Fréttablaðið - 11.06.2009, Síða 2
2 11. júní 2009 FIMMTUDAGUR
Guðríður, þarf að taka bók-
haldslyklavöldin af Gunnari?
„Já, það er bókað mál.“
Rannsókn endurskoðunarfyrirtækis á
viðskiptum Kópavogsbæjar við fyrirtæki
í eigu dóttur Gunnars Birgissonar
bæjarstjóra leiddi í ljós að reikningar hafi
oft verið bókaðir á ranga bókhaldslykla.
Guðríður Arnardóttir er bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar.
HOLLAND Stjórn hollenska fylkis-
ins Norður-Hollands sagði af sér
í heilu lagi í gærdag. Ástæðan er
tap fylkisins af fjárfestingum,
aðallega vegna Icesave-málsins.
Fylkið tapaði alls 98 milljón-
um evra, þar af voru 78 milljón-
ir í Icesave og 20 milljónir vegna
falls Lehman Brothers.
Rannsóknarnefnd komst að
þeirri niðurstöðu að fylkið hefði
ekki farið eftir sínum eigin fjár-
festingarreglum og því ákvað
stjórnin að segja af sér. Þetta
mun vera í fyrsta skipti sem
fylkisstjórn segir af sér í heilu
lagi. - þeb
Norður-Holland tapaði miklu:
Fylkisstjórn
sagði af sér
vegna Icesave
KÓPAVOGUR Framtíð meirihluta
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks í Kópavogi veltur á því hvort
Gunnar Birgisson fæst til að hætta
sem bæjarstjóri. Ómar Stefánsson,
bæjarfulltrúi Framsóknarflokks,
tjáði Gunnari þetta á fundi þeirra í
gærmorgun, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins.
Heimildir herma að framsóknar-
menn í Kópavogi séu tilbúnir til að
sættast á þá niðurstöðu að Gunn-
ar standi upp úr bæjarstjórastóln-
um fyrir annan fulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins en sitji þó áfram sem
bæjarfulltrúi.
Gunnar hefur hins vegar þver-
tekið fyrir að það sé möguleiki
og því eru miklar líkur á að upp
úr samstarfinu slitni. Í samtali
við Fréttablaðið í gærkvöldi vildi
Gunnar ekki gefa út neinar yfir-
lýsingar en sagðist opinn fyrir því
að setja á fót viðræðuhóp um málið
milli stjórnarflokkanna.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að aðrir bæjarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins séu alls ekki ánægðir
með tugmilljónaviðskipti bæjarins
við dóttur Gunnars frekar en aðrir
bæjarfulltrúar. Niðurstöðurnar í
skýrslu Deloitte frá því á þriðjudag
skipti þar ekki höfuðmáli, enda þyki
hún hroðvirknislega unnin. Það sé
einfaldlega ekki siðferðislega rétt
að dóttir bæjarstjórans vinni í svo
ríkum mæli fyrir bæinn.
Samherjar Gunnars í bæjar-
stjórnarflokknum telja rétt að hann
víki til að halda lífi í meirihlutan-
um, samkvæmt heimildum blaðs-
ins. Hann sé hins vegar kjörinn
fulltrúi og verði ekki vikið úr bæj-
arstjórn gegn vilja sínum. Auk þess
hangi meirihlutinn á einum manni,
sem þýðir að Gunnar getur látið
af stuðningi við hann ef ákveðið
verður að reka hann úr starfi bæj-
arstjóra. Boltinn sé því alfarið hjá
Gunnari sjálfum.
Einn bæjarfulltrúa flokksins orð-
aði það þannig í samtali við blaðið
að það væri djöfullegt ef Gunnar
myndi taka sína persónu fram yfir
flokkinn.
Fyrirhugað er að fulltrúaráð
Sjálfstæðisflokksins fundi eftir
helgi. Heimildarmaður blaðsins
úr Sjálfstæðisflokknum segir að
Gunnar hafi komið sínu fólki vel
fyrir í fulltrúaráðinu og eigi vísan
stuðning þar.
Fulltrúaráð Framsóknarflokks-
ins í bænum mun hittast á fundi í
dag. „Við munum mæla fyrir því
að Sjálfstæðisflokknum verði gefið
ráðrúm til að leggja fram lausn, sem
við munum síðan taka afstöðu til,“
segir Gestur Valgarðsson, formað-
ur framsóknarfélagsins í bænum.
Engin tímamörk verði gefin fyrir
það andrými en ljóst sé að lausn
málsins þolir ekki langa bið.
stigur@frettabladid.is
Samherjar Gunnars
vilja að hann hætti
Meirihlutinn í Kópavogi stendur á brauðfótum. Framsóknarmenn vilja að
Gunnar Birgisson víki úr bæjarstjórastólnum, eigi samstarfið að lifa. Samherjar
Gunnars telja að hann eigi að taka hagsmuni flokksins fram yfir sína eigin.
BANDARÍKIN, AP Bandaríkin, Bretland, Frakkland,
Kína, Rússland, Japan og Suður-Kórea hafa komið
sér saman um tillögur að hertari refsiaðgerðum
gagnvart Norður-Kóreu í tengslum við kjarnorkutil-
raunir hinna síðastnefndu. Þetta er gert til að greiða
leiðina fyrir því að fá samþykki Öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna sem fyrst.
Tillagan gerir ráð fyrir því að banna vopnasölu til
Norður-Kóreu, takmarka fjármálaviðskipti lands-
ins við umheiminn og frysta eignir fyrirtækja. Þá
verða heimildir til að skoða skip á leið frá og til
landsins rýmkaðar verulega. Í tillögunni kemur
einnig fram að Öryggisráðið fordæmi kjarnorkutil-
raunir Norður-Kóreu og krefjist þess að þeim verði
hætt, landið fari eftir alþjóðasamningum um kjarn-
orkuafvopnun og leyfi Sameinuðu þjóðunum að
framkvæma kjarnorkuskoðanir í landinu.
Fyrri refsiaðgerðir hafa haft lítil áhrif á fyrirætl-
anir Norður-Kóreu. Talið er að á næstu vikum verði
ráðist í frekari tilraunir. Dagblað í Norður-Kóreu
hefur greint frá því að landið muni líta á hvers kyns
refsiaðgerðir af hálfu Öryggisráðsins sem stríðsyfir-
lýsingu og muni bregðast hart við öllu slíku. - þeb
Stórveldi koma sér saman um tillögur að aðgerðum gegn Norður-Kóreu:
Frekari refsiaðgerðum beitt
SUÐUR-KÓREA Wi Sung-lac, embættismaður í Suður-Kóreu,
fór til Kína til að ræða við utanríkisráðherra landsins um kjarn-
orkumál Norður-Kóreu. Löndin eru meðal þeirra sem settu
fram tillögur um málið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FLÓTTAMENN „Þarna kemur fram að
við erum að haga þessum málum
á skynsaman og yfirvegaðan hátt
og eins og hin Norðurlöndin eru að
gera,“ segir Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, formaður allsherjar-
nefndar.
Nefndin fjallaði nýlega um
skýrslu dómsmálaráðuneytisins
um stöðu hælisleitenda í Grikk-
landi. Í henni kemur fram að
„alvarlegir annmarkar“ séu á
meðferð hælisumsókna þar og
að Flóttamannastofnun Samein-
uðu þjóðanna leggist enn gegn því
að flóttamenn séu sendir aftur
til Grikklands. Hins vegar hafi
aðstæður í Grikklandi skánað og í
flestum tilfellum sendi Norður-
löndin aftur flóttamenn til Grikk-
lands. Lagt er til að svo verði einn-
ig gert á Íslandi, en að hvert tilfelli
verði metið fyrir sig.
„Miðað við það sem ég hef séð
af aðstæðum suður í Grikklandi
kemur mér á óvart að menn ætli
að fara þessa leið,“ segir Arnar
Þór Jónsson, lögmaður sex hælis-
leitenda, sem segja líf sitt í hættu í
Grikklandi. Þeir hafa flestir verið
hér í meira en hálft ár.
„Og í ljósi þess hve lengi umbjóð-
endur mínir hafa verið hér á landi
og hvað þetta mál hefur tekið
langan tíma væri ábyrgðarhluti
að senda þau aftur til Grikklands.
Það er alls óvíst að Grikkir telji sig
bera ábyrgð á þeim,“ segir Arnar
Þór.
Skýrslan var unnin að frum-
kvæði Rögnu Árnadóttur dóms-
málaráðherra. - kóþ
Skýrsla dómsmálaráðuneytis um stöðu hælisleitenda og Dyflinnarreglugerðina:
Sendum áfram til Grikklands
STEINUNN VALDÍS
ÓSKARSDÓTTIR
RAGNA
ÁRNADÓTTIR
EVRÓPUMÁL Evrópusamtökin hafa
valið Benedikt Jóhannesson,
framkvæmda-
stjóra og rit-
stjóra, Evrópu-
mann ársins
2009. Bene-
dikt var virkur
í umræðunni
fyrir alþingis-
kosningarnar
í apríl og tal-
aði fyrir því
að Sjálfstæð-
isflokkurinn
tæki upp þá stefnu að ganga ætti
í Evrópusambandið.
„Hann hefur sýnt þor með því
að ganga gegn ríkjandi öflum
í sínum flokki og ekki þá verið
að huga að eigin frama í þeim
efnum,“ sagði Anna Kristinsdótt-
ir, varaformaður samtakanna,
við verðlaunaafhendinguna.
Stjórn samtakanna var ein-
róma í vali sínu. - sh
Evrópumaður ársins:
Benedikt talaði
gegn flokknum
BENEDIKT
JÓHANNESSON
MENNTUN Aldrei hafa fleiri inn-
ritað sig í Háskóla Íslands, en
4.761 hefur skráð sig inn á næstu
önn en það eru um 800 fleiri en
skráðu sig á sama tíma í fyrra.
„Það er líka ánægjulegt að segja
frá því að það er metaðsókn í
lagadeild,“ segir Kristín Jónas-
dóttir, skrifstofustjóri á nem-
endaskrá. „Umsækjendur þar
núna eru 441 sem er aukning um
tæp hundrað manns. Þar að auki
er kynjaskiptingin nokkuð jöfn
sem er einnig afa ánægjulegt.“
Umsóknarfrestur rann út 5.
júní síðastliðinn. - jse
Nemendaskráningu lokið:
Metaðsókn í
Háskóla Íslands
Á NEMENDASKRÁ HÁSKÓLA ÍSLANDS
Kristín fer yfir nemendafjöldann og
Vilborg Norðdahl fylgist með.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
WASHINGTON, AP Matvæla- og
lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur
gefið leyfi til framleiðslu lyfsins
Palladia, sem er fyrsta lyfið sem
ætlað er að meðhöndla krabba-
mein í hundum. Þar til nú hafa
öll krabbameinslyf sem notuð
hafa verið í dýralækningum verið
þróuð fyrir mannfólk. Lög vestra
heimila dýralæknum að nýta slík
lyf undir ströngu eftirliti.
Palladia er framleitt af fyrir-
tækinu Pfizer Animal Health.
Lyfið verður notað til að með-
höndla ákveðna tegund af krabba-
meini sem veldur einu af hverj-
um fimm tilfellum af húðæxlum í
hundum. - kg
Nýjung í Bandaríkjunum:
Krabbameinslyf
fyrir hunda
Karlmaður hefur verið dæmdur í fjög-
urra mánaða fangelsi, skilorðsbundið,
fyrir að slá mann í andlitið í Þorláks-
höfn. Hann var jafnframt dæmdur til
að greiða fórnarlambinu rúmar 211
þúsund krónur í skaðabætur.
DÓMSTÓLAR
Skaðabætur og skilorð
Í skýrslu Deloitte kemur fram að lög um opinber innkaup hafi hugsanlega
verið brotin í viðskiptum bæjarins við Frjálsa miðlun, fyrirtæki í eigu dóttur
Gunnars, þar sem ekki fór fram útboð vegna verkanna.
Ritari Kópavogsbæjar sendi Deloitte bréf í gær vegna málsins, þar sem
fullyrt var að endurskoðunarfyrirtækið hefði farið rangt með, enda næðu
umrædd lagaákvæði um opinber innkaup ekki til sveitarfélaga.
Fulltrúi Deloitte sendi svar um hæl, sagðist standa við það sem fram
kemur í skýrslunni, og boðaði viðauka við skýrsluna með viðbótarrökstuðn-
ingi í dag.
LÖGBROT EÐA EKKI?
FALLVALTUR Gunnar Birgisson hefur legið undir ámæli eftir að viðskipti bæjarins
við dóttur hans komust í umræðuna. FRÉTTABLAÐIÐ / HARI
SPURNING DAGSINS