Fréttablaðið - 11.06.2009, Side 24

Fréttablaðið - 11.06.2009, Side 24
24 11. júní 2009 FIMMTUDAGUR Vegna umfjöllunar um LifeWave-plástrana UMRÆÐAN David Schmidt skrifar um LifeWave-plástra Bréf þetta er svar við blaða-grein sem nýlega var birt í íslensku dagblaði þar sem ráð- ist var bæði að minni persónu og á LifeWave-fyrirtækið, aðallega með tilvitnun í ummæli Magnús- ar Jóhannssonar prófessors. Í fyrsta lagi er blaðagrein- in skrifuð á meinfýsinn hátt og eru engar sannanir lagðar fram á þeim fullyrðingum sem Magn- ús setur fram. Þess í stað veit- ir Magnús „álit“ sitt, sem ekki vegur þungt þegar kemur að vísindum. Eins og Magnús veit byggjast vísindi á staðreyndum, rannsóknum og fræðistörfum. Mér kemur á óvart að maður sem stærir sig af því að vera sjálf- skipað yfirvald í þeim efnum skuli virða að vettugi svo ófrá- víkjanlegt lögmál. Í öðru lagi hefur LifeWave nú verið starfandi í sjö ár. Hvernig gæti fyrirtæki starfað svo lengi án þess að bjóða upp á lögmæta vöru? Sannleikurinn er sá að vörur LifeWave hafa þau áhrif sem lýst er í auglýsingum. Lif- e Wave heldur reglulega fundi fyrir almenning um allan heim til að kynna IceWave-verkja- plástrana. Dæmigerð kynning fer þannig fram að einhverjum fund- argesta sem finnur fyrir verkjum er boðið að prófa vöruna og lýsa áhrifunum um leið og hann finn- ur þau. Dæmigerður árangur er 50% eða meiri linun verkja á tveim til þrem mínútum. Í þriðja lagi er ég sakaður um að vera loddari og að fara huldu höfði. Það er fjarri sanni. Yfirlit um starfsferil minn er aðgengi- legt á vefsíðu LifeWave og segi ég þar opinskátt frá reynslu minni og vinnu síðastliðin tólf ár fyrir bandaríska herinn. Einn- ig má nefna að forstjóri LifeWave-fyrirtækis- ins er hershöfðinginn Teddy Allen (sem kom- inn er á eftirlaun hjá hernum). Hann hefur verið sæmdur ótal heið- ursmerkjum sem segir sína sögu um störf hans fyrir herinn. Það er honum að þakka að Life- Wave-plástrarnir eru nú notaðir af hermönnum við störf í Bandaríkjunum. Allen hefði, sem þriggja stjörnu hers- höfðingi á eftirlaunum, getað valið að starfa hjá hvaða fyrir- tæki sem var, en hann valdi að starfa með LifeWave. Í fjórða lagi fór LifeWave að njóta eftirtektarverðrar vel- gengni í Bandaríkjunum árið 2004 þegar bandaríska ólymp- íuliðið í sundi notaði LifeWave- orkuplástrana í því skyni að bæta enn frekar árangur sinn. Eftir að hafa fylgst með árangri íþróttamannanna með Life Wave ákvað Richard Quick, sem var þjálfari bandaríska ólympíuliðs- ins í sundi á sex Ólympíuleikum, að ganga til liðs við LifeWave- fyrirtækið. Quick er einn virt- asti sundþjálfari heims. Maður með hans bakgrunn getur valið að starfa hjá hvaða fyrirtæki sem er. Hann hefur valið að vinna með LifeWave. Í fimmta lagi hefur LifeWave unnið staðfastlega að því síðast- liðin sjö ár að sanna gildi vör- unnar með bæði klínískum og vísindalegum rannsóknum. Við höfum leitast við að eiga sam- starf í rannsóknum eingöngu við virta sérfræðinga. Sem dæmi má nefna að dr. Dean Clark, lækn- ir bandaríska ólympíuliðsins í sundi og viðurkenndur sérfræð- ingur á vettvangi læknisfræði- legra innrauðra myndgerða, hefur stjórnað klínískum rann- sóknum á Life Wave-plástrunum síðastliðin fjögur ár. Dr. Clark hefur kynnst af eigin raun gildi Lif- eWave og hann kynnti LifeWave fyrir íþrótta- mönnum og læknum á Ólympíuleikunum í Pek- ing. Dr. Clark gæti valið úr fyrirtækjum til að starfa hjá en hann hefur valið að vinna með Life- Wave. LifeWave heldur ráð- stefnu í París laugardaginn 20. júní. Hér með býð ég Magnúsi Jóhannssyni að eiga fund með mér, dr. Dean Clark og dr. Steven Haltiwanger. Magnús mun fá tækifæri til að ræða við fólk- ið á bak við LifeWave og kynna sér þær rannsóknir sem gerð- ar hafa verið. Ég býð Magnúsi að endurvinna klínískar rann- sóknir okkar og greina frá nið- urstöðunni í vísindaritum. Eins og hann veit er það eðlilegur far- vegur. Til viðbótar eru nokkrar stað- reyndir: 1) LifeWave-plástrar eru skráð söluvara á Íslandi lögum sam- kvæmt sem tæki til punktaþrýst- ings (e. acupressure). 2) IceWave-verkjaplástrar eru viðurkennt meðferðartæki á Íslandi. 3) Í Bandaríkjunum eru Life- Wave-plástrarnir skrásettir hjá Lyfja- og matvælaeftirlitinu (United States Food and Drug Administration). 4) LifeWave-plástrarnir virka sem tæki til punktaþrýstings (sem útskýrir hvers vegna fylg- ir þeim „perla“ til að beita mild- um þrýstingi á húðina meðan á notkun stendur). 5) Áætlaður fjöldi þeirra sem nýta sér punktaþrýsting/nála- stungur sem fyrsta kost til að vernda heilsuna er 1,8 milljarð- ar um allan heim. 6) Punktaþrýstingur/nála- stungur eiga sér 5.000 ára sögu sem einkennist af öryggi og góðum árangri. 7) Þótt aðferðir við punkta- þrýsting hafi verið umdeildar viðurkenna heilbrigðisstofnanir um allan heim að punktaþrýst- ingur sé heilsubætandi meðferð sem nær fram sértækum áhrif- um. 8) Þúsundir klínískra rann- sókna sýna fram á gildi punkt- aþrýstings til að ná árangri á borð við aukna orku, minnkandi verki, bættan svefn, stjórn á matarlyst og hægari öldrun. Sjá má niðurstöður nokkurra rann- sókna á sviði punktaþrýstings á vefsíðu okkar, http://www.lifew- ave.com/research.asp. 9) Magnús Jóhannsson segir að engar sannanir séu fyrir virkni plástranna. Klínískar rannsóknir á vefsíðu Life Wave (http://www.lifewave.com/res- earch.asp) sýna fram á bæði öryggi og virkni Life Wave- plástranna. Þess má geta að hægt er að greina lífræn raf- boð plástranna á örfáum mínút- um með margs konar þekktum aðferðum við greiningartækni svo sem Acuscope, EIS, innrauð- um myndum og HRV. 10) LifeWave hefur starfað frá júlí 2002. Hundruð þúsunda manna um allan heim hafa síðan þá kynnst af eigin raun kostum LifeWave-plástranna. Á kynning- arfundum um LifeWave-verkja- plástrana (IceWave) er varan próf- uð á einhverjum fundargesti sem vill taka þátt. Dæmigerður árang- ur er 50% til 100% linun verkja á tveim til þrem mínútum. 11) Eins og sjá má á vefsíðu LifeWave nota mörg hundr- uð íþróttamenn um allan heim, atvinnumenn og ólympíufarar, LifeWave-plástrana vegna þess að þeir hafa komist að því að LifeWave gefur þeim forskot án skaðlegra lyfja eða örvandi efna. http://www.lifewave.com/inthen- ews.asp 12) LifeWave hefur verið rann- sakað og prófað við raunveru- legar aðstæður af virtum aðil- um eins og Richard Quick sem þjálfaði bandaríska ólympíuliðið í sundi fyrir sex Ólympíuleika, og Dean Clark, lækni banda- ríska ólympíuliðsins. Vinsam- legast skoðið vefsíðu LifeWave til að afla frekari upplýsinga. 13) Haft var eftir Dr. Jóhanns- syni í greininni að fræðimenn í Bretlandi og Bandaríkjunum hafi skoðað þetta og að niður- staða þeirra væri sú að plástr- arnir væru blekking. Eins og Dr. Jóhannsson veit byggjast vísindi á rannsóknum og fræði- störfum. Gott væri ef hann vildi nafngreina vísindamennina sem rannsakað hafa LifeWave- plástrana og leggja fram afrit af klínískum rannsóknum þeirra. Allar rannsóknir LifeWave eru aðgengilegar á vefsíðunni www. LifeWave.com/research.asp. 14) Ein staðhæfingin í grein- inni er að David Schmidt vilji ekki sýna ferilskrá sína. Stað- hæfing þessi er röng þar sem upplýsingar um David Schmidt má finna á vefsíðu fyrirtækis- ins, http://www.lifewave.com/ leadership.asp. Að auki var David Schmidt á síðasta ári einn þeirra vísindamanna sem fjallað var um í Breakthrough, metsölu- bók New York Times. 15) Dr. Jóhannsson segir að aldrei hafi verið birtar rann- sóknarniðurstöður fyrir utan þær sem gerðar voru við tvo skóla. Þessi staðhæfing er einnig röng. Auðvelt er að nálgast rann- sóknir sem gerðar hafa verið á LifeWave, http://www.lifewa- ve.com/research.asp, á vefsíðu fyrirtækisins. Höfundur er aðalframkvæmda- stjóri LifeWave. DAVID SCHIMDT Vei yður, þér hræsnarar UMRÆÐA Jón Baldvin Hanni- balsson skrifar um IceSave-málið Hvað svo sem mönnum finnst um samningsniður- stöðuna í Icesave- málinu, þá er eitt víst: Stjórnarandstöðu- flokkarnir, Sjálfstæð- is- og Framsóknarflokkurinn, ættu síst af öllum að þykjast þess umkomnir að gagnrýna núverandi ríkisstjórn, hvað þá heldur núverandi fjármála- ráðherra, Steingrím J. Sig- fússon, fyrir að hafa haldið illa á málum eða fyrir að hafa lagt drápsklyfjar á þjóðina að ósekju. Þegar menn gera upp hug sinn um samningsniðurstöðuna er nauðsynlegt að hafa í huga eftirfarandi aðalatriði málsins: Ábyrgð ríkisins 1. Hver var ábyrgð ríkisins lögum samkvæmt? Með neyðar- lögunum sem samþykkt voru á Alþingi 6. október, 2008, tók ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, undir for- ystu Geirs H. Haarde og Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur, fulla og ótakmarkaða ábyrgð á sparifjárinnistæðum íslenskra banka. Þetta var gert til að afstýra „run on the banks“, þ.e. til að koma í veg fyrir að sparifjáreigendur myndu tæma bankana. Þessi lög giltu um alla íslensku bankana og þ.m.t. útibú þeirra, hvar svo sem þau voru staðsett. Hafi nokkur vafi leikið á um ábyrgð ríkisins á sparifjárinnistæðum í íslenskum bönkum áður, þá var þeim vafa eytt að fullu og öllu með neyðar- lögunum. Ómarktæk lagaskýring 2. Jú, en hafa ekki nafn- greindir íslenskir lög- fræðingar fullyrt, að skv. EES-samningnum takmarkist ábyrgð rík- isins við þá upphæð sem er að finna í trygginga- sjóði innistæðueigenda? Þessi lagaskýring er vægast sagt ómarktæk, þ.e.a.s. þeir aðilar fyrirfinnast ekki innanlands né utan, sem taka mark á henni. Sá dómstóll er heldur ekki fyrirfinnanlegur, sem myndi taka mark á svona rökstuðn- ingi. Ástæðurnar eru marg- ar, en þessar helstar: Reglur Evrópusambandsins (sem einn- ig gilda á EES-svæðinu) kveða á um innistæðutryggingu spari- fjáreigenda að upphæð 20.887 evrur. Einstök aðildarríki mega ganga lengra, en þetta er lág- mark. Sú ófrávíkjanlega grundvall- arregla gildir innan Evrópu- sambandsins, að óheimilt er með öllu að mismuna einstakl- ingum eða lögaðilum á grund- velli þjóðernis. Á þessu leikur ekki minnsti vafi. Að settum neyðarlögum var það því frá upphafi hafið yfir allan vafa, að íslenska ríkið væri ábyrgt fyrir sparifjártryggingu íslenskra banka, hvar svo sem þeir væru starfandi. Það hefur aldrei leik- ið nokkur vafi á þessu grund- vallaratriði. Forstöðumönnum Landsbankans og íslenskum stjórnvöldum var þetta full- komlega ljóst frá upphafi. „Ófyrirgefanleg“ ákvörðun 3. Hvernig lítur málið út, ef við reynum að setja okkur í fótspor breskra og hollenskra spari- fjáreigenda? Þá er ljóst að fórn- arlömbin í málinu eru breskir og hollenskir sparifjáreigend- ur og íslenskir skattgreiðendur. Skúrkarnir í málinu eru ótví- rætt bankastjórar og banka- ráðsformenn Landsbankans. Ólafur Arnarson hagfræðingur, höfundur bókarinnar Sofandi að feigðarósi, segir um þetta mál eftirfarandi: „Geir H. Haarde sagði í sam- tali við undirbúning bókarinn- ar, að fyrirkomulag Ice save- reikninganna og sú töf sem varð á að koma þeim yfir í dótt- urfélag, sé eitthvert mesta böl, sem íslensk stjórnvöld hafa nokkurn tíma þurft að glíma við. Það hafi verið ófyrirgef- anlegt af hálfu Landsbankans að opna Icesave-reikninga sína í útibúi í Bretlandi. Það hafi ekki verið tilviljun, heldur hafi að baki legið fyrirætlanir um að geta notað þá peninga, sem kæmu inn í Icesave, rétt eins og þeir kæmu úr íslensku útibúi.“ Þeir menn sem tóku þessa „ófyrirgefanlegu“ ákvörðun að mati fyrrverandi forsætisráð- herra og formanns Sjálfstæð- isflokksins eða bera ábyrgð á henni, heita: Halldór J. Kristj- ánsson og Sigurjón Þ. Árna- son, bankastjórar; og Björgólf- ur Guðmundsson og Kjartan Gunnarsson, formaður og vara- formaður bankaráðsins. Léleg samningsstaða 4. Hvers vegna hafa stjórn- völd ekki lagt öll spilin á borðið í þessu máli? Ábyrgð ríkisins í formi innistæðutrygging- ar vegna Icesave að upphæð 650 milljarðar króna lá fyrir, þegar á næstu dögum eftir hrun Landsbankans. Upphæðin hefur ekkert breyst. Hvað hefur náðst fram með átta mánaða samn- ingaþófi? Við mat á því ber að hafa í huga, að ríkisstjórn Geirs Haarde og Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur hafði sam- þykkt ábyrgð íslenska ríkisins á sparifjárinnistæðum hollenska Icesave og fallist á lántöku í því skyni með 6,7% vöxtum til tíu ára. Þetta spillti samningsstöðu Íslands stórlega. Það sem hefur áunnist 5. Með samningsniðurstöðunni nú hefur eftirfarandi áunnist: Lánstíminn verður 15 ár; sjö fyrstu árin verða afborgun- arlaus; á þessu árabili lækkar höfuðstóllinn eftir því sem eignum Landsbankans í Bret- landi verður komið í verð; á meðan ber höfuðstóllinn 5,5% vexti. Væntanlega má endur- fjármagna eftirstöðvarnar á árunum 2016 til 2024 á hag- stæðari kjörum. Það er áhætta sem Íslendingar taka og enginn kann að meta af raunsæi á þess- ari stundu. Veigamiklar spurningar 6. Eftir standa veigamiklar spurningar, sem stjórn- völd verða að skýra betur fyrir almenningi. Seðlabank- ar heimsins hafa í ríkjandi kreppuástandi keppst við að lækka stýrivexti. Stýrivextir Bank of England eru að nálg- ast núllið. Útistandandi eign- ir Landsbankans (lánasöfn?) í Bretlandi, þau sem eru vaxta- berandi, bera væntanlega vexti í samræmi við þetta. Hvers vegna náðust þá ekki fram lægri vextir á höfuðstól láns- ins, þegar þess er líka gætt, að lánið ber ríkisábyrgð? Láns- hæfismat íslenska ríkisins er að vísu ekki beysið núna, en við erum að tala um afborg- anir eftir 8-15 ár. Ber að skilja þetta vaxtastig sem vantraust á framtíðarhorfur Íslands? Og varasamt fordæmi? Er ekki ástæða til að gera nánari grein fyrir áætluðu eignaverðmæti Landsbankans? Hversu raunsætt er áhættu- matið sem að baki býr um að eignir geti að lokum stað- ið undir allt að 90% þessara skuldbindinga? Ef rétt er að Bretar hafi heitið stuðningi við öflun upplýsinga um faldar eignir í skattaparadísum undir breskri vernd í Karíbahafi, var þá ekki líka ástæða til að leita aðstoðar breskra yfirvalda við að leggja hald á eignir eigenda Landsbankans í öðrum félög- um, sem skráð eru í breskri lögsögu? Íslenskir skattgreið- endur eiga kröfu á að fá svör við spurningum af þessu tagi. Höfundur var fjármálaráðherra árin 1987-1988. Sjá ítarlegar á heimasíðunni jbh.is JÓN BALDVIN HANNIBALSSON Að settum neyðarlögum var það því frá upphafi hafið yfir allan vafa, að íslenska ríkið væri ábyrgt fyrir sparifjár- tryggingu íslenskra banka, hvar svo sem þeir væru starfandi. Það hefur aldrei leikið nokkur vafi á þessu grundvallaratriði.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.