Fréttablaðið - 11.06.2009, Qupperneq 42
11. júní 2009 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
ENSKI LEIKARINN OG GRÍNIST-
INN HUGH LAURIE ER FIMM-
TUGUR.
„Pabbi gaf mér fyrsta hjólið
mitt þegar ég var sextán
ára. Ég datt fljótlega af því
og var í hjólastól í marg-
ar vikur. Ég hef ekki dottið
síðan.“
Hugh Laurie er einna þekkt-
astur fyrir hlutverk sín í Jee-
ves og Wooster og Blackadd-
er, en auk þess hefur hann
slegið í gegn sem dr. House.
Formaður SOS-barnaþorpanna á Íslandi, Ulla Magnús-
son, var á dögunum sæmd heiðursorðu alþjóðasamtakanna
SOS-Kinderdorf International fyrir framúrskarandi störf í
þágu samtakanna en um æðstu viðurkenningu þeirra er að
ræða. „Þetta kom mér ánægjulega á óvart en vissulega er
það mikil viðurkenning fyrir okkur sem að þessu störfum
að sjá að þeir kunna að meta okkur þarna úti,“ segir hún og
brosir. „Fólk hefur tekið okkur opnum örmum og þess vegna
hefur starfið gengið vel og er verið að þakka okkur núna með
þessari viðurkenningu.“
Alþjóðaforseti samtakanna, Helmut Kutin, veitti Ullu
viðurkenninguna á afmælishátíð SOS-barnaþorpanna í Ráð-
húsi Reykjavíkur síðastliðna helgi en samtökin hafa starf-
að hér á landi í 20 ár og alþjóðasamtökin fagna 60 ára af-
mæli um þessar mundir. „Ég hóf í raun starfsemina hér á
landi en ég kynntist þessu í desember 1988 og fyrsta starfs-
árið var 1989. Fyrstu árin var allt unnið í sjálfboðavinnu.
Þegar ég fór út og skoðaði starf samtakanna sá ég að það var
mjög gott og unnið á faglegan máta,“ útskýrir Ulla og held-
ur áfram: „Upphafið að mínu starfi var hálfgerð tilviljun
en hópur frá SOS í Danmörku kom hingað til lands og voru
þeir þá farnir að skrá nokkra Íslendinga sem styrktarfor-
eldra. Þeim þótti því ástæða til að koma þessu af stað hér
og í framhaldi var haft samband við mig. Á endanum tók ég
starfið að mér,“ segir hún og viðurkennir að starfið sé líka
eins konar áhugamál. „Þetta er virkilega gefandi starf og
svo lengi sem þörf er fyrir mig er ég til taks.“
Til að byrja með höfðu menn ákveðnar efasemdir þegar
litla Ísland vildi taka þátt í starfsemi samtakanna en fljót-
lega kom í ljós að þær áhyggjur voru óþarfar, enda njóta
nú þúsundir barna stuðnings Íslendinga. „Íslendingar voru
fljótir til þegar þeir komu auga á þennan möguleika og hafa
alltaf verið margir sem styrkja,“ segir Ulla en í fyrra sendu
íslensku SOS-samtökin um 154 milljónir til stuðnings. SOS-
samtökin eru einna stærst þeirra samtaka er sjá um að út-
vega munaðarlausum og yfirgefnum börnum um heim allan
heimili og móður. Fjölmörg vestræn ríki afla styrktarfor-
eldra fyrir börnin í barnaþorpum SOS en Ísland hefur lengi
verið með eitt hæsta hlutfall styrktarforeldra þessa ríkja.
„Við erum nú með um 5.300 styrktaraðila og erum að fá nýja
á hverjum degi, þrátt fyrir ástandið. Þegar Dalai Lama kom
hingað til lands bættust einhverjir í hópinn en við erum lík-
lega þau einu sem eru með barnaþorp í Lhasa í Tíbet og svo
eru mörg tíbesk flóttabörn á Norður-Indlandi,“ segir hún en
bætir við að einhverjir hafi þó neyðst til að hætta að styrkja
vegna kreppunnar. „Upphæðin er 3.000 krónur á mánuði, en
við erum með tæplega 500 barnaþorp í 128 löndum og í þeim
búa nú um 70.000 börn,“ segir Ulla en samtökin eru fyrst og
fremst byggð upp á stuðningi styrktarforeldra og á frjálsum
framlögum. „Viðurkenningin staðfestir okkar góða starf og
styrkir trú og traust okkar stuðningsaðila á því,“ segir Ulla
ánægð. hrefna@frettabladid.is
ULLA MAGNÚSSON: FÆR HEIÐURSORÐU
Traust samtök
VIÐURKENNINGIN EYKUR TILTRÚ Ulla telur að heiðursorðan staðfesti
traust styrktarforeldra á SOS-samtökunum hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Lokað
Úra- og skartgripaverslunin Franch Michelsen úrsmíða-
meistari, Laugavegi 15, verður lokuð vegna jarðarfarar
FRANCH MICHELSEN úrsmíðameistara, frá kl. 13.00
föstudaginn 12. júní.
Frank Ú. Michelsen
úrsmíðameistari.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
Reidun Gustum
Bjargartanga 18, Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir góða og hlýja umönnun.
Hjörtur Jónasson
Sturla Hjartarson
Hermann Hjartarson
Hólmfríður Sóley Hjartardóttir Axel Blöndal
Oddvar Örn Hjartarson
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Jóhanns Friðriks
Sigurbjörnssonar
fyrrum bónda Atlastöðum, til heimilis að
Laugabóli, Svarfaðardal.
Lena Gunnlaugsdóttir
Dagmar Jóhannsdóttir
Gunnlaug Jóhannsdóttir Birgir Kristbjörnsson
Kristjana Jóhannsdóttir Rögnvaldur Örn Snorrason
Harpa Rún Jóhannsdóttir Kristján Örn Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Birna Salómonsdóttir
Frostafold 14, Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 4. júní, verður jarðsungin frá
Barðskirkju í Fljótum, laugardaginn 13. júní klukkan
11.
Salómon Viðar Reynisson Þóra Lind Karlsdóttir
Ásgrímur Víðir Reynisson Helga Þorsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Halldóra Guðmundsdóttir
Hlyngerði 12, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
þriðjudaginn 2. júní. Útför hennar fer fram frá
Bústaðakirkju föstudaginn 12. júní kl. 13.00.
Sigtryggur Helgason
Þórhildur Sigtryggsdóttir Hrafnkell Óskarsson
Kristbjörg Hrund Sigtryggsdóttir Skapti Haraldsson
barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Hilmar Bjarnason
sendibílstjóri,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi 9. júní 2009.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 16.
júní kl. 13.00.
Hjördís Hilmarsdóttir Steindór V. Sigurjónsson
Hörður Hilmarsson Rita Lúkasdóttir
Bergrós Hilmarsdóttir Aðalsteinn Aðalsteinsson
Heiða Hilmarsdóttir
Jónína Hanna Hilmarsdóttir Einar Magnússon
Sólbjört Hilmarsdóttir Magnús Sörensson
Jón Hilmar Hilmarsson Erla B. Jónsdóttir
Anna Hilmarsdóttir Egill Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Sigurjón Ingólfsson
frá Skálholtsvík, Sléttuvegi 13, Reykjavík,
lést á líknardeild Landakotsspítala fimmtudaginn
4. júní. Kveðjuathöfn verður í Grensáskirkju föstu-
daginn 12. júní kl. 13.00. Jarðsungið verður frá
Prestbakkakirkju laugardaginn 13. júní kl. 15.00.
Sigfríður Jónsdóttir
Þorgerður Sigurjónsdóttir Gunnar Benónýsson
Anna Sigurjónsdóttir Guðjón Jóhannesson
barnabörn, barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Fríða Emma Eðvarðsdóttir
Þorsteinsstöðum, Lýtingsstaðahreppi,
síðast til heimilis á Dvalarheimili aldraðra
á Sauðárkróki, lést laugardaginn 30. maí.
Útför hennar fer fram frá Mælifellskirkju laugardaginn
13. júní kl. 14.00.
Berta Margrét Finnbogadóttir
Böðvar Hreinn Finnbogason Guðbjörg Guðmannsdóttir
Stefanía Fjóla Finnbogadóttir Guðmundur Magnússon
Violet Elizabeth Wilson David Wilson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Halldóra Guðrún
Björnsdóttir
Furugrund 60, Kópavogi, áður til heimilis
að Heiðarvegi 64, Vestmannaeyjum,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi
fimmtudaginn 4. júní sl. Útförin verður gerð frá
Digraneskirkju föstudaginn 12. júní kl. 15.00.
Jóhanna Bogadóttir
Eiríkur Bogason Guðbjörg Ólafsdóttir
Kristján Bogason Jóhanna Emilía Andersen
Svava Bogadóttir Kristján Bjarnason
Gunnar Bogason Bergþóra Aradóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
Franch Michelsen
úrsmíðameistari,
verður jarðsettur í Háteigskirkju föstudaginn 12. júní
kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð
Franch Michelsen til uppbyggingar skátaheimilis
Skátafélags Eilífsbúa á Sauðárkróki, bankareikningur
0161-15-380156, kennitala 640288-3379.
Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðný Jónsdóttir.
Okkar ástkæra dóttir, móðir, amma og
systir,
Margrét Gísladóttir
lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 8. júní.
Útför auglýst síðar.
Jónína J. Ward
Jón Hilmar Hálfdánarson
Júlíus Atli Hálfdánarson
Kara Rún Margrét Júlíusdóttir
Tera Rún Jórunn Júlíusdóttir
Jón Gíslason
Júlíana Gísladóttir
Ólafur Gíslason
Þuríður Gísladóttir