Samvinnan - 01.09.1953, Page 2
Útgefandi: Samband íslenzkra
samvinnufélaga.
Ritstjóri: Benedikt Gröndal.
Ritstjórn og afgreiðsla í
Sambandshúsinu, Reykjavík.
Ritstjórnarsími 7080.
Kemur út mánaðarlega.
Verð árgangsins kr. 40.00.
Verð í lausasölu 5 kr.
Prentsmiðjan Edda.
Efni.
Verkefni, sem þarf að leysa
Síðsumardagar við Kaup-
vangstorg
Þegar gröf Tut-ench-Amons
fannst
Á sæluviku í Sevillu
8
11
Þegar Böðvar á Laugarvatni
var formaður einn sólar-
hring
Óli Vilhjálmsson lætur af
störfum
13
Áhrif sönglistar á húsdýrin
15
16
Staða kvenna í kaupfélögun-
um
18
Þingeyingar kveðja Þórhall
Sigtryggsson, kaupfélags-
stjóra 19
Bréfaskóli SÍS kennir nú höf-
uðgreinar til landsprófs 23
Starfsemi kaupfélaganna 1952 24
Carmen, framhaldssagan 27
Myndasaga 31
September 1953
XLVIII árg. 9.
HLUSTENDUR ÚTVARPSINS hafa
í haust nokkrum sinnum heyrt aug-
lýsingar um fatamarkaði einstakra
kaupfélaga, þar sem seld hafa verið
hvers konar karlmannaföt. Var slík-
ur markaður fyrst haldinn í kaupfé-
laginu á Blönduósi, síðan í Húsavík og
mun einnig verða haldinn á Sauðár-
króki og ef til vill víðar. Þessir mark-
aðir eru athyglisverð tilraun, sem
kaupfélögin eru að gera í samvinnu
við iðnaðardeild SÍS. Það er hverjum
manni ljóst, að fæst kaupfélaganna
eru svo stór, að þau geti legið með full-
nægjandi birgðir af karlmannafötum
til þess að tryggja félagsmönnum það
úrval, sem þeir þurfa til að geta feng-
ið þau föt, sem þeir óska eftir. Stafar
þetta meðal annars af því, hve um-
fangsmikill slíkur fatalager þyrfti að
vera, þar sem selja þyrfti margar
mismunandi tegundir og liti fata og
hverja gerð í ótal stærðum, ef vel
ætti að vera.
SÚ LAUSN á þessum vanda, sem nú
er verið að reyna, byggist á því, að
fatalagerinn er fluttur milli staða í
landinu og hafður í hverju kaupfé-
laginu á fætur öðru. Er um að ræða
mörg hundruð fatnaði, sem boðnir
eru, og það jafnan endurnýjað frá
saumastofunum, sem mest selst af.
Þannig fá menn á Blönduósi, í Húsa-
vík eða á Sauðárkróki jafn mikið úr-
val fata og í stærstu verzlunum höf-
uðstaðarins. Vonandi gefst þessi til-
raun svo vel, að slíkir fatamarkaðir
verði fastir liðir í verzlun kaupfélag-
anna í framt'ðinni. Mundi það verða
góð þjónusta við karlmenn dreifbýlis-
ins, og hver veit nema hentugt kunni
að selja fleiri vörur á þennan hátt.
ÍSLENDINGASAGNAÚTGÁFAN
hefur verið rædd nokkrum sinnum
hér í Samvinnunni á þesu ári, og er
það helzt frétta frá hennar starfi, að
sala á sögunum hefur vaxið svo ört,
að margar þeirra eru þegar ófáanleg-
ar og verða það, unz endurprentan-
ir hafa verið gerðar. Stafar þessi
aukna sala án efa af þeirri velmegun,
sem verið hefur í landinu, og virð-
ast íslendingar fljótt hugsa til þess að
eignast þessar bækur, þegar þeir fá
nokkur auraráð fram yfir nauðþurftir.
í SUMAR lét útgáfan prenta örlít-
inn pésa á dönsku til þess að fræða
norræna ferðamenn og blaðamenn,
sem hingað koma. Er þar gerð nokkur
grein fyrir þýðingu þessara bók-
mennta (og handritanna ) fyrir ís-
lendinga, en síðan birtar tölur um
það, hversu mikil útbreiðsla íslend-
ingasagnanna sé hér á landi og hve
mikilli útbreiðslu bóka það samsvari
á hinum Norðurlöndunum, miðað við
íbúafjölda. Ef miðað er við sölu á
sjálfum sögunum og öllum öðrum út-
gáfum af þeim sleppt, er yfirlitið sem
hér segir, talið í 13 binda bókaflokk-
um:
10.000
146.000 íb.
3.277.000 íb. — 224.000
4.033.000 íb. — 276.260
4.308.000 íb.
7.047.000 ib.
295.000
— 482.720
Island
Noregur
Finnland
Danmörk
Svíþjóð
Það mun sjaldgæft, að nokkrar
bækur nái slíkri útbreiðslu, hvað þá
13 binda bókaflokkar. Ef talinn er
bindafjöldi af öllu því, sem íslend-
ingasagnaútgáfan hefur selt, er yfir-
litið þannig:
Seld bindi:
ísland 146.000 íb. — 254.000
Noregur 3.277.000 íb. — 5.711.800
Finnland 4.033.000 íb. — 7.029.500
Danmörk 4.308.000 íb. — 7.508.800
Svíþjóð 7.047.000 íb. -- 12.282.900
Það má nærri geta, að slík sala á
bókaflokki er óþekkt í öðrum löndum!
LJÓSMYNDIR í þessu hefti eru
eftir ýmsa. Guðni Þórðarson tók Ak-
ureyrarmyndirnar og forsíðumynd-
ina. Sig. Pétur Björnsson á Húsavík
tók myndirna:1 úr kveðjuhófi Þór-
halls Sigtryggssonar.
2