Fréttablaðið - 11.06.2009, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Í dag er fimmtudagurinn 11. júní,
162. dagur ársins.
3.02 13.27 23.54
1.56 13.12 0.32
Mannasaur er ævinlega fyrir peningum, því meiri saur,
því meiri peningar. Þetta segir á
draumaráðningasíðunni draumur.
is og varla lýgur hún. Hvernig ætli
standi á þessu? Eru draumarnir
að segja okkur einhvern hyldjúp-
an sannleika? Eru peningar, þegar
betur er að gáð, bara jafn ómerki-
legt fyrirbæri og úrgangurinn úr
okkur? Er þá fólk sem lifir í stans-
lausum eltingaleik við peninga í
raun bara að veltast upp úr eigin
saur?
ÉG ÞYKIST ekki láta peninga
stjórna lífi mínu enda óravíddir
alheimsins of miklar til að hanga
yfir svona smámáli. Líðan mín er
ekki undir því komin hvort veskið
sé tómt eða fullt, segi ég stundum
til að stappa í mig stálinu. Þetta
er vitanlega haugalygi. Ég finn
nefnilega fyrir létti sem jaðrar við
hamingju þegar ég get borgað alla
reikningana mína, en fer andvaka
á taugum ef endar ná ekki saman.
Að auki fyllist ég heimskulegri
bjartsýni þegar mig dreymir skít.
Kaupi jafnvel lottómiða.
MIG dreymdi mannasaur í vik-
unni. Það voru allt gamlir skorpn-
ir drjólar úr einhverjum öðrum.
Ég réði ekki við neitt, haugur-
inn óx mér yfir höfuð og ég sökk
í hann. Mér varð svo mikið um að
ég glaðvaknaði. Þá var ég viss um
að draumurinn tengdist Icesave-
skuldunum. Ég sleppti því alveg að
kaupa lottómiða.
ÞJÓÐIN er búin að vera með pen-
inga á heilanum allt of lengi. Fyrst
hvað þjóðin ætti mikið af þeim og
nú hvað hún á lítið af þeim. Við
erum að verða þrælanýlenda í
skuldafjötrum, öskra þeir sem
eru lengst leiddir. Ég neita að vera
stanslaust með peninga á heilan-
um. Ég er búinn að taka þá með-
vituðu ákvörðun að taka ekki á
mig kvíðahnút vegna Icesave-
skuldanna. Ég tel mig hafa axlað
samfélagslegan kvíðahnút í tvær
vikur í október og fleiri hnúta læt
ég ekki bjóða mér upp á. Fjandinn
hafi það!
FYRST við erum á salerninu
langar mig að minna á gömlu
tauþurrku kassana frá Fönn. Það
er svo jákvæður boðskapur á þeim:
Dragið hreint fyrir næsta mann.
Ég vil búa í samfélagi sem hefur
þennan boðskap að leiðarljósi. Á
því klósetti sem nú er liðið undir
lok var búið að stela tauþurrku-
kassanum og líma upp miða í stað-
inn: Við Hannes hirtum kassann.
Farðu að safna fyrir nýjum.
Með peninga á
heilanum
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%