Fréttablaðið - 12.08.2009, Qupperneq 28
12. ÁGÚST 2009 MIÐVIKUDAGUR6
Atvinnuleitendur geta sótt um
fjárstyrk hjá Vinnumálastofn-
un til að fara í nám eða á nám-
skeið. Sigurður P. Sigmunds-
son segir það geta styrkt stöðu
viðkomandi á atvinnumarkaði.
„Við styrkjum atvinnulausa með
ýmsu móti og er ein leiðin að
veita þeim fjárstyrk til að geta
stundað nám eða sótt námskeið
að gefnu því að ákveðnar forsend-
ur séu fyrir hendi og tiltekin skil-
yrði uppfyllt,“ segir Sigurður P.
Sigmundsson, sviðsstjóri rekstr-
arsviðs Vinnumálastofnunar í
Hafnarhúsinu.
Hann bendir á að í fyrsta lagi
sé ekki sjálfgefið að atvinnulaus-
ir fái fjárstyrk. „Það verður að
vera sameiginleg niðurstaða at-
vinnuleitanda og ráðgjafa,“ út-
skýrir hann og bætir við að þar
sem markmiðið sé að auka mögu-
leika viðkomandi á íslenskum at-
vinnumarkaði sé aðeins horft til
starfstengds náms.
„Þarna er auðvitað átt við nám
eða námskeið sem hæfa atvinnu-
leitanda og nýtast honum í at-
vinnuleit, hvort sem það teng-
ist skrifstofustörfum, bókhaldi,
photoshop eða öðru. Nám sem
tengist eingöngu áhugamálum
viðkomandi er síður inni í mynd-
inni eða annað sem ekki er talið
að muni styrkja hann á vinnu-
markaði.“
Í öðru lagi segir Sigurður frek-
ar horft til styttri námskeiða
eða náms. „Þetta er hugsað til
skemmri tíma, kvöld- eða helgar-
námskeið falla undir það og helst
er engin tilslökun í því,“ útskýrir
hann og bætir við að gott framboð
sé af slíkum námskeiðum. „Svo
getur teygst á því, stundum upp
í þrjá mánuði.“
Fjárstyrk til að stunda nám eða
námskeið segir hann jafnframt
eingöngu standa atvinnulausum
til boða, en ekki þeim sem eru
með skert vinnuhlutfall. „Enda
er það fólk ekki atvinnulaust, í
leit að vinnu.“
En hversu hár er styrkurinn?
„Hann getur að hámarki numið 50
prósentum af námsskeiðsgjaldi en
verður ekki hærri en 70.000 krón-
ur á önn eða á hverjum þrettán
vikum,“ segir Sigurður og bætir
við að stéttarfélög styrki einn-
ig atvinnuleitendur til að stunda
atvinnutengt nám eða námskeið.
„Svo má nú gera ráð fyrir að fólk
greiði hluta af þessu sjálft.“ - rve
Atvinnulausir geta sótt
um námsstyrki
Sigurður segir Vinnumálastofnun eingöngu styrkja þá til að stunda nám sem upp-
fylla tiltekin skilyrði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Menntamenn nefnist fyrir-
tæki í burðarliðnum sem mun
sérhæfa sig í stuðningskennslu
fyrir grunn- og framhalds-
skólanema. Það verður til húsa
í Menntaskólanum við Sund.
Sá sem stendur á bak við það
er Bjarki Gunnarsson, masters-
nemi í verkfræði.
„Til að byrja með verður hægt að
panta einkakennslu og skrá sig
á námskeið fyrir fjóra til sex,“
segir Bjarki um fyrirkomulag
kennslunnar hjá Menntamönnum.
„Kennarinn er í góðum tengslum
við nemendur á svo litlum nám-
skeiðum og þeir eru ófeimnir við
að leita aðstoðar,“ segir hann og
kveðst tala af reynslu. „Það er
svo algengt í stórum bekkjum
að kennarinn útskýri eitthvað
sem aðeins helmingur nemend-
anna skilur en hinir þora ekki
að spyrja af ótta við að gera sig
að fífli,“ útskýrir hann. Kennsl-
an fer fram eftir að venjulegum
skóladegi lýkur klukkan fimm og
staðurinn er Menntaskólinn við
Sund. Þar er þægileg og aðgengi-
leg aðstaða að sögn Bjarka.
Bjarki kveðst hafa stundað
talsverða einkakennslu jafnframt
sínu námi, einkum í stærðfræði.
Þó hafi verið lítið um hana síðustu
tvö árin nema hvað einn nemandi
úr MR hafi beðið hann um aðstoð
síðastliðið vor. „Þá fann ég hvað
ég hafði sterka hvöt til að kenna
og gat varla talað um annað við
kærustuna mína en að mig lang-
aði að stofna fyrirtæki kringum
svona stuðningskennslu.“
Þess má geta að í sumar var
Bjarni einn þeirra 300 sem sóttu
frítt námskeið í Háskólanum í
Reykjavík um stofnun fyrirtækja.
Þar skiluðu um tuttugu manns
inn viðskiptaáætlunum og hann
hlaut fyrstu verðlaun úr þeim
hópi fyrir viðskiptaáætlunina að
því fyrirtæki sem hann er nú að
koma á fót.
Hann segir þjónustu þess
standa grunn- og menntaskóla-
nemum til boða en einnig muni
einhver námskeið kennd á há-
skólastigi, þá aðal lega í raun-
greinum enda sé hann búinn að
fá nokkra kennara til liðs við sig í
þeim greinum og einnig frönsku,
spænsku og dönsku. „Svo er ég
að leita að fleirum í hópinn, til
dæmis kennara í íslensku og
þýsku.“
Nú vinnur Bjarki meðal ann-
ars að því að setja upp heimasíðu
Menntamanna www.study.is sem
á að verða komin í gagnið innan
fárra daga. - gun
Hef sterka hvöt
til að kenna
Bjarki fékk fyrstu verðlaun fyrir viðskiptaáætlun sína að fyrirtækinu Menntamönn-
um sem hann er að stofna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Stærstu tíðindin hjá okkur eru
að við stefnum á að opna erlenda
deild. Markmiðið er að hún fari í
gang um áramótin,“ segir Böðvar
Bjarki Pétursson, stjórnarformað-
ur Kvikmyndaskóla Íslands. „Það
einkennilega við þessa kreppu
er að Ísland hefur verið auglýst
óskaplega vel úti í heimi. Það hefur
gert það að verkum að við höfum
fengið fjölda fyrirspurna alls stað-
ar að úr heiminum.“
Vegna erlendra fyrirspurna
setti Kvikmyndaskólinn af stað
markaðsátak og opnaði heimasíð-
una www.icelandicfilmschool.is.
„Hún er opin núna. Við auglýstum
líka á Facebook í nokkra daga og
fengum tugi fyrirspurna,“ útskýr-
ir Böðvar.
Að sögn hans verður deildin
uppbyggð eins og sú íslenska og
mun starfa við hlið hennar. „Hún
verður hér á Íslandi hjá okkur. Við
ætlum okkur að flytja inn nemend-
ur í stórum stíl og búa til gjaldeyri
af því að nú erum við orðin sam-
keppnishæf um verð.“ - mmf
Erlend kvikmyndadeild
Böðvar Bjarki segir undirbúning erlendrar deildar í fullum gangi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
● fréttablaðið ● skólar og námskeið
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.