Fréttablaðið - 11.06.2009, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 11.06.2009, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Dr. Gunna Í dag er fimmtudagurinn 11. júní, 162. dagur ársins. 3.02 13.27 23.54 1.56 13.12 0.32 Mannasaur er ævinlega fyrir peningum, því meiri saur, því meiri peningar. Þetta segir á draumaráðningasíðunni draumur. is og varla lýgur hún. Hvernig ætli standi á þessu? Eru draumarnir að segja okkur einhvern hyldjúp- an sannleika? Eru peningar, þegar betur er að gáð, bara jafn ómerki- legt fyrirbæri og úrgangurinn úr okkur? Er þá fólk sem lifir í stans- lausum eltingaleik við peninga í raun bara að veltast upp úr eigin saur? ÉG ÞYKIST ekki láta peninga stjórna lífi mínu enda óravíddir alheimsins of miklar til að hanga yfir svona smámáli. Líðan mín er ekki undir því komin hvort veskið sé tómt eða fullt, segi ég stundum til að stappa í mig stálinu. Þetta er vitanlega haugalygi. Ég finn nefnilega fyrir létti sem jaðrar við hamingju þegar ég get borgað alla reikningana mína, en fer andvaka á taugum ef endar ná ekki saman. Að auki fyllist ég heimskulegri bjartsýni þegar mig dreymir skít. Kaupi jafnvel lottómiða. MIG dreymdi mannasaur í vik- unni. Það voru allt gamlir skorpn- ir drjólar úr einhverjum öðrum. Ég réði ekki við neitt, haugur- inn óx mér yfir höfuð og ég sökk í hann. Mér varð svo mikið um að ég glaðvaknaði. Þá var ég viss um að draumurinn tengdist Icesave- skuldunum. Ég sleppti því alveg að kaupa lottómiða. ÞJÓÐIN er búin að vera með pen- inga á heilanum allt of lengi. Fyrst hvað þjóðin ætti mikið af þeim og nú hvað hún á lítið af þeim. Við erum að verða þrælanýlenda í skuldafjötrum, öskra þeir sem eru lengst leiddir. Ég neita að vera stanslaust með peninga á heilan- um. Ég er búinn að taka þá með- vituðu ákvörðun að taka ekki á mig kvíðahnút vegna Icesave- skuldanna. Ég tel mig hafa axlað samfélagslegan kvíðahnút í tvær vikur í október og fleiri hnúta læt ég ekki bjóða mér upp á. Fjandinn hafi það! FYRST við erum á salerninu langar mig að minna á gömlu tauþurrku kassana frá Fönn. Það er svo jákvæður boðskapur á þeim: Dragið hreint fyrir næsta mann. Ég vil búa í samfélagi sem hefur þennan boðskap að leiðarljósi. Á því klósetti sem nú er liðið undir lok var búið að stela tauþurrku- kassanum og líma upp miða í stað- inn: Við Hannes hirtum kassann. Farðu að safna fyrir nýjum. Með peninga á heilanum Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.