Fréttablaðið - 07.07.2009, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009 3golf ● fréttablaðið ●
Einherjaklúbburinn er klúbbur
þeirra sem hafa farið holu
í höggi. Klúbburinn er sá
golfklúbbur sem allir vilja helst
komast í.
„Þetta var alltaf kallað grísapunga-
félagið af þeim sem ekki höfðu
farið holu í höggi,“ segir Kjartan
L. Pálsson, fyrrum formaður Ein-
herjaklúbbsins til 33 ára.
Einherjaklúbburinn var stofn-
aður 17. október árið 1967. Inn-
tökuskilyrði eru að hafa farið holu
í höggi á löglegum keppnisvelli.
Senda þarf öll gögn til Golfsam-
bands Íslands, sem þarf að sam-
þykkja afrekið.
Árlegt golfmót Einherjaklúbbs-
ins hefur verið haldið frá stofnun
og er elsti bikarinn í golfíþróttinni
á Íslandi, Röðulsbikarinn, veittur
fyrir sigur. Hinn fornfrægi veit-
ingastaður Röðull við Skipholt
gaf þennan bikar. Allir sem fara
holu í höggi fá viðurkenningu frá
klúbbnum og margir taka viður-
kenninguna alvarlega. Heyrst
hefur að menn hengi hana jafnvel
á hurðina framan á húsinu sínu,
að sögn Kjartans.
„Þetta er sá golfklúbbur sem
allir vilja komast í,“ segir Kjartan.
Hann hefur haldið utan um félaga-
skrána frá upphafi og segir hann
að um 1.600 manns hafi farið holu
í höggi frá byggingu landsins.
Ekki hefur hann strokað út nöfn
þrátt fyrir andlát.
„Sá fyrsti til að fara holu í höggi
var dr. Halldór Hansen. Hann
gerði það í Laugardalnum í júlí
árið 1939, þannig að það eru ná-
kvæmlega sjötíu ár síðan,“ segir
Kjartan.
Sú regla hefur myndast að sá
gegni formennsku í klúbbnum
sem farið hefur oftast holu í
höggi. Kjartan hafði verið for-
maður frá 1975 eða þar til Björg-
vin Þorsteinsson sló metið, með
sjö holur í höggi, og er hann því
formaður nú. Golfsambandið mun
hins vegar líklega taka yfir starf-
semina á næstunni, gefa út við-
urkenningar til afreksmannanna
og halda utan um starfsemina al-
mennt.
- vsp
Sjötíu ár síðan sá fyrsti
fór holu í höggi á Íslandi
Golfið heillar bæði yngri og eldri
iðkendur en það kostar sitt að
koma sér af stað.
„Þegar fólk byrjar í golfi þá
eru það járn númer 7 , 8 eða 9 sem
það brúkar við að æfa sveifluna
og svo pútterar,“ lýsir Rafn Stef-
án Rafnsson í Erninum, golfversl-
un í Húsgagnahöllinni á Bílds-
höfða. Hann segir stakar kylfur
fyrir byrjendur kosta frá 5.900
og sett frá 54.900. Í því eru
þrjár tré kylfur, sjö járn-
kylfur, pútter og poki.
„Gott sett fyrir þá sem
eru vissir um að ætla
í golfið af alvöru,“
segir hann.
Kúlurnar hljóta að
teljast til staðalbúnaðar.
Stakar kúlur kosta 150
krónur í Erninum og 18
kúlur saman af gerð-
inni Slazenger XTC eru
á 2.490, eða 138 krónur
stykkið.
Sérstakur golffatnaður
telst ekki alger nauðsyn, nema
skórnir og einn hanski að sögn
Rafns Stefáns. „Við eigum enn skó
frá því í fyrra sem eru frá 7.900
en skór sem voru að koma eru á
10.900. Ódýrasti hanskinn kostar
2.190 í herrastærð og í dömustærð
1.590.“
Golfsett fyrir
krakka kosta
24.900 krónur.
Í því eru tvær
trékylfur, þrjár járn-
kylfur, pútter og poki. „Því
fyrr sem börnin byrja því
betri verður sveiflan á end-
anum,“ fullyrðir Rafn Stef-
án. „Sá krakki sem fer með
afa og ömmu út að spila
býr að því þegar hann
byrjar fyrir alvöru að æfa
golf, kannski um tvítugt.
Hann hefur vöðvaminn-
ið. Það hjálpar til.“
- gun
Vöðvaminnið hjálpar
Barnasettið RAM er hent-
ugt fyrir krakkana.
● ÍSLANDSMÓT UNGLINGA Keppni á Íslandsmóti unglinga í
holukeppni fór fram á Garðavelli á Akranesi í síðustu viku og var leikið til
úrslita föstudaginn 3. júlí síðastliðinn.
Keppni hófst síðasta miðvikudag með höggleik sem skar úr um hverjir
komust í holukeppnina sjálfa. Sextán bestu í hverjum flokki komust
áfram. Úrslitin í hverjum flokki má finna á www.golf.is.
Guðmundur Á. Kristjánsson var hlutskarpastur í flokki pilta 17 til 18 ára
en Eygló M. Óskarsdóttir sigraði í flokki stúlkna 17 til 18 ára. Magnús B.
Sigurðsson var efstur í flokki 15 til 16
ára drengja og Guðrún B. Björgvins-
dóttir hreppti fyrsta sætið í flokki
telpna, 15 til 16 ára. Í fyrsta sæti
í flokki 13 til 14 ára stráka var
Ragnar M. Garðarsson og Guðrún
Pétursdóttir var efst í flokki 13 til 14
ára stelpna. - hs
Kjartan L. Pálsson, fyrrum formaður Einherjaklúbbsins til 33 ára, með allar sex kúl-
urnar sem hann fór holu í höggi með. Þær eru heilagar og verða aldrei notaðar aftur.