Fréttablaðið - 11.06.2009, Page 30
11. JÚNÍ 2009 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● landið mitt austurland
Reiðtúrar um dali, firði og
fjöll í fylgd staðkunnugra er
sérgrein hins nýja fyrirtækis
Skorrahesta í Norðfirði. Heima-
gisting á Skorrastað er líka í
boði. Húsfreyja þar er Theó-
dóra Alfreðsdóttir.
„Við eigum góða hesta og erum
farin að taka fólk í prufureiðtúra
en fyrirtækið heldur ekki úr hlaði
af alvöru fyrr en í júlí. Þá verðum
við með dagsferðir hér inn í dalina
og yfir í Hellisfjörð og ein sex daga
ferð er í bígerð sem endar á Neista-
flugi í Neskaupstað. Svo erum við
með gistingu líka. Þetta er allt í
burðarliðnum.“ Þannig lýsir Theó-
dóra í stuttu máli því sem í bígerð
er hjá fjölskyldunni á Skorrastað á
sviði ferðaþjónustu. Theódóra er
líka handverkskona og hestar sem
hún mótar úr leir hafa verið vin-
sæl söluvara á fjórðungs- og lands-
mótum.
Spurð betur út í leiðirnar lýsir
Theódóra reiðgötum meðfram
veginum og svo ósnortinni náttúru
í Seldal og Fannadal, Gæsadal og
Hólahólum. „Þar er fagurt landslag
og ofan af Hólafjalli er vítt útsýni
yfir fjörðinn,“ segir hún. Hún nefn-
ir einnig Oddsdal sem riðið er um
þegar farið er í eyðifjörðinn Hell-
isfjörð. „Þaðan er riðið fyrir nesið
inn í Norðfjörð aftur um fjár-
götu,“ lýsir hún.
En eru ferðir um hin aust-
firsku fjöll ekki erfiðar hest-
um? „Við eigum duglega hesta
sem eru kunnugir fjöllunum.
Maðurinn minn, Þórður Júlí-
usson, er líka vanur að smala
þau og þekkir bestu leiðirn-
ar,“ svarar hún og kveðst þora
að mæla með honum sem leið-
sögumanni því hann sé heima-
alinn líffræðingur og kennari og
fróður um alla skapaða hluti. Sex
daga ferðin er í Vöðlavík, Krossa-
nes og Viðfjörð. „Þá verður jafnvel
riðið út á Mónesið en þaðan sést
Gerpir og Sandvík,“ segir Theó-
dóra. „Mjög tilkomumikið lands-
lag.“ - gun
Sýningar tengdar verkefninu
Söguslóð á Suðausturlandi voru
opnaðar um síðustu helgi í Löngu-
búð á Djúpavogi og í Þórbergs-
setri í Suðursveit.
Söguslóð á Suðausturlandi
myndar slóð frá Berufirði út á
Skeiðarársand. „Hægt er að byrja
á hvorum enda sem er. Á Djúpa-
vogi byrjar slóðin á svæðistengdri
sýningu í Löngubúð,“ segir Brynd-
ís Reynisdóttir, ferða- og menn-
ingarmálafulltrúi Djúpavogs-
hrepps. „ Á leiðinni yfir á Skeið-
arársand eru reglulega skilti með
upplýsingum um sögu svæðisins.
Á Þórbergssetri er svo sambæri-
leg sýning og í Löngubúð.
Við vildum gera meira úr
menningartengdri ferðaþjónustu
á svæðinu og koma þekkingunni
áfram til heimamanna og ferða-
manna til að tryggja að hún glat-
ist ekki,“ útskýrir Bryndís.
Sýningarnar verða opnar í
sumar og eitthvað fram á haust.
- mmf
Þekkingu komið til skila
Þórður á Skorrastað er þaulkunnugur austfirsku fjöllunum og hestarnir hans líka.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Sprett úr spori í Vöðlavík. MYND/ÚR EINKASAFNI
Útreiðar um austustu
byggðir þessa lands
Í Löngubúð verður sýning
tengd verkefninu Söguslóð
á Suðausturlandi í sumar.
M
YN
D
/Ú
R
EI
N
KA
SA
FN
I
Theódóra hús-
freyja og Sleipnir
frá Leysingja-
stöðum.
● FARIÐ UM SKRIÐUR, ÁR OG LÆKI Hið árlega Barðsnes-
hlaup fer fram laugardaginn 1. ágúst næstkomandi í tengslum við há-
tíðina Neistaflug í Neskaupstað.
Barðsneshlaupið er 27 kílómetra víðavangshlaup sem nú er haldið í
þrettánda sinn. Þeir sem ekki vilja hlaupa 27 kílómetra langt hlaup geta
tekið þátt í svokölluðu Hellisfjarðarhlaupi sem er hálft Barðsneshlaup,
þrettán kílómetrar. Hellisfjarðarhlaupið er haldið í þriðja sinn í ár.
Barðsneshlaupið liggur um þrjá firði; Víðifjörð, Hellisfjörð og Norð-
fjörð. Hellisfjarðarhlaupið hefst innst í Hellisfirði og hlaupafólk fer í raun
seinni helming Barðsneshlaupsins. Þátttakendur hlaupa eftir rollu-
götum, skriðum, gömlum sinutúnum, yfir ár og læki og þjóðveginn
seinasta spölinn inn í Neskaupstað þar sem hátíðarhöld í tengslum við
Neistaflug í Neskaupstað verða í fullum gangi.
● FRUMLEG SÝNING Í
HÖNDUM FATAHÖNN-
UÐAR Forvitnileg sýning verð-
ur opnuð á þjóðhátíðardag-
inn, 17. júní, í Minjasafni Austurl-
ands. Þemað er ást, rómantík
og kynlíf en sýningarstjórinn,
Ríkey Kristjánsdótir, er vís með
að setja upp skemmtilega sýn-
ingu. Hún er útskrifaður fata-
hönnuður og var til að mynda
tilnefnd til Grímuverðlaunanna
fyrir búninga í sýningunni Gyðj-
unni í vélinni. Hún hefur einn-
ig rekið búð á Seyðisfirði og rak
um skeið Hótel Ölduna.
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...