Fréttablaðið - 12.08.2009, Síða 17

Fréttablaðið - 12.08.2009, Síða 17
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Það er nú fyrst til að taka að guð almáttugur hefur séð vel um sína efnahagsstjórn og haft gott veður í landinu. Þetta hefur verið ein- stakt sumar,“ var formálinn sem Guðni hafði á takteinum áður en hann sneri sér að aðalefninu, að lýsa sumar ferðunum. „Ég hef tals- vert keyrt um Suðurland út frá mínu heimili á Selfossi en fyrir helgina fór ég norður í land. Setti hand- verkssýninguna á Hrafnagili og var á þeirri skemmtilegu hátíð. Í Eyja- fjarðarsveitinni var haldin kvöld- vaka og þar er svo margt listrænt fólk, hljóðfæraleikarar, söngvarar og hag yrðingar að maður sér glöggt að menningin dafnar. Það er gaman að vera með Norðlendingum. Við Margrét brugðum okkur líka á Fiskidaginn mikla á Dalvík þar sem meti Biblíunnar var hnekkt því Dalvíkingar mettuðu þrjátíu þúsund manns á fimm fiskum og tveimur brauðum og breyttu vatni í vín og allir voru ölvaðir af gleði. Það var stórkostlegt að koma á þessa tvo staði sömu helgina. Nú erum við á Siglufirði og hér er nýlokið pæju- móti sem var um helgina, þannig að alls staðar var eitthvað um að vera. Svo dveljum við á Hólum í Hjalta- dal. Maður finnur nú alltaf hvað það er magnaður staður. Að koma að Hólum og dvelja þar, það hleður öll batterí. Svo er einstakt að blanda geði við Skagfirðinga.“ Í lokin játar blaðamaður fyrir Guðna að hann hafi byrjað á að hringja heim til alnafna hans sem búi á Brúnastöðum í Reykjavík og spyrja eftir fyrrverandi ráðherra þar. Þá kumrar í honum. „Já, það hafa fleiri gert. Hann tók af mér margt ómakið þegar ég var í emb- ættinu. Í hann var hringt á nóttunni til að skamma meðan ég svaf í friði fyrir austan fjall.“ gun@frettabladid.is Það er gaman að vera með Norðlendingum Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, var staddur á Siglufirði með konu sinni þegar hringt var í hann í forvitnisskyni. Spurningin var ein, hversu mikið hann væri búinn að flakka í sumar. „Að koma að Hólum og dvelja þar, það hleður öll batterí,“ segir Guðni, sem hér er með konu sinni Margréti Hauksdóttur. MYND/SÓLRÚN HARÐARDÓTTIR HEITAR LAUGAR Á ÍSLANDI er ný bók eftir Jón G. Snæland og Þóru Sigurbjörnsdóttur. Í bókinni er greint frá bæði náttúrulegum laugum og manngerðum víða um land, jafnt á hálendi sem í byggð. GPS-punktur er á öllum laugunum í bókinni en þær eru vel á annað hundrað. Lín Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið Sími 533 2220 • www.lindesign Íslensk hönnun á enn betra verði. 25% afsláttur Frá 6.490 kr Útsölunni lýkur á föstudag Útsaumaðir dúkar í mörgum gerðum & stærðum Opið mán.-fös. frá kl. 11.00-18.00 Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is Útsala Mikið úrval af fatnaði á 1.000, 2.000 og 3.000 Kaupir 2 fl íkur og færð eina fría með (ódýrasta fl íkin fylgir frítt með)

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.