Fréttablaðið - 07.07.2009, Síða 18
7. JÚLÍ 2009 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● golf
Bleiki toppbikarinn nefnist móta-
röð sem Krabbameinsfélag Íslands
og Golfsamband Íslands standa að
í sameiningu. Golfmótið hefur ein-
ungis verið fyrir konur en í sumar
var báðum kynjum leyfð þátttaka.
Allur ágóði rennur beint til rann-
sókna á brjóstakrabbameini.
Fyrst þegar mótið var haldið árið
2005 var keppt á tveimur stöðum
en nú í sumar er keppt á sjö stöðum.
„Við fáum þúsund þátttakendur
ár eftir ár,“ segir Gústaf Gúst-
afsson, markaðsstjóri Krabba-
meinsfélagsins. „Þetta er stærsta
mótaröðin í golfi á Íslandi.“
Haldið er lokamót á hverju sumri
og fær sá golfklúbbur sem á sigur-
vegara lokamótsins bikar afhentan
til geymslu í ár. Næsta mót verður
26. júlí hjá Golfklúbbi Reykjavík-
ur. Lokamótið verður svo haldið
12. september í Borgarnesi.
- vsp
Stærsta móta-
röð á Íslandi
Frá fyrstu umferð Toppbikarsins í sumar.
Sigurvegarar voru hjónin Fylkir Þór
Guðmundsson og Matthea Sigurðar-
dóttir. Í öðru sæti voru mæðgurnar
Guðlaug María og Petrea Jónasdóttir.
MYND/ÖRLYGUR HNEFILL
Evrópumót áhugamanna í kvenna-
flokki er að þessu sinni haldið á
golfvelli við vatnið Bled í Slóveníu.
Keppt er dagana 7. til 11. júlí.
„Golfsambandinu var að berast
SMS frá Bled, þar er veður ekki
gott, rigning, rok, þrumur og eld-
ingar og hefur liðsstjóri frestað
æfingahring leikmanna. Veður-
spá fyrir morgundaginn er ekki
góð og útlit fyrir að fresta þurfi
fyrsta keppnisdegi en engin
ákvörðun hefur þó verið tekin um
frestun,“ sagði Stefán Garðars son
hjá Golfsambandi Íslands í sam-
tali við Fréttablaðið í gær. Lands-
lið Íslands skipa þær Eygló Myrra
Óskarsdóttir, Ólafía Þórunn Krist-
insdóttir, Ragna Björk Ólafsdótt-
ir, Signý Arnórsdóttir, Valdís Þóra
Jónsdóttir og Tinna Jóhannsdóttir.
Karlalandslið Íslands í golfi
keppti í Conwy í Wales á dögunum
og hafnaði í tólfta sæti af tuttugu
þjóðum. - vsp
Kvennaliðið
ræst í dag
Íslenska kvennalandsliðið í golfi ásamt
Karli Ómari Karlssyni landsliðsþjálfara
og Steinunni Eggertsdóttur liðsstjóra.
„Þessi mót eru komin til að vera,“ segir Hans Guð-
mundsson, skipuleggjandi ABC-móta raðar innar
og ABC-bikarsins. Um tvenns konar mót er að
ræða. Annars vegar er ABC-mótaröðin sem er
eins konar framhald af GSÍ-mótaröðinni þar sem
krafist er að keppendur hafi að lágmarki 5,1 í for-
gjöf. Hins vegar er ABC-bikarinn þar sem engin
forgjafarmörk eru en keppt er með útsláttar-
fyrirkomulagi með forgjöf.
Nafn mótaraðarinnar er komið til vegna sam-
starfs við ABC barnahjálp. 500 krónur af hverju
mótsgjaldi renna óskiptar til ABC barnahjálpar.
Hans áætlar að safnast hafi um 150 til 200 þúsund
krónur það sem af er sumri. „Sú upphæð nægir til
að styrkja um fjögur börn frá ABC barnahjálp,“
segir Hans. Hann segir að í haust verði hægt að
fylgjast með þeim börnum sem styrkt eru á vef-
síðu mótaraðarinnar, golf18.is. Hann segir að
mótaröðin muni halda áfram á næsta ári og stefnt
sé að því að fjölga þeim börnum sem styrkt eru á
komandi árum.
Hans segir að um áttatíu hafi skráð sig til leiks í
ABC-bikarinn og um 140 í ABC-mótaröðina. Hann
segir að margir af þekktustu kylfingum landsins
séu með í ABC-bikarnum og má þar nefna Ragn-
hildi Sigurðardóttur og Örn Ævar Hjartarson. - bþa
Golfmót til góðs
Hans Guðmundsson, skipuleggjandi
mótaraðarinnar, ásamt verðlaunagripnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN