Fréttablaðið - 07.07.2009, Blaðsíða 22
14 7. júlí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
GUSTAV MAHLER (1860-1911)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Ef tónskáld gæti sagt í
orðum það sem því liggur
á brjósti myndi það ekki
reyna að segja það með
tónlist.“
Gustav Mahler var austurrískt
tónskáld. Hann samdi meðal
annars níu sinfóníur og fjöl-
mörg sönglög.
Þennan dag árið 1941 kom
Bandaríkjaher til landsins og
tók við vörnum þess af Bret-
um. Er talið að það hafi verið
hluti af samkomulagi milli Breta
og Bandaríkjamanna frekar en
vegna óskar ríkisstjórnar Ís-
lands. Tilgangurinn var að leysa
af breskar hersveitir á Íslandi
enda var þörf fyrir þær annars
staðar. Að auki var þetta liður í
því að auka hlut Bandaríkjanna
í stríði Bandamanna gegn Þjóð-
verjum og samherjum þeirra í
Evrópu.
Sumir íslenskir stjórnmála-
menn höfðu þó þegar leitt hug-
ann að því að biðja um vernd
Bandaríkjamanna þar sem
margir höfðu ekki mikla trú á
breska herliðinu ef til innrásar
Þjóðverja kæmi. Breskar her-
sveitir voru þó ekki alfarnar
heldur höfðu Bretar hér töluvert
herlið allt til stríðsloka.
Heimild: Ísland í aldanna rás.
ÞETTA GERÐIST: 7. JÚLÍ 1941
Bandaríkjaher tekur við
TVÆR ÞJÓÐIR Bandaríkjamenn
tóku við vörnum Íslands af Bret-
um árið 1941.
Steinunn Helga Lárusdóttir, mennt-
unarfræðingur og lektor við Mennta-
vísindasvið Háskóla Íslands, hlaut ný-
verið annað sæti í ritgerðasamkeppni
bresku BELMAS-samtakanna 2009
fyrir doktorsritgerð sína. Ritgerðin ber
heitið „Leadership, values and gender.
A study of Icelandic head teachers“ eða
Leiðtogahæfni, gildi og kyn, rannsókn
á íslenskum skólastjórnendum.
„Ég vann að ritgerðinni í fjögur ár
en ég var í fjarnámi við kennaramennt-
unardeild Lundúnaháskóla frá 2004 til
2008,“ segir Steinunn, sem varði rit-
gerðina í apríl á síðasta ári. „Hugmynd-
in að ritgerðinni vaknaði í raun í kjöl-
far þess að ég starfaði sjálf sem skóla-
stjóri í Reykjavík í tæpan áratug,“ segir
Steinunn en hún var skólastjóri Æfinga-
skóla Kennaraháskóla Íslands sem í dag
heitir Háteigsskóli. „Ég var skólastjóri
á tíunda áratugnum, sem var tími mik-
illa breytinga í skólakerfinu. Þá gengu í
garð ný grunnskólalög og skólarnir fóru
frá ríkinu til sveitarfélaganna,“ segir
Steinunn. Hún bætir við að sér hafi oft
þótt starfið erfitt enda margar erfiðar
ákvarðanir sem þurfti að taka. „Þegar
ég var komin með fjarlægð á starfið
og farin að lesa mér til um stjórnun og
stjórnunarhætti, ákvarðanir og hvernig
staðið væri að þeim, kviknaði hjá mér
mikill áhugi á því sem kallað er gildi;
lífsgildi eða persónuleg gildi, og hvort
þau gætu orðið skólastjórum leiðarvísir
í ákvarðanatöku.“
Við vinnslu ritgerðarinnar tók Stein-
unn viðtöl við tíu reykvíska skóla-
stjóra; fimm karlmenn og fimm konur,
og einn meðstjórnanda í hverjum skóla.
„Ég bað þá að segja mér frá erfiðum
ákvörðunum sem þeir höfðu tekið og
hvernig þeir hefðu leyst vandamál-
in. Einnig hvernig og hvort þeir teldu
að eigið kyn hefði áhrif á ákvarðanir
og hvernig fólk kæmi fram við þá. Á
grundvelli þeirra frásagna reyndi ég að
greina hvaða gildi það væru helst sem
þeir hefðu að leiðarljósi,“ segir Stein-
unn. Ein meginniðurstaða hennar var
sú að hún gat ekki greint að gildi skóla-
stjóranna væru ólík eftir kyni. Helstu
gildin sem hún greindi meðal skóla-
stjóranna voru umhyggja, heiðarleiki,
ábyrgð og virðing.
Steinunn segist ekki hafa fundið nein
sérstök neikvæð gildi. „Hins vegar er
starf skólastjóra þannig að þeir lenda
oft í skurðpunkti átaka þar sem takast
á ólík sjónarmið og gildi. Þá fara gildi
foreldra, nemenda og kennara ekki allt-
af saman,“ segir Steinunn en margir
skólastjóranna greindu frá því að þeir
finndu fyrir innri togstreitu.
Fyrir ritgerðina hlaut Steinunn eins
og áður sagði önnur verðlaun BEL-
MAS-samtakanna sem eru stærstu
samtök innan háskólasamfélagsins á
sviði forystu og stjórnunar í mennta-
málum í Bretlandi.
„Leiðbeinandi minn, Marianne
Coleman, hvatti mig til að taka þátt
og einn andmælandi ritgerðarinnar,
dr. Michael P. Bottery við háskólann í
Hull mælti einnig með henni,“ útskýr-
ir Steinunn. „Mér fannst harla ólíklegt
að fá verðlaun og var í raun bara glöð
að leiðbeinandi minn og andmælandi
skyldu mæla með mér,“ segir hún og
því komu verðlaunin henni skemmti-
lega á óvart.
Í verðlaununum felst þó ekki annað
en heiðurinn. „Þau eru mér samt mikil
hvatning sem ég ætla að nýta til að
halda áfram að rannsaka og skrifa,“
segir Steinunn.
solveig@frettabladid.is
STEINUNN HELGA LÁRUSDÓTTIR: HLÝTUR VERÐLAUN Í RITGERÐASAMKEPPNI
Lítill munur á gildum eftir kyni
MENNTUNARFRÆÐINGUR Steinunn Helga Lárusdóttir hlaut önnur verðlaun í ritgerðasamkeppninni BELMAS fyrir doktorsritgerð sína.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
timamot@frettabladid.is
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir,
bróðir og mágur,
Jóhann Briem
fyrrv. framkvæmdastjóri,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 5. júlí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
14. júlí klukkan 15.00.
Ásta Kristín Briem
Páll Jóhann Briem
Haraldur Páll Briem Vera Nily
Birna Jóna Jóhannsdóttir Þór Kristjánsson
Kristín Briem Sigurjón H. Ólafsson
Sigrún Briem Jón Viðar Arnórsson
Jóhanna Björk Briem Guðmundur Þorbjörnsson
Eiginmaður minn og faðir okkar,
Guðmundur Karl Jónsson
fyrrverandi forstjóri,
Strikinu 4, Garðabæ,
lést fimmtudaginn 2. júlí á Landspítalanum.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Rannveig Björnsdóttir
Jón Örn Guðmundsson
Björn Þór Guðmundsson
Faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og bróðir,
Kjartan Jónsson
skrifstofumaður,
Kríuhólum 4, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans á Landakoti þriðju-
daginn 30. júní. Útförin fer fram frá Garðakirkju á
Álftanesi miðvikudaginn 8. júlí klukkan 13.00.
Einar Kjartansson Marcia Maren Vilhjálmsdóttir
Árni Kjartansson Margrét Örnólfsdóttir
Ólafur Kjartansson Kristín Dúadóttir
Elín Kjartansdóttir Agnar Kristjánsson
Arnfríður Kjartansdóttir
Jóhann Ragnar Kjartansson Jónína Guðjónsdóttir
Óttar Kjartansson Hanna Kristín Sigurðardóttir
Bryndís Arngrímsdóttir
afabörn, langafabörn og systkini hins látna.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Rannveig Jónsdóttir
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 4. júlí.
Guðlaugur Bergmundsson María K. Jónsdóttir
Jón Bergmundsson Guðrún Þórunn
Ingimundardóttir
Hlöðver Bergmundsson Jóhanna Óskarsdóttir
Ingibjörg Bergmundsdóttir Harald B. Alfreðsson
Katrín Björk Bergmundsdóttir Egill Grímsson
Sigrún Berglind Bergmundsdóttir Helgi Thoroddsen
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær bróðir okkar,
Hallgrímur Helgason
(Haggi)
Tröllagili 14, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar föstudaginn 3. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðviku-
daginn 15. júlí kl. 13.30. F.h. aðstandenda,
Sigurlaug Helgadóttir
Björg Helgadóttir
Páll Helgason.
Móðursystir okkar,
Margrét Halldórsdóttir
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
lést föstudaginn 26. júní. Útförin verður gerð frá
Höfðakapellu fimmtudaginn 9. júlí klukkan 13.30.
Kolbrún Matthíasdóttir
Guðný Matthíasdóttir
Jón Matthíasson
Halldór Matthíasson
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Baldur Jónsson
prófessor,
Tómasarhaga 22,
sem lést á Landspítala í Fossvogi sunnudaginn 28. júní,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
9. júlí kl. 13.00.
Guðrún Stefánsdóttir
Jón Baldursson Kristjana G. Eyþórsdóttir
Ólafur Baldursson Hulda Harðardóttir
barnabörn og barnabarnabarn.