Fréttablaðið - 12.08.2009, Síða 18

Fréttablaðið - 12.08.2009, Síða 18
 12. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR2 „Þegar keyrt er með aftaníhengi eins og hestakerrur, fellihýsi eða hjólhýsi niður brekkur þá reynir óhjákvæmilega á hemla ökutæk- isins ef menn skipta ekki niður í lágu gírana. Þá getur álagið orðið of mikið og bremsurnar yfirhitn- að,“ segir Hróbjartur og útskýr- ir það ferli nánar. „Það kemur gljái á bremsuborðana og við- námið þverr hratt þannig að allt í einu er bíllinn orðinn bremsulaus. Þetta gerist einkum ef bremsur á aftaníhenginu eru ekki í lagi.“ Hann segir hættuna ekki sísta ef um sjálfskipta bíla er að ræða. „Margir halda að þeir eigi alltaf að keyra í D á sjálfskiptum bílum en það er gírkassi á þeim og við vissar aðstæður þarf að skipta handvirkt í lágu gírana til að láta þá halda við. Þessu áttar fólk sig ekki alltaf á.“ Hróbjartur segir aftanívagna stundum selda grandalausu fólki sem veit ekki hvað það er að kaupa enda sé misjafnt hvort felli- og hjólhýsi séu með bremsum. „Lengi vel komu hingað vagnar sem eng- inn almennilegur hemlabúnaður var á og þeir eru enn í umferð en í seinni tíð hefur búnaðurinn orðið vandaðri,“ segir hann. Á þessu ári urðu allir ferðavagn- ar bæði skráningar- og skoðunar- skyldir. Hróbjartur telur það af hinu góða. „Fram að þessu hefur ekki verið skylda að færa þessi tæki til skoðunar og þess vegna hefur því ekki alltaf verið fylgt nógu vel eftir að þau séu í lagi,“ segir hann. gun@frettabladid.is Bremsur geta yfirhitnað Hemlabúnaður bifreiða getur orðið óvirkur þegar ekið er niður langar brekkur ef álagið á hann verður of mikið. Hróbjartur Ágústsson, bifvélavirki og leiðbeinandi í meiraprófnámskeiðum, lýsir því. „Á leið niður brekkur þarf að skipta í lágu gírana til að láta þá halda við,“ segir Hró- bjartur og skellir olíu á vélina sem hann er að laga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BLÁA LÓNIÐ á auknum vinsældum að fagna meðal Íslendinga. Heimsóknum þeirra í júlí fjölgaði um 26 prósent miðað við sama mánuð í fyrra. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.