæðið
en dagskrá hefst í Trjásafninu í
Mörkinni á Hallormsstað stund-
víslega klukkan 13. - mmf
Skógur leikur aðalhlutverkið
Skógardagurinn mikli er haldinn í fimmta sinn um Jónsmessuna. MYND/ÚR EINKASAFNI
frumkvöðlafyrirtæki ársins - fiskvinnsla frá árinu
466 1016
www.ektafiskur.is
Gullkistunni
Okkar víðfrægu saltfisksteikur (Lomos)
ásamt með hefðbundna
íslenska þurrkaða saltfiskinum í gjafaöskju
fást nú einnig í verslunum Hagkaupa!
- Lifið heil
www.lyfja.is
Prófaðu 100% lífræna mýkt
úr íslenskri náttúru
Olían frá Móður Jörð er án allra aukaefna og framleidd í Vallanesi á Fljótsdalshéraði.
Dreifing: Heilsa ehf.
LÍFOLÍA
er ilmandi og
djúpvirk fyrir
vöðva og liði.
BIRKIOLÍA
mýkir og græðir
þurra húð
og exem.
BLÁGRESISOLÍA
nærir viðkvæma
slímhúð og eyðir
bólgu.