Fréttablaðið - 07.07.2009, Síða 30
22 7. júlí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT 2. svín, 6. úr hófi, 8. stykki,
9. fuglahljóð, 11. í röð, 12. veiðarfæri,
14. dútl, 16. hola, 17. atvikast, 18.
bók, 20. frá, 21. ból.
LÓÐRÉTT 1. hlið, 3. í röð, 4. tungu-
mál, 5. skjön, 7. inngangskafli í tón-
verki, 10. ot, 13. sníkjudýr, 15. hugga,
16. heyskaparamboð, 19. drykkur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. grís, 6. of, 8. stk, 9. rop,
11. aá, 12. troll, 14. stúss, 16. op, 17.
ske, 18. rit, 20. af, 21. flet.
LÓÐRÉTT: 1. port, 3. rs, 4. ítalska,
5. ská, 7. forspil, 10. pot, 13. lús, 15.
sefa, 16. orf, 19. te.
„Það fer mikið eftir skapi og
veðri en þessa dagana er ég
aðallega að hlusta á Holly Go-
lightly, nýja Wilco ásamt Here
We Go Magic, Hudson Wayne
og jafnvel Sk/um og Fleetwood
Mac ef út í það er farið. “
Valdís Thor, dreifingarstjóri hjá Kimi
Records.
Katrín Rut Bessadóttir
mældi göturnar ei lengi
eftir að þátturinn Mér
finnst … á ÍNN var
settur á ís. Katrín
hefur verið ráðin
á Smuguna og
kemur þar inn fyrir
Björgu Evu Erlendsdóttur ritstjóra
sem á í önnum sem ritari flokka-
hóps vinstri sósíalista og grænna í
Norðurlandaráði.
Ragnar Bragason leikstjóri veit sem
er að það er fullkomlega eðlilegt að
breyta um skoðun. Eftir Dagvaktina
gaf hann út þá yfirlýsingu að ekkert
framhald yrði á þessari vinsælu
sjónvarpsseríu en senn lítur þriðja
syrpan, Fangavaktin, dagsins ljós.
Kvikmynd er í vinnslu og nú heyrir
Fréttablaðið að aðdáendur
þeirra Georgs, Ólafs og
Daníels fái hugsanlega bók
þar sem þeir eru til umfjöll-
unar en Jón Gnarr mun
vera að velta þeim mögu-
leika fyrir sér að setjast
að skriftum sem byggja
á þessum söguheimi.
Haffi Haff er að slá rækilega
í gegn á Möltu þar sem
hann kom fram á mikilli
fegurðarsamkeppni.
Möltubúar taka Haffa
opnum örmum og var
mikið innslag í malt-
neska sjónvarpinu
þar sem rætt var
við Haffa og Írisi
Hólm auk þess sem lagið Give me
sexy var spilað með og undir.
Annar sem er kátur þessa dagana er
Pálmi Guðmundsson, sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2, en í síðustu viku
mátti RÚV þola minna áhorf í aldurs-
hópnum 12 til 49 ára samkvæmt
Capacent. Og vilja Stöðvar
2 menn meina að það
sé saga til næsta bæjar
þegar læst sjónvarps-
stöð er með meira áhorf
en skyldustöð frá ríkinu
– sem nú virðist í
sumardróma. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Óvíst er hvort fjallagarpurinn,
blaðamaðurinn og rithöfundur-
inn Páll Ásgeir Ásgeirsson myndi
skrifa fyrir Íslendinga það sem
hann lætur eftir sér í texta ætluð-
um erlendum túristum í bókinni
The Real Iceland sem er nýút-
komin. Páll Ásgeir var um helg-
ina staddur á Hornströndum, utan
kallfæris og því ekki hægt að inna
hann eftir því. En í bókinni leið-
ir hann túrista í allan sannleika
um Íslendinga, matarsiði þeirra
og venjur og frægt fólk – þjóðar-
sálin í spaugilegu ljósi. Þannig
segir Páll til dæmis frá því í bók-
inni að vilji ferðamenn sjá skýrt
dæmi um það þegar smekkleysi og
peningar fari saman þá sé Arnar-
nesið staðurinn. Þá er hætt við að
fjölskyldu Bjarkar bregði í brún
þegar þau uppgötva hvaða mynd
er dregin af þeim í bókinni. Páll
Ásgeir segir Hildi Rúnu Hauks-
dóttur vera sextíu ára gaml-
an hippa sem búi við Grett-
isgötu 40. „Þú ættir að knýja
dyra og þykjast villtur. Nei, grín.
Ekki gera það,“ skrifar Páll. Hann
segir Íslendinga sem með
sanni geti talist heimsfræg-
ir rúmast í litlum japönsk-
um bíl. Það væru þá Björk
og Sigur Rós. Páll bendir
ferðamönnum á að það sé
ekki til siðs að umgang-
ast frægt fólk öðru vísi
en aðra óbreytta. En
þó megi bregða á þetta
ráð: „Heimili Bjarkar
er jörðin en lögheimili hennar
er við Ægisíðu 94. Þú getur tekið
leigubíl og látið taka mynd
af þér fyrir utan heimili
hennar. Ef þú ert alger-
lega forfallinn. Uppkom-
inn sonur Bjarkar, Sindri
Eldon, sem Björk á með
gítarleikaranum í Sugar
Cubes – er sagður
búa í húsinu stop-
ult þó. Hann er lif-
andi eftirmynd
móður sinnar
en er þekktur
fyrir stirt skap,
svo ekki raska
ró þei r ra .
Björk er oft
á Íslandi og
er sögð tíður gestur í Sundlaug
Vestur bæjar. Þú gætir hugsanlega
séð hana í sturtu þar,“ skrifar Páll
– með þeim hætti að Eiríkur Jóns-
son, ritstjóri Séð
og heyrt, hlýt-
ur að velta því
fyrir sér hvort
Pál vanti ekki
starf.
- jbg
Geta séð Björk í sturtu í Vesturbæjarlaug
„Ég ætla að syngja um hommann sem býr í öllum
karlmönnum. Verið kræfur til kvenna? Jájá, en það
gerir að verkum að maður skilur hommana. Neinei,
ef við hættum að fíflast þá snýst þetta um að gang-
ast við mennskunni í sjálfum sér og sjá tærleikann í
vatninu,“ segir Bubbi Morthens.
Bubbi kemur fram fyrsta sinni á Gay Pride og
mun opna hátíðina 6. ágúst í Háskólabíói. Bubbi
gengur glaður til þess verkefnis. „Ég vona bara
að einn daginn opni Árni Johnsen Gay Pride. Það
væri ekki slæmt fyrir hann að láta sauma bleikan
þríhyrning í jakkann sinn og syngja. Blóðið í
okkur öllum er rautt. Og hjartslátturinn sá sami.
Þetta snýst um að gleðjast yfir því að öll erum við
mennsk.“
Árið 1984 söng Bubbi eftirminnilega um Strákana
á Borginni. Á þeim tíma voru málefni homma og
lesbía miklum mun meira tabú en nú. „Ég man eftir
atviki á Hótel Holti. Þar voru hjón sem svívirtu mig
hátt og snjallt í matsalnum fyrir framan alla. Þeim
var reyndar vísað á dyr. En það kom fyrir á þeim
árum að maður fékk svívirðingar fyrir að hafa samið
og sungið þetta lag. Svo gerði ég lag sem heitir Bleik-
ir þríhyrningar sem er á plötunni Þrír heimar, ef
ég man rétt. Jájá, ég hef allaveganna blandað mér í
þessa umræðu. En þetta verður gaman.“ - jbg
Bubbi opnar Gay Pride í ár
PÁLL ÁSGEIR Strýkur
hugsanlega þjóðar-
sálinni öfugt í bók
þar sem hann gefur
erlendum ferða-
mönnum ýmis ráð.
BUBBI MORTHENS FYRSTA SINNI Á GAY PRIDE Opnar hátíðina
og hyggst syngja um hommann sem býr innra með hverjum
karlmanni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BJÖRK Raunverulega
frægir Íslendingar
komast fyrir í japönsk-
um smábíl. Björk er
ein þeirra og hana má
oft sjá í sturtu í Vestur-
bæjarlauginni, að sögn
Páls Ásgeirs.
Hundurinn Dímon veigrar það
ekki fyrir sér að spranga í Vest-
mannaeyjum. Eigandinn segist
vera stoltur af hundinum og von-
ast til að hann geti kennt öðrum
dýrum að spranga.
„Hann er alltaf sprangandi,
hann bara elskar það. Þetta er
það skemmtilegasta sem hann
gerir. Hann er ekkert hrifinn af
boltum eða öðru slíku, hann vill
bara spranga,“ segir Marika Fed-
orowicz, eigandi Dímons. Þau
fara að spranga á hverjum degi,
en þurfa stundum að bíða færis ef
þröng er á þingi. Dímon bítur eða
stekkur í reipið og spyrnir í, eins
og alvanur Eyjamaður á Spröng-
unni svokölluðu.
Dímon er tveggja ára Rott-
weiler, en Marika keypti hann í
Reykjavík fyrir einu og hálfu ári.
Hann kynntist ekki aðaláhugamáli
sínu fyrr en komið var til Vest-
mannaeyja. „Við vorum bara að
labba þegar hann sá fólk spranga
í fyrsta skipti. Hann varð alveg
óður þannig að við fórum aftur
og ég leyfði honum að prófa. Ég
vissi ekki að honum fyndist þetta
skemmtilegt. Það kom mér mjög
á óvart auðvitað, hvaða hundur
sprangar?“ Þau Marika og Dímon
eru því alsátt í Eyjum.
Hún segir Dímon ekki rétt-
nefni. „Af því að hann er Rottweil-
er heldur fólk að hann sé grimm-
ur. Hann er það alls ekki, hann er
mjög góður hundur.“
Hún segir vegfarendur reka
upp stór augu þegar þeir sjá til
hans. „Auðvitað. Það eru allir
mjög hissa á þessu.“ Hún veit ekki
til þess að nokkur annar hundur
geri þetta.
Sjálf er hún hrædd við að
spranga. „Ég gerði það einu
sinni og dó næstum. Ég datt og
mig langar ekki til þess síðan.“
Er hundurinn þá hugrakkari en
eigandinn? „Algjörlega, og hann
er miklu sterkari en ég,“ segir
Marika og hlær.
Mariku dreymir um að stofna
dýrahótel í Vestmanneyjum. „Ég
er alin upp í kringum hunda og ég
elska þá. Ég elska öll dýr. Kannski
þegar kreppan er liðin, en ekki
nákvæmlega núna.“ Kannski
Dímon geti þá kennt hinum dýrun-
um að spranga? „Kannski. Hann
er rétti kennarinn.“
kbs@frettabladid.is
MARIKA FEDOROWICZ: Á ROTTWEILERHUND MEÐ SÉRSTAKT ÁHUGAMÁL
Hundinum Dímon finnst
skemmtilegast að spranga
HVER ÞARF HENDUR? Hundurinn Dímon spyrnir vel í Spröngunni. Eigandinn Marika leyfir honum að spranga á hverjum degi.
MYNDIR/ÓSKAR
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is