Fréttablaðið - 12.08.2009, Side 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar Proppé
Í dag er miðvikudagurinn 12.
ágúst 2009, 224. dagur ársins.
5.10 13.33 21.53
4.42 13.17 21.50
Raunveruleikinn er fyrirbæri sem oft og tíðum er ofmetið.
Þannig getur það verið mun auð-
veldara að lifa lífinu í þeirri von
að hlutirnir æxlist eftir þeim for-
merkjum sem manni sjálfum líkar,
en að horfast í augu við blákaldan
veruleikann; sumsé að oftar en
ekki er þetta allt saman ansi skítt.
Ósanngjarnt. Gremjulegt. Og þó
að vissulega geti verið fínt að loka
augunum fyrir því og treysta á að
lífið geti einfaldlega ekki verið
svona ósanngjarnt, þá er það ekki
mjög gefandi afstaða.
ANSI margir virðast undanfarið
hafa fengið heimsókn frá raunveru-
leikanum. Þannig furða margir sig
á því að það hafi verið höfuðmark-
mið kapítalistanna sem áttu pen-
inga fyrir hrunið að eignast meiri
peninga. Menn spyrja sig í for-
undran að því hvort það hafi verið
aðalmarkmiðið? Voru menn virki-
lega bara að hugsa um að græða
meiri peninga fyrir sjálfan sig og
sáust ekki fyrir í gerðum sínum að
öðru leyti?
SÚ mýta hafði nefnilega skotið
rótum að íslensku kapítalistarnir
væru ólíkir öllum öðrum í heimin-
um. Þeir væru ekki bara klárari,
þeir bæru hag lands og þjóðar fyrir
brjósti. Og þess vegna myndi eigin
gróðavon aldrei verða þjóðarhag
ofar. Þess vegna vöknuðu sumir
upp við vondan draum þegar þeir
áttuðu sig á því að sama hreyfiafl
réði gjörðum íslenskra auðmanna
sem annarra slíkra; að græða meiri
peninga. Þetta hefðu allir átt að sjá,
en glýja gullsins getur verið blind-
andi.
EINS virðast ansi margir trúa
því að sanngirnissjónarmið ráði í
samskiptum ríkja á millum. Það
að öflugri ríki kúski hin veikari
til hlýðni tilheyri horfnum tíma,
þegar „real“-pólitíkin réði ríkjum.
Nútíma utanríkispólitík snúist um
að færa nógu sterk rök fyrir máli
sínu; nokkurs konar milliríkja-
Morfís. Mögulega geti eiginhags-
munir ráðið ríkjum, en alls ekki
á milli vestrænna vinaþjóða. Þar
muni sanngirnin ein ríkja.
ÞEIR sem hafa þá skoðun þyrftu
að leggja við hlustir þegar veru-
leikinn ræskir sig og átta sig á því
að ansi lítið hefur breyst í henni
versu. Hinir sterku kúga enn þá
veikari og auðmenn sækjast fyrst
og fremst eftir frekari auði. Fyrir
sjálfa sig.
RAUNVERULEIKINN getur
stundum verið fjandanum ósann-
gjarnari, en valið við hann er
blekkingin. Og hún dugar ekki til
lengdar.
Sælir eru
einfaldir
H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.is
KING KOILAmerískt heilsurúm(Queen size 153x203)FRÁ kr. 99.850
25-70%
AFSLÁTTUR!
HEIL
SUKO
DDAR
30%
AFSL
ÁTTU
R!
SVEF
NSÓ
FAR
25-
30%
AFS
LÁT
TUR
!
SÆNGURFATN
AÐUR
30% AFSLÁT
TUR!