Fréttablaðið - 12.08.2009, Page 34
12. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
WILLIAM BLAKE LÉST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1827.
„Sannleikur sem er
sagður af illum ásetningi
er verri en allar lygar.“
Blake var enskt skáld, list-
málari og bókagerðar-
maður. Foreldrar hans
voru utankirkjufólk og
Blake varð ungur fyrir
miklum áhrifum frá Biblí-
unni. Þá hélt hann því fram
frá unga aldri að hann sæi
sýnir.
Þennan dag árið 1957
voru stöðumælar tekn-
ir í notkun í Reykja-
vík. Þá voru settir upp
274 mælar og við flest-
ar götur var gjaldið ein
króna fyrir fimmtán
mínútur og tvær fyrir
hálftíma, sem var há-
markstími í miðborg-
inni. Þar sem voru bíla-
stæðatorg, eins og við
Kirkjutorg, við Hótel Ís-
land í Austurstræti og
á horni Tjarnargötu
og Kirkjustrætis, var
gjaldið helmingi lægra og hægt að
greiða fyrir allt að tvo tíma í einu.
Carl C. Magee fann upp fyrsta
stöðumælinn og var sá fyrsti settur
upp í heima-
borg hans Okla-
homa hinn 16. júlí
árið 1935. Fyrstu
stöðumælarnir
voru með pen-
ingarauf og sveif
til að setja klukk-
una í gang ásamt
vísi sem sýndi
hversu mikið
var eftir af þeim
tíma sem bíllinn
mátti vera í stæð-
inu. Slíkir mælar
voru notaðir nán-
ast óbreyttir í fjörutíu ár en rafrænir
stöðumælar með stafrænum skjá
komu fram á sjónarsviðið um miðj-
an níunda áratuginn.
ÞETTA GERÐIST 12. ÁGÚST ÁRIÐ 1957
Stöðumælar teknir í notkun
„Ég hef haft í nógu að snú-
ast undanfarin ár enda í tvö-
földu námi,“ segir Dodda
Maggý, en hún hefur nýlokið
mastersnámi í myndlist við
Konunglegu dönsku listaaka-
demíuna í Kaupmannahöfn
ásamt nýju námi á masters-
stigi sem ber heitið Nordic
Sound Art.
„Það er samstarfsverk-
efni á milli listaháskólanna
í Kaupmannahöfn, Malmö,
Ósló og Þrándheimi en við
vorum níu nemendur sem
ferðuðumst á milli þessara
skóla og sérhæfðum okkur í
hljóðlist. Þrátt fyrir mikinn
þeyting er þetta frábært nám
sem veitir bæði faglega og
tæknilega þekkingu auk þess
sem við fengum tækifæri til
að kynnast fjölda fólks í fag-
inu,“ segir Dodda Maggý en
hún er fyrsti Íslendingurinn
sem lýkur þessu námi. Hún
hefur verið búsett í Malmö í
Svíþjóð undanfarin ár en er
nýkomin aftur til landsins.
Dodda Maggý tvinnar
menntunina saman í verk-
um sinum en hún vinnur að
mestu með vídeó, hljóð og
tónlist. „Ég reyni að skapa
einhvers konar andrúmsloft
eða tilfinningu og bý til eins
konar sögur sem eru þó mjög
opnar fyrir túlkun áhorfand-
ans.“
Útskriftarverkefni Doddu
Maggýar voru eðli málsins
samkvæmt tvö. „Útskriftar-
verkefnið mitt frá Nordic
Sound Art heitir Lucy en
verkefnið frá Konunglegu
dönsku listaakademíunni
í Kaupmannahöfn I’m not
here. Hið fyrrnefnda er
hljóð- og vídeóverk en hið
síðarnefnda hljóðlaust vídeó-
verk.“
L i s t s k ö p u n D o d d u
Maggýar hefur farið víða
en hún hefur tekið þátt í
fjölda myndlistarsýninga
víðs vegar um heim, þar á
meðal í Bandaríkjunum,
Kanada, Englandi, Skotlandi,
Nýja-Sjálandi, Hong Kong,
Danmörku, Svíþjóð, Nor-
egi, Finnlandi, Þýskalandi,
Frakklandi, Spáni, Eistlandi,
Lettlandi og á Íslandi. Sýn-
ingin Rotate, sem er á vegum
Vane-gallerísins sem Dodda
Maggý hefur unnið með und-
anfarin ár, stendur nú sem
hæst í Contemporary Art
Society í London en þar er
að finna verk eftir hana og
sextán aðra listamenn. Sýn-
ingunni lýkur hinn 25. sept-
ember.
vera@frettabladid.is
DODDA MAGGÝ: MEÐ MASTERSGRÁÐU Í
MYNDLIST OG Í NORDIC SOUND ART
Vídeó og hljóð
HEFUR SÉRHÆFT SIG Í HLJÓÐLIST Dodda Maggý er fyrsti Íslendingur-
inn sem útskrifast frá Nordic Sound Art. MYND/PJETUR
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðmundur Marinósson
Hrísmóum 1, Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudag-
inn 10. ágúst. Útförin verður auglýst síðar.
Ingibjörg Guðmundsdóttir Gísli Blöndal
Guðrún Guðmundsdóttir Rúnar Helgi Vignisson
Christian Marinó, Arnar Már, Guðmundur Ragnar,
Ísak Einar og Þorri Geir.
Elskuleg móðir mín og systir okkar,
Unnur Ketilsdóttir
frá Ísafirði, Kleppsvegi 120, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
13. ágúst kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á FAAS eða
Minningarsjóð Skjóls.
Auður Bjarnadóttir
Ása Ketilsdóttir
Dóra Ketilsdóttir
Guðmundur Ketilsson
og fjölskyldur.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, tengdasonur, afi og langafi,
Guðmundur Magnússon
byggingameistari, Akranesi,
er lést á Sjúkrahúsi Akraness 31. júlí, verður jarðsung-
inn frá Akraneskirkju 14. ágúst kl. 14.00. Þeim sem
vilja minnast hans er bent á Oddfellowstúkurnar á
Akranesi eða Sjúkrahús Akraness.
Ástríður Þ. Þórðardóttir
Emil Þór Guðmundsson Guðbjörg Kristjánsdóttir
Sigríður Guðmundsdóttir Gunnar Sigurðsson
Ingibjörg Guðmundsdóttir Jón B. G. Jónsson
Þórey G. Guðmundsdóttir Leifur Eiríksson
Sigríður Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
Trausti Adolf Ólason
Ásholti 2a, Hauganesi,
lést að heimili sínu laugardaginn 8. ágúst. Útförin fer
fram í Stærri-Árskógskirkju föstudaginn 14. ágúst kl.
16.00.
Þorvaldur Traustason Arnleif Gunnarsdóttir
Víkingur Traustason Harpa Pálsdóttir
Hermann Traustason Gerður Þorvaldsdóttir
Örn Traustason Berglind Sigurðarsóttir
Anna Traustadóttir Kristinn Sigfússon
Sigríður Traustadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur vináttu, samúð og hlýhug við andlát
og útför
Hauks Júlíussonar
Klapparhlíð 1, Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
þjónustunnar Karitas, Helga H. Helgasyni lækni og
öllu starfsfólki 11-B og 11-E á Landspítalanum við
Hringbraut.
Lára I. Ágústsdóttir
Ingibjörg Hauksdóttir Sverrir Ólafsson
Þór Hauksson Guðný María Jónsdóttir
Ásgerður Hauksdóttir Þorsteinn Bjarnason
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi okkar,
Þórarinn Ingibergur
Ólafsson
Iðavöllum 4, Grindavík,
andaðist að dvalarheimilinu Víðihlíð í Grindavík
þriðjudaginn 4. ágúst. Útförin verður frá
Grindavíkurkirkju næstkomandi föstudag klukkan
13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta
Grindavíkurkirkju njóta þess.
Guðveig Sigurlaug Sigurðardóttir
Sævar B. Þórarinsson Edda Axelsdóttir
Helga Þórarinsdóttir Hjörtur Gíslason
Ingibjörg Þórarinsdóttir Bartley
Svala Þórarinsdóttir Heller Thomas Heller
afa- og langafabörn.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og afi,
Jökull Ólafsson
lést á Landspítalanum við Hringbraut 31. júlí. Útförin
fer fram í Digraneskirkju fimmtudaginn 13. ágúst kl.
15.00.
Fyrir hönd aðstandenda
Jóhann Ólafur Jökulsson Þorbjörg Jóna Guttormsdóttir
Guðný Unnur Jökulsdóttir Helgi Pétursson
Sonja Jóhannsdóttir
Logi Jóhannsson
Ágúst Benóný Helgason
Atli Stefán Helgason
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Unnars Erlings
Björgólfssonar
Barðastöðum 7, áður til heimilis á
Eskifirði.
Jónína Jónsdóttir
Helga Kristín Unnarsdóttir Oddur Sigurðsson
Heiður Unnarsdóttir
Bjarki Unnarsson Dröfn Þórisdóttir
Björk Unnarsdóttir Bogi Nils Bogason
og afabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Steinar Þórólfsson
frá Hraunkoti, til heimilis að Skarðshlíð
38f, Akureyri,
lést laugardaginn 8. ágúst á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
14. ágúst kl. 10.30.
Halldóra Vilhelmsdóttir
Sigurður Vilhelm Steinarsson Ágústa Kristín Bjarnadóttir
Þóra Björg Steinarsdóttir Davíð Kristinsson
Jón Gunnar Steinarsson Kristín Skjaldardóttir
Kristján Geir Steinarsson Eydís Linda Kristinsdóttir
Sigrún María Steinarsdóttir Elmar Arnarson
Hermann Ingi Steinarsson
og barnabörn.
MOSAIK