Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.08.2009, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 12.08.2009, Qupperneq 20
 12. ÁGÚST 2009 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● skólar og námskeið SOVÍ NUDDNÁM NÁM Í SVÆÐA- OG VIÐBRAGÐSMEÐFERÐ Veturinn 2009 – 2010 Kennsla utan almenns vinnutíma Upplýsingar á www.nudd.is og í símum 696-0970 // 895-7333 Svæða- og viðbragðsmeðferðaskóli Íslands ATH. Kynning verður á Grand hótel fi mmtudaginn 13. ágúst kl. 17-20 Allir velkomnir Busun er aldagamalt fyrirbæri en sem dæmi má nefna að í Harward-háskóla hafa eldri nemendur látið þá yngri þjóna sér þegar haustönn hefst og á 19. öld útveguðu þeir eldri nemendum bjór og brauði. Hérlendis er fyrirbærið líka eld- gamalt. Páll Melsteð, alþingis- maður, sýslumaður og stofnandi Kvennaskólans í Reykjavík, talar í endurminningum sínum frá 19. öld um þá busun sem hann reyndi sjálfur í skólanum á Bessastöðum um 1830. Hann segir að nýnemar hafi verið kallaðir „novi“ eða „no- bibusar“ og þaðan sé busa-nafnið komið. Þegar skóli hófst á haustin voru neðri bekkingar kallaðir til efri bekkinga eitt kvöldið og var bus- unum öllum komið fyrir á einum bekk. Eldri bekkingur, klæddur í kápu, með gleraugu á nefi og „roð- augu“ utan yfir gleraugunum, kom þá inn í salinn og fór með ákveðn- ar línur sem hófust á orðunum: „Óðinn sé með yður“. Ræðan sem hann flutti var háfleyg og fjall- aði um þagmælsku og þau samtök sem þeir skólabræður myndu nú senn bindast eldri bekkingum. Að ræðu lokinni var hver busi leidd- ur af tveimur eldri bekkingum að tjörn þar í nágrenni Bessastaða og dýft öfugum ofan í þá – að öxlum. „Það svo rækilega, að sumum hélt við köfnun.“ Eftir þessa meðferð voru bus- anir taldir komnir í skólapilta tölu og átti þá enginn, upp frá því, nein leyndarmál heldur áttu þeir að deila öllu. Voru þeir þá boðnir vel- komnir með annarri ræðu. Þessi hefð kallaðist skírn og hafði flust í skólann frá Hólum í Hjaltadal og skólanum í Skálholti. - jma Busar voru skírðir á Hólum, í Skálholti og á Bessastöðum Böðlar í Menntaskólanum við Sund baða busa í fiskikörum árið 1987. 365/LJÓSAMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Kökuveisla í Verslunarskóla Íslands þar sem busar voru boðnir velkomnir í september 1977. 365/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Einn nýnemi Menntaskólans við Hamrahlíð í hengingarsnöru í september 1976. 365/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Oddgeir Einarsson lögfræðingur var busi við Menntaskólann við Sund haustið 1993 og tók strætó úr skólanum allur blautur og illa lyktandi. „Busunin hófst með því að öllum busum var smalað saman inn í salinn í skólanum og þar hlýddum við á ræðuhöld þar sem okkur busunum var aðallega sagt hvað við værum ömurlegir og einskis verðir. Þar næst var farið með okkur út í garð og ég man að það greip svolítið hræðsla um sig svo að margir reyndu að gera sig ósýnilega með því að fara út í horn.“ Það dugði þó lítt og allir voru teknir fyrir og dýft ofan í mysukör og segja má að þemað hafi verið að maka busana út í matvælum. „Við fengum tómatsósu yfir okkur, skyri var slett á okkur og í minningunni er þetta mjög ógeðs- legt og engin önnur hugsun að baki en gera okkur viðbjóðsleg útlítandi. Ég man að ég og Grím- ur vinur minn fórum saman heim í strætó eftir þetta og önguðum langar leiðir. Það hefði hins vegar lítt þýtt að mæta ekki þar sem að þeir sem skrópuðu voru oft leitað- ir uppi og bundnir við staura og slíkt.“ -jma Busarnir makaðir út í matvælum Oddgeir Einarsson segir að ekki þýddi að skrópa í busuninni í Menntaskólan- um við Sund. Sólveig Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri og hollustugúru með meiru, var busuð rækilega á Samvinnuskólanum á Bifröst. „Þar sem að skólinn var í heimavist var þetta auðvitað kjör- ið tækifæri til að taka busunina „alla leið“. Eina nóttina vorum við til að mynda vakin upp um miðja nótt við að barið var með látum á her- bergisdyrnar hjá okkur. Daginn eftir var svo farið með okkur í „saklausan“ göngutúr sem endaði á því að okkur nýliðunum var skellt ofan í ker með ísköldu vatni.“ Solla segir að eldri bekkingar hafi náð að sá svo lúmskum óttafræjum meðal ný- nemanna að þeir hafi alltaf búist við því versta á hverjum degi. „Það mátti ekki maður ræskja sig og þá hrökk maður í kút, alveg handviss um að nú væri ein- hver tortúr að byrja.“ Hægt að ganga alla leið í heimavist Solla og busarnir í Samvinnuskólanum á Bifröst bjuggust við hinu versta að nóttu sem degi. Gerður Kristný rithöfundur var busuð við Menntaskólann við Hamrahlíð haustið 1985. „Ég man að við vorum nokkrar vinkonurnar sem vorum að vonast til þess að fá sérmeðferð í busuninni af því að við vorum með augnlinsur, enda of miklar gellur til að láta sjá okkur op- inberlega með gleraugu. Þessi hugmynd um sérmeðferðina var eflaust einhverjar eftirreitur úr barnaskóla þar sem ekki mátti kasta snjóbolta í þá sem voru með gleraugu en auðvitað skiptu augnlinsurnar engu máli þegar busunin hófst.“ Gerður segir ýmislegt frá þessum degi eftirminnilegt, til dæmis þegar henni varð gengið fram hjá skólabróður sínum sem hafði verið teipaður við steinsúlu í matsalnum. Þannig mátti hann dúsa lungann úr deginum. „Það sem er samt undarlegast í minning- unni frá þessum degi er atriði sem eldri nemendur höfðu átt hugmyndina að og æft í þaula fyrir okkur busana – nefnilega hóp reið. Matsalurinn var myrkvaður og tónlist keyrð í botn. Stúlka kom hlaup- andi og stakk sér inn í eitthvað sem líktist risastóru rimlarúmi sem ekki sást þó inn í. Eldri strákarnir, klæddir kolsvörtum Ku Klux Klan-hempum, skiptust á að hlaupa inn í rúmið og vagga því til og frá og á meðan gaf stúlkan frá sér háar frygðarstunur. Svona kusu eldri nemendur að bjóða okkur unglingana velkomna. Löngu síðar barst mér til eyrna að forráðamenn skól- ans hefðu ekki verið ánægðir með atrið- ið og forsprakkarnir hefðu verið teknir á teppið. Stúlkan sem þarna kom fram átti síðar eftir að verða lands- fræg leikkona og fá mun betri rullur en þessa.“ - jma Frygðarstunur í rimlarúmi Gerður Kristný Guð- jónsdóttir skáld slapp ekki við busun.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.