Fréttablaðið - 11.06.2009, Blaðsíða 36
11. JÚNÍ 2009 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● landið mitt austurland
„Víknaslóðir er nafn sem búið var
til yfir göngusvæðið sem liggur
á milli Borgarfjarðar eystri og
Loðmundarfjarðar,“ segir Hafþór
Snjólfur Helgason, sem vinnur að
ferðamálum á Borgarfirði. „Þetta
eru sjö víkur sem í dag eru eyði-
byggðir en byggðar voru á sínum
tíma.“
Hafþór segir að Víknaslóðir sé
flennistórt svæði. „Við erum með
um 140 kílómetra af stikuðum
gönguleiðum innan sveitarfélags-
ins, sem er eiginlega einsdæmi á
Íslandi. Sumir hópar koma hing-
að tvö sumur og skipta svæðinu í
tvennt. Þannig að hægt er að taka
tíu daga í að ganga um Víknaslóð-
irnar.“
„Hér eru leiðir við allra hæfi,“
útskýrir hann og bætir við að hægt
sé að keyra til Breiðavíkur, Húsa-
víkur og Loðmundarfjarðar og
ganga þaðan. - mmf
Gengið um
stórar eyðivíkur
Á Víknaslóðum er hægt að finna göngu-
leiðir við allra hæfi.
Gestir og ferðamenn geta heimsótt
Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði alla
daga í sumar klukkan 14. Þar geta
þeir kynnt sér starfsemi álversins
og fengið upplýsingar um það.
Hægt er að heimsækja stjórn-
arbyggingu Alcoa Fjarðaáls, sem
er fyrir neðan kerskála fyrirtæk-
isins, niðri við sjóinn og nálgast
upplýsingarnar þar.
Þeir sem hins vegar vilja heim-
sækja sjálft álverið og skoða inn-
viði þess þurfa að panta tíma, svo
hægt sé að skipuleggja skoðunar-
ferð um álverssvæðið. Það er gert
annaðhvort með því að senda póst
á fjardaal@alcoa.com eða hafa
samband í síma 470-7700.
Vel hefur verið tekið í þetta
framtak fyrirtækisins. Það hefur
frá upphafi tekið á móti þúsund-
um gesta, sem hafa annaðhvort
heimsótt upplýsingamiðstöðina
eða komið í hópum til að skoða ál-
verið.
Skoðunarferðir
um álverið
Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði er stærsta
álver landsins, en framleiðslugetan er
346.000 tonn af áli á ári. MYND/ALCOA FJARÐAÁL
Á álverssvæðinu eru um 700 manns að
störfum, en hjá Fjarðaáli eru 450 starfs-
menn. MYND/ALCOA FJARÐAÁL
M
YN
D
/H
EL
G
I M
A
G
N
Ú
S
A
RN
G
RÍ
M
SS
O
N
Franskir dagar hafa verið haldnir árlega á Fá-
skrúðsfirði síðan árið 1996 og er um að ræða
menningarhátíð með frönsku ívafi.
Hátíðin er iðulega haldin síðustu helgi júlí-
mánaðar en þá er veru Frakka á Fáskrúðs-
firði minnst og heimamenn og gestir gera sér
glaðan dag með ýmsu móti. Franskir dagar
hafa því unnið sér sess sem árleg bæjarhátíð
Fáskrúðsfjarðar. Þá koma burtfluttir í heim-
sókn og ýmis vinamót eru haldin. Stundum
hafa fulltrúar frá frönskum vinabæ Fáskrúðs-
fjarðar, Gravelines, komið og tekið þátt í há-
tíðinni.
Nánari upplýsingar er að finna á www.
franskirdagar.com. - hs
Hátíð með frönsku ívafi á Fáskrúðsfirði
Í lok júlí er ávallt líf og fjör á Fáskrúðsfirði en þá er bæj-
arhátíðin Franskir dagar í algleymingi. MYND/ÚR EINKASAFNI
Fjöldi viðburða er á dagskrá Franskra daga og kjörið
fyrir fjölskylduna að skemmta sér þar.