Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1953, Síða 9

Samvinnan - 01.09.1953, Síða 9
Þclla er Konungadalurinn, og sést inngangurinn í gröf Tut-ench-Amons á miöri myndinni. ofan í álit allra skynbærra manna — kom Carter til þess að vona ekki að eins, að hann kynni, þrátt fyrir allt, að finna þar enn einhverja áður ófundna gröf, heldur beinlínis gröf eins tiltekins konungs. Hann hafði sjálfur fylgzt með fundum Theodore Davis, og vissi, að í safni hans var gleraður leirbolli með nafni Tut — ench — Amons. Bolla þenna hafði Davis fundið undir kletti. Á sama svæði hafði Davis fundið litla kletta- gröf og í gröfinni illa brotinn tré- kistil, er í voru gulllauf með nafni Tut — ench — Amons. Og Davis hafði drýgt þá fljótfærni að telja gröfina Tut — ench — Amon. Carter var þessu aldrei sammála og efasemd- ir hans jukust, er það kom í Ijós, að Davis hafði skjátlast um rétta ráðn- ing þriðja fundarins. Þar var um að ræða Ieirkerabrot, sem virtust þýð- ingarlaus, og línvafninga, er hringað hafði verið saman í stórar krukkur með tilliti tlls, sem gerzt getur á öxlum. Framhaldsrannsókn, sem gerð var á Metropolitan listasafninu í New York, sýndi, að líklega voru þetta leifar dóts, sem notað hafði verið við útför Tut — ench — Am- ons. Auk þess fann Davis seinna nokkur leir-signet með nafni Tut — ench — Amons í gröf Echnatons, „vilIutrúarkonungs“. Allt þetta benti á tilveru Tut — ench — Amons-grafar á þessum slóð- um — um miðju dalsins. En með til- liti samhljóða álits allra að kalla — með tilliti alls, sem gerst getur á þremur árþúsundum, tilflutningi ræningja og presta á því, sem í gröf- unum var geymt, og, umfram allt, hins öllu umturnandi uppgraftrar, er lengi framan af var ósjaldan rekinn af bagalegu þekkingarleysi, — þá varð samt að Iíta svo á, að þetta gæti svo sem líka stafað af öðru. Það, sem Carter studdist við, var fernt: nokkrir partar af gulllaufi, gleraður bolli, örfá leirílát og nokkur leirsign- et. Til að reisa á svo veikum stoð- um ekki aðeins ofurlitla von heldur vissukennt hugboð um að finna þarna gröf Tut — ench — Amons — þurfti — ja — eitthvað sérstakt. Þegar Carnarvon og Carter loks höfðu í alvöru tekið til við gröftinn, þá luku þeir því að mestu á einum vetri að hreinsa burt af þríhyrning sínum alla hauga af sandi, möl og grjóti og komust að neðri brún graf- ar Ramsess VL „Þar rákumst við á svolitla þyrpingu verkamannakofa, er settir höfðu verið yfir samanhring- að tinnustórgrýti. En hið síðarnefnda hefur ávallt, í Konungadalnum, reynzt öruggt merki um nálægð grafar“. En nú voru þeir komnir svo ná- lægt inngöngunni að gröf Ramsess VI., að lengra varð ekki haldið verkinu nema trufla bagalega skemmtiferða- fólk, sem vant var að vilja skoða gröf Ramsess. Varð það því að ráði að fresta verkinu til betri hentug- leika. Tekið var aftur til veturinn 1919—20 og fannst þá við munna grafar Ramsess, á afviknum stað, ýmislegt dót, sem vant var að nota við frágang grafar. „Svo nálæg't því, að finna höfðum við enn aldrei orðið í Dalnum“, segir Carter. Þeir höfðu nú „skafið“, eins og Petrie var vanur að segja, allt ofan af þríhyrningnum nema blettinn, sem verkamannakofarnir stóðu á. Og hættu nú enn um hríð aðgerðum þarna af ótta við að verða ferðafólki allt of hvimleiðir. Og þeir tóku að grafa í afdal litlum, þar sem verið hafði gröf Þótmess III., en fundu „ekkert verulega markvert“. Tóku þeir nú að íhuga í fullri al- vöru, hvort þeir ættu ekki að hætta uppgraftrartilraununum á Konunga- dals-svæðinu, því árangurinn af svo langs tíma framlagi hafði verið næsta rýr. Raunar var eftir að rannsaka blettinn, sem kofarnir stóðu á, við neðri brún grafar Ramsess VI. Eftir miklar efasemdir og endurteknar áætlunarbreytingar var loks ákveðið að verja einum vetri enn í Konunga- dalnum. Varla höfðu verkamannakofarnir 9

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.