Fréttablaðið - 12.08.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 12.08.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé Í dag er miðvikudagurinn 12. ágúst 2009, 224. dagur ársins. 5.10 13.33 21.53 4.42 13.17 21.50 Raunveruleikinn er fyrirbæri sem oft og tíðum er ofmetið. Þannig getur það verið mun auð- veldara að lifa lífinu í þeirri von að hlutirnir æxlist eftir þeim for- merkjum sem manni sjálfum líkar, en að horfast í augu við blákaldan veruleikann; sumsé að oftar en ekki er þetta allt saman ansi skítt. Ósanngjarnt. Gremjulegt. Og þó að vissulega geti verið fínt að loka augunum fyrir því og treysta á að lífið geti einfaldlega ekki verið svona ósanngjarnt, þá er það ekki mjög gefandi afstaða. ANSI margir virðast undanfarið hafa fengið heimsókn frá raunveru- leikanum. Þannig furða margir sig á því að það hafi verið höfuðmark- mið kapítalistanna sem áttu pen- inga fyrir hrunið að eignast meiri peninga. Menn spyrja sig í for- undran að því hvort það hafi verið aðalmarkmiðið? Voru menn virki- lega bara að hugsa um að græða meiri peninga fyrir sjálfan sig og sáust ekki fyrir í gerðum sínum að öðru leyti? SÚ mýta hafði nefnilega skotið rótum að íslensku kapítalistarnir væru ólíkir öllum öðrum í heimin- um. Þeir væru ekki bara klárari, þeir bæru hag lands og þjóðar fyrir brjósti. Og þess vegna myndi eigin gróðavon aldrei verða þjóðarhag ofar. Þess vegna vöknuðu sumir upp við vondan draum þegar þeir áttuðu sig á því að sama hreyfiafl réði gjörðum íslenskra auðmanna sem annarra slíkra; að græða meiri peninga. Þetta hefðu allir átt að sjá, en glýja gullsins getur verið blind- andi. EINS virðast ansi margir trúa því að sanngirnissjónarmið ráði í samskiptum ríkja á millum. Það að öflugri ríki kúski hin veikari til hlýðni tilheyri horfnum tíma, þegar „real“-pólitíkin réði ríkjum. Nútíma utanríkispólitík snúist um að færa nógu sterk rök fyrir máli sínu; nokkurs konar milliríkja- Morfís. Mögulega geti eiginhags- munir ráðið ríkjum, en alls ekki á milli vestrænna vinaþjóða. Þar muni sanngirnin ein ríkja. ÞEIR sem hafa þá skoðun þyrftu að leggja við hlustir þegar veru- leikinn ræskir sig og átta sig á því að ansi lítið hefur breyst í henni versu. Hinir sterku kúga enn þá veikari og auðmenn sækjast fyrst og fremst eftir frekari auði. Fyrir sjálfa sig. RAUNVERULEIKINN getur stundum verið fjandanum ósann- gjarnari, en valið við hann er blekkingin. Og hún dugar ekki til lengdar. Sælir eru einfaldir H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.is KING KOILAmerískt heilsurúm(Queen size 153x203)FRÁ kr. 99.850 25-70% AFSLÁTTUR! HEIL SUKO DDAR 30% AFSL ÁTTU R! SVEF NSÓ FAR 25- 30% AFS LÁT TUR ! SÆNGURFATN AÐUR 30% AFSLÁT TUR!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.