Fréttablaðið - 11.07.2009, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 11. júlí 2009 11
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 18 Velta: 41,5 milljónir
OMX ÍSLAND 6
745,86 -0,66%
MESTA HÆKKUN
BAKKAVÖR GROUP 3,31%
MESTA LÆKKUN
MAREL -1,78%
FØROYA BANKI -0,83%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,20 +0,00% ... Atlantic
Airways 159,00 0,00% ... Atlantic Petroleum 475,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,25 +3,31% ... Eik Banki 80,00 +0,00% ... Føroya Banki
119,50 -0,83% ... Icelandair Group 4,75 +0,00% ... Marel Food Syst-
ems 54,20 -1,81% ... Össur 114,00 +0,00%
Skráð atvinnuleysi í júní 2009 var
8,1 prósent eða að meðaltali 14.091
manns. Atvinnuleysi hefur dreg-
ist saman um 3,5 prósentustig að
meðaltali frá því í maí eða um 504
manns. Á sama tíma á árinu 2008
var atvinnuleysi 1,1 prósent eða
1.842 manns. Atvinnuleysi var
meira meðal karla en 8.484 karlar
voru atvinnulausir í síðasta mán-
uði en 5.607 konur. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Vinnumála-
stofnun.
Í Hagsjá Landsbankans segir að
hluti af þessari lækkun atvinnu-
leysis skýrist af árstíðarsveiflu.
Vegna hennar eykst áætlað vinnu-
afl í júní um rúma 6.700 einstak-
linga. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi
reyndist vera um 8,5 prósent í júní
og er því svipað og í maímánuði.
Jafnframt kemur fram að
atvinnuleysi sé jafnan minna í júní
og júlí vegna árstíðarsveiflu. Lík-
legt er því að atvinnulausum fjölgi
á ný í haust. Þess skal þó getið að
mörg þessara starfa eru ýmis sér-
stök tímabundin störf og vinnu-
markaðstengd úrræði. Flest laus
störf voru meðal ósérhæfðs starfs-
fólks, í sölu- og afgreiðslustörf.
Atvinnuleysi var mest á Suður-
nesjum 12,1 prósent og á höfuð-
borgarsvæðinu 9,3 prósent. Það er
hins vegar minnst á Vestfjörðum
1,8 prósent og Norðurlandi vestra
2,2 prósent. - bþa
Atvinnuleysi á niðurleið
Íslenska flugfélagið Primera Air hefur gert samn-
ing um viðhald og viðgerðir við singapúrska fyrir-
tækið ST Aerospace. Virði samningsins er um 32,5
milljónir dala. Um tvo samninga er að ræða og felur
sá fyrri í sér að fyrirtækið er ætíð viðbúið til við-
gerða auk þess sem að útvega varahluti. Jafnframt
var undirritaður samningur um lendingarbúnað.
Primera Air rekur sex Boeing 737-flugvélar um
þessar mundir auk þess sem það stendur til að bæta
sex vélum við flotann. Jón Karl Ólafsson segir í til-
kynningu frá ST Aerospace að samningurinn muni
veita fyrirtækinu nauðsynlegan stuðning í þeirri
útrás sem það er í . - bþa
Primera gerir
viðhaldssamning
júní 2009
10%
8%
6%
4%
2%
0%
0,8%
Október 2007
júní 2007
september 2007
júní 2008
1,1%
júní 2008
mars 2008
desember 2007
september 2008
desember 2008
3,3%
nóvember 2008
mars 2009
9,1%
apríl 2009
6,6%
janúar 2009
ATVINNULEYSI Á ÍSLANDI SÍÐUSTU ÁR
Auglýsingasími
– Mest lesið
HEIMILD: VINNUMÁLASTOFNUN