Fréttablaðið - 07.07.2009, Side 6
6 7. júlí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
RÚSSLAND, AP Barack Obama Banda-
ríkjaforseti og Dmitrí Medvedev
Rússlandsforseti voru á einu máli
um að bæta samskipti ríkjanna frá
því sem verið hefur.
Á fundi þeirra í Moskvu í gær
undirrituðu þeir meðal annars
bráðabirgðasamkomulag, sem
miðar að því að fækka kjarnorku-
vopnum beggja landanna. Sam-
komulagið verður nánar útfært á
fundum samninganefnda ríkjanna
næstu mánuðina.
„Við verðum að sýna gott for-
dæmi, til þess erum við hingað
komnir,“ sagði Obama í glæsisal
Kremlar í Moskvu, þar sem þeir
forsetarnir svöruðu spurningum
blaðamanna.
„Medvedev forseti og ég erum
staðráðnir í að segja skilið við
tortryggni og fjandskap fortíðar-
innar,“ sagði Obama enn fremur.
Bandaríkin og Rússland eiga
samanlagt meira en níutíu prósent
af kjarnorkuvopnum heimsins.
Samkvæmt núgildandi samkomu-
lagi, sem rennur út í desember, er
báðum ríkjunum heimilt að eiga að
hámarki 2.200 sprengjur og 1.600
skotpalla á hjólum.
Í bráðabirgðasamkomulaginu
felst að bæði ríkin fækki kjarn-
orkusprengjum sínum hvort um
sig niður í 1.500 til 1.675, og skot-
pöllum á hjólum verði fækkað í 500
til 1.100.
Medvedev sagði þetta „sann-
gjarna málamiðlun“.
Þeir samþykktu einnig að hefja
á ný hernaðarsamstarf landanna,
sem var lagt af eftir að Rússar réð-
ust inn í Georgíu fyrir tæpu ári,
auk þess sem samkomulag náðist
um ýmis önnur mál, sem sum hver
hafa verið deilumál milli ríkj-
anna.
Meðal annars lofaði Obama því
að endurskoðun á áformum um
eldflaugavarnir, sem fyrri Banda-
ríkjastjórn ákvað að setja upp í
Póllandi og Úkraínu, yrði flýtt og
henni lokið fyrir haustið.
Obama neitaði að fara út í vanga-
veltur um það hver færi í raun með
völdin í Rússlandi, Medvedev for-
seti eða Vladimír Pútín forsætis-
ráðherra, sem áður var forseti.
„Minn skilningur er sá að Med-
vedev forseti sé forsetinn og Pútín
forsætisráðherra sé forsætisráð-
herrann,“ var það eina sem Obama
hafði um þau mál að segja.
Athygli vakti að stuttu eftir að
blaðamannafundur þeirra hófst í
gær var sjónvarpsútsending frá
honum rofin en í þess stað sýnt frá
fótboltaleik. Blaðamannafundinn
átti síðan að sýna síðar.
gudsteinn@frettabladid.is
Sömdu um fækkun
kjarnorkuvopna
Barack Obama og Dmitrí Medvedev kynntu áform um bætt samskipti og lausn-
ir á sumum helstu deilumálum ríkjanna. Vel fór á með þeim í Moskvu í gær.
Obama sagði þá staðráðna í að segja skilið við tortryggni og fjandskap.
VEIÐI Met var slegið í laxveiði
sumarið 2008 í íslenskum ám.
Alls veiddust 84.124 laxar á
stöng en af þeim var 17.178 sleppt
aftur. Alls var þyngd landaðra
laxa í stangveiði 174 tonn. Afli í
stangveiðinni skiptist þannig að
60.980 voru smálaxar og 5.966
stórlaxar. Af þeim löxum sem
sleppt var aftur voru 4.264 stór-
laxar.
Flestir laxar veiddust á Vestur-
landi en á Suðurlandi var veiðin
litlu minni.
Í netaveiði var aflinn 9.403
laxar sumarið 2008, sem samtals
vógu 21.862 kg. - shá
Metveiðisumarið 2008:
Lönduðu 174
tonnum af laxi
YTRI-RANGÁ 2008 Svona var stemningin
í fyrra. Áin endaði í rúmlega fjórtán
þúsund löxum, sem er Íslandsmet.
MYND/SUNNLENSKA
SÖFNUN Gunnlaugur Júlíusson, sem þessa
dagana hleypur frá Reykjavík til Akureyrar,
hóf annan dag hlaupsins snemma í gær-
morgun. Hélt Gunnlaugur af stað frá Borgar-
nesi og var ætlunin að ná eins langt upp á
Holtavörðuheiði og unnt væri. Gunnlaugur
áætlar að hlaupa að jafnaði um sjötíu kíló-
metra á dag.
Hlaupið fer fram undir merkjum fjár-
öflunar átaks fyrir Grensásdeildina og
Ungmennafélag Íslands (UMFÍ). Það er
jafnframt minningarhlaup um Jón H.
Sigurðsson, hlaupara frá Úthlíð. „Þetta
hefur gengið mjög vel,“ segir Sigurður Guð-
mundsson hjá UMFÍ. „Fólk sýnir framtak-
inu mikinn áhuga og margir hafa lýst áhuga
á að hlaupa hluta leiðarinnar með Gunn-
laugi, sem er mjög jákvætt.“
Meðal þeirra sem hafa lagt sitt af mörkum
til átaksins er Staðarskáli, sem veitir Gunn-
laugi og aðstoðarmönnum hans frían mat og
gistingu. Bílaleiga Akureyrar lagði bifreið
til átaksins, en hún fylgir hlauparanum eftir
alla leiðina til Akureyrar.
Í dag er ætlun Gunnlaugs að hlaupa austur
fyrir Hvammstanga og á miðvikudag sem
lengst inn í Langadal í áttina að Vatnsskarði.
Stefnt er að því að ljúka hlaupinu á föstu-
dags kvöld á Íþróttaleikvangi Akureyrar við
setningu 26. Landsmóts Ungmennafélags
Íslands.
Forsvarsmenn Depils hafa komið staðsetn-
ingartæki fyrir á Gunnlaugi hlaupara og
geta því áhugasamir fylgst beint með hlaup-
inu á slóðinni http://depill.is/LiveTracking.
aspx?alias=umfi. - kg
Gunnlaugur Júlíusson safnar fyrir Grensásdeild með hlaupi frá Reykjavík til Akureyrar:
Ætlar að hlaupa sjötíu kílómetra á dag
LÖNG LEIÐ FYRIR HÖNDUM Þeir sem vilja leggja sitt af
mörkum til að bæta aðbúnað á Grensásdeildinni geta
lagt inn á reikning 0130-26-9981, kt. 660269-5929.
SLYS Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluð út um klukkan 22 á
sunnudagskvöld þegar fjórtán
ára piltur féll þrjá til fjóra
metra niður af húsþaki sund-
laugarinnar hjá Krossholti á
Barðaströnd. Hann var fluttur á
Landspítalann í Fossvogi og er
laus við alvarlega áverka og við
góða heilsu, samkvæmt upplýs-
ingum frá vakthafandi lækni á
barnaskurðdeild spítalans.
Neyðarlínan hafði samband
við stjórnstöð Landhelgisgæsl-
unnar og bað um aðstoð. Piltur-
inn var meðvitundarlaus þegar
læknir kom á staðinn um hálfri
klukkustund eftir slysið. Lög-
reglan á Vestfjörðum vinnur nú
að rannsókn á tildrögum þess.
- kg
Þyrla Gæslunnar kölluð út:
Piltur féll niður
af húsþaki
Stefna vegna Kambalands
Ræktunarmiðstöðin sf. hefur stefnt
Kambalandi efh., Hveragerðisbæ,
Orkuveitunni, Rarik og fleirum vegna
ógreidds þrettán milljóna króna
reiknings vegna vinnu við gatnagerð í
Kambalandi. Verkið stöðvaðist í mars
vegna peningaleysis.
HVERAGERÐI
A
T
A
R
N
A
Öll tilboð gilda til og með 10. júlí 2009
eða á meðan birgðir endast.
Stórglæsileg tilboð í verslun okkar.
Fjöldi tilboða á smátækjum,
ljósum og símtækjum
aðeins þessa vikuna.
Umboðsmenn um land allt.
Láttu sjá þig og
gerðu góð kaup.
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
4.90013.900
Blandari
Tilboðsverð: kr. stgr.
Fullt verð: 16.900 kr. stgr.
11.900
Töfrasproti
Tilboðsverð:
kr. stgr.
Fullt verð:
14.900 kr. stgr.
Tilboðsvika
173.900
Dyrasímastöð
Tilboðsverð: kr. stgr.
Fullt verð: 234.700 kr. stgr.
Brauðrist
Tilboðsverð:
6.300 kr. stgr.
Fullt verð:
7.600 kr. stgr.
Spieler – borðlampar
Tilboðsverð: kr. stgr.
Fullt verð: 7.900 kr. stgr.
Borðlampi
Tilboðverð: 6.900 kr. stgr.
Fullt verð: 8.900 kr. stgr.
Vegglampi
Tilboðverð: 4.900 kr. stgr.
Fullt verð: 6.900 kr. stgr.
Stavanger-línan
Ráðast gegn skattaskjólum
Gordon Brown, forsætisráðherra Bret-
lands, og Nicolas Sarkozy Frakklands-
forseti samþykktu í gær að lokafrestur
til þess að leggja refsiaðgerðir á ríki
sem veita skattaskjól yrði í mars árið
2010. Þeir halda báðir á leiðtogafund
G8-ríkjanna á Ítalíu á morgun.
FRAKKLAND
FORSETAR BANDARÍKJANNA OG RÚSSLANDS Í KREML Barack Obama gekk á fund
Dmitrí Medvedev í gær til að koma samskiptum ríkjanna í gang á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍRAN, AP Ali Khameini, æðsti leið-
togi Írans, segir að afskipti leið-
toga Vestur-
landa af
stjórnmálum í
Íran geti haft
neikvæð áhrif á
samskipti Írans
við þessi lönd.
„Þessi stjórn-
völd verða
að gæta sín á
fjandsamlegum
ummælum sínum og framferði,“
segir Khameini. Hann ítrekaði
jafnframt stuðning sinn við Mah-
moud Ahmadinejad forseta og
sagði úrslitin úr forsetakosning-
unum nýverið „varanlegan og
hreinan sannleika“.
Stjórnarandstæðingar í Íran
segja úrslitin orka tvímælis og
leiðtogar á Vesturlöndum krefj-
ast þess að írönsk stjórnvöld geri
hreint fyrir sínum dyrum. - gb
Æðsti leiðtogi Írans:
Viðvörun til
Vesturlanda
ALI KHAMEINI
Veist þú um fólk sem þiggur
atvinnuleysisbætur þrátt fyrir
að vera í vinnu?
Já 27%
Nei 73%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Þekkir þú einhvern sem hefur
orðið gjaldþrota í kreppunni?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN