Fréttablaðið - 12.08.2009, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2009 5skólar og námskeið ● fréttablaðið ●
Næsta skólaár er nemendum
gefinn kostur á að stunda námið
á tvöföldum hraða
Önninni er skipt í tvær lotur – þannig er hægt
að taka fleiri áfanga á önn, nemendur geta
einbeitt sér að færri námsgreinum í einu og
meiri samfella verður í náminu.
Fyrri lotan er frá 24. ágúst til 9. október.
Seinni lotan er frá 20. október til 7. desember.
Hver áfangi er kenndur tvisvar í viku, alls 3 klst.
Kennsla fer fram seinnipart dags
frá mánudegi til fimmtudags.
H A U S T Ö N N 2 0 0 9
Öldungadeild MH
Innritun í deildina er í fullum gangi á vef skólans
www.mh.is.
Jafnframt verður innritað í MH fimmtudaginn
20. ágúst kl. 9–12 í símum 595 5207 og 595 5200
og á skrifstofu skólans kl. 12–18.
Flest öll stéttarfélög taka þátt í menntunarkostnaði
félaga sinna.
Kennsla hefst mánudaginn 24. ágúst.
Heimsækið okkur á mh.is
Þá er Öldungadeild Menntaskólans
við Hamrahlíð lausnin
Miðgarðsormurinn er ógnarlangur ormur sem nemendur Mennta-
skólans við Hamrahlíð hafa verið að búa til í tvo áratugi. Hann er líkt og
menntavegurinn – gerður af sköpunarkrafti og iðni.
Í
P
O
K
A
H
O
R
N
IN
U
Viltu hefja nýtt nám, rifja upp
eða bæta við þekkingu þína?
Viltu flýta fyrir þér í náminu?
Viltu einbeita þér að færri
námsgreinum í einu?
ævinlega í fararbroddi
● DANS FYRIR ÞRIGGJA ÁRA BÖRN Dansskóli Sigurðar
Hákonarsonar er einn af stærstu dansskólum á landinu en starfsemin
fer fram í Auðbrekku 17 í Kópavogi.
Í vetur verður boðið upp á almenna barna-
dansa, standard suðurameríska dansa,
salsa, gömlu dansana og freestyle-djass-
ballett. Dansskólinn er með námskeið
fyrir alla aldurshópa, bæði fyrir
byrjendur og framhaldsnema.
Boðið verður upp á þá
nýjung að vera með barnadansa
fyrir þriggja ára börn. Áður var
aldurstakmarkið á námskeið
skólans fjögur ár.
Öldungadeild Menntaskólans við
Hamrahlíð hefur ákveðið að taka
upp breytt námsfyrirkomulag í
haust. Verður svokallað lotukerfi
tekið upp þannig að önninni verð-
ur skipt í tvær lotur.
„Við erum að svara því kalli
hjá öldungum að flýta náminu.
Við skiptum önninni í tvennt og
fólk getur tekið frá fáum og upp
í mjög marga áfanga eftir hent-
ugleika hvers og eins,“ segir
Aðalheiður Dröfn E., deildarstjóri
öldungadeildar Menntaskólans
við Hamrahlíð. „Fólk sem er í
vinnu á erfitt með að taka námið
á hefðbundnum menntaskólatíma,
þannig að það er oft í námi í sex,
sjö eða átta ár og finnst langt að
markinu.“
Aðalheiður segist halda að
meiri samfella verði í náminu
með breyttu fyrirkomulagi. „Fólk
verður í færri greinum í einu og
getur stytt námstímann um helm-
ing,“ útskýrir Aðalheiður Dröfn,
sem segir breytinguna mælast vel
fyrir hjá nemendum. - mmf
Stytta nám hjá öldungunum
Aðalheiður Dröfn segir hið breytta
námsfyrirkomulag mælast vel fyrir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Opni háskólinn mun á haustönn
bjóða áfram upp á fjölbreytt úrval
diplómanámsleiða; nám samhliða
vinnu. Nokkrar nýjungar verða á
boðstólum og meðal þess verður
diplómanám í markaðssamskipt-
um og almannatengslum, en nám
í þeim fræðum hefur ekki verið í
boði hér á landi áður. Skráning í
diplómanámið er í fullum gangi
og opið er fyrir umsóknir á www.
opnihaskolinn.is.
Vegna mikillar eftirspurnar
mun Opni háskólinn áfram bjóða
námskeið fyrir stjórnarmenn
fyrir tækja og stofnana: Ábyrgð
og árangur stjórnarmanna. Mark-
mið námskeiðsins er að efla ár-
angur, ábyrgð og trúverðugleika
íslenskra fyrirtækja með því að
treysta faglegan grunn stjórnar-
manna.
Meðal annarra nýjunga í starfi
Opna háskólans er diplómanám
í flutningafræðum, mannauðs-
stjórnun, verkefnastjórnun og
markþjálfun. Einnig er boðið upp
á örnámskeið fyrir stjórnendur
í fjarnámi: Þekkingarbrunnur
stjórnenda.
Fjöldi erlenda nemenda sækir
einnig nám hjá Opna háskólan-
um. Meðal annars má nefna hóp
nemenda frá Úganda sem var hér
í sumar á frumkvöðlanámskeiði,
þjálfun þjálfara. Hópurinn fékk
leiðsögn í hvernig skal fanga við-
skiptatækifæri og láta viðskipta-
hugmynd verða að veruleika. Í
kjölfar námskeiðsins á Íslandi
mun hópurinn fara um allt Úganda
og kenna og miðla þessari þekk-
ingu áfram.
Í ágúst kemur hópur stjórnenda
frá sjávarútvegsfyrirtækjum í
Kína til að læra um fiskveiði-
stjórnun og siglingareglur. Um
er að ræða fyrsta hóp erlendra
stjórnenda á námskeiðslínu um
sjávar útveg og fiskveiðistjórnun.
Nánar á www.ru.is
Margt í boði í
Opnum háskóla
Markmið Opna háskólans er að virkja
þekkingu til að auka samkeppnishæfni
og lífsgæði með stuttu og hagnýtu
námi.