Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1953, Síða 10

Samvinnan - 01.09.1953, Síða 10
verið rifnir og undirstaða þeirra flutt burt — er uppgraftrarmenn stóðu frammi fyrir inngöngunni að gröf Tut — ench — Amons, er auðugust reyndist í allri uppgraftrarsögunni. „Fundurinn kom og þróaðist svo snöggt“, skrifar Carter, „að ég, nærri því, vissi ekki mitt rjúkandi ráð. Og síðan, í fáeina mánuði, hefur verið svo mikið að gera, að ég hef varla getað komið neinni hugsun við.“ 3. nóvember 1922 tók Carter til við niðurrifið á kofunum. Carnarvon lá- varður var þá enn í Englandi. Næsta morgun fannst þrep, höggvið niður í klöppina — undir fyrsta kofanum. Seinni hluta dags 5. nóvember hafði nógu verið komið burt af ruðningn- um til þess, að gengið yrði úr skugga um, að þarna hafði vissulega verið fundin grafarniðurganga. En það gat svo sem verið ófullgerð gröf — gröf sem aldrei hafði komizt í gagnið. Og væri nú samt sem áður smyrlingur í henni, gat svo sem vel verið, að hún hefði þegar verið rænd — eins og hinar aðrar konunga- grafir. Og m. a. s. var alls ekki víst, að þetta væri konungsgröf. Hún gat verið með smyrling og annað óhreyft, — en hvað hjálpaði það, ef hún var einhvers embættismannsins og prests. Carter herti á verkinu eins og hann framast gat, því hann var orðinn við- þolslítill af eftirvæntingu. Þrep eftir þrep komu tröppurnar upp úr ruðn- ingnum, og um það bil, sem nóttin egypzka snöggféll á, sá á tólfta þrep- ið og jafnframt „efri hluta dyra, sem voru læstar, innsiglaðar og kalki stroknar. Innsiglaðar dyr! Það var þá eftir allt saman .....! Það var dá- samleg stund fyrir uppgraftrar- mann.“ Carter athugaði innsiglið og sá, að það var innsigli hinna konunglegu legstaða. Það fór þá aldrei hjá því, að mjög háttsettur maður væri þarna jarðaður. Og úr því að verkamanna- kofarnir voru beint yfir niðurgöng- unni, var augljóst, að gröfin hafði a.m.k. síðan á dögum tuttugustu kon- ungaættar ekki verið rænd. Og þegar Carter, titrandi af æsingi, boraði gat á hurðina, „rétt mátulega vítt til þess að koma mátti rafmagnsblysi inn um það“, sá hann, að gangurinn innan við hana var blindfullur af grjóti og ruðningi. Og bar það vott um hvort- tveggja, að þótt hafði taka því að gera öflugar varnarráðstafanir, og hitt, að við engu hafði verið hreyft síðan. Morguninn 6. nóvember sendi Carter Carnarvon lávarði eftirfarandi skeyti: „Loks gerður undursamlegur fundur í Dalnum: stórkostleg gröf með óskert innsigli. Endurmokað jdir til komu yðar. Heillaóskir.“ 8. nóv- ember komu tvö svarskeyti frá Car- narvon: „Hugsanlegt ég komi brátt“ og „Ráðgeri koma Alexandríu tuttug- asta.“ 23. nóvember kom Carnarvon lá- varður, ásamt dóttur sinni, til Lúxor. Hafði Carter þá beðið aðgerðalaus í Iiðlega hálfan mánuð, og má nærri geta um líðan hans, en gröfina vakt- aði hann vel. Tveimur dögum eftir fund þrepanna tóku heillaóskir að streyma til hans. En vegna hvers, ná- kvæmlega til tekið? Hvað var í gröf- inni? Carter vissi það ekki sjálfur. En hefði hann aðeins grafið fáum þumlungum neðar, hefði orðið fyrir honum tvímælalaust innsigli Tut- ench-Amons sjálfs. „Hefði ég bara vitað það . . . . þá hefði ég sofið bet- ur þessar nærri þrjár vikur.“ 24. nóvember, undir kvöldið, var síðustu skóflunum mokað upp úr tröppunum. Carter fór niður þrepin sextán og stóð frammi fyrir innsigl- aðri hurðinni. Nú gat hann skoðað nákvæmlega innsigli Tut-ench-Am- ons. Nú varð hann líka, eftir allt sam- an, var hins sama og aðrir uppgraftr- Þella er sjálf múmia Tnt-ench-Amons. armenn í Egj^ptalandi: Ræningjar höfðu orðið „fyrri til“. „Nú, þegar dyrnar sáust allar,“ segir Carter, „mátti sjá þá staðrejmd, sem fram að þessu hafði farið fram hjá okkur: hluti af þeim hafði verið tvívegis opnaður og tvívegis læstur. Ennfremur: Innsiglið, sem fyrst sást: sjakali og níu landingjar, hafði verið látið á endurlokaða hlutann, en inn- sigli Tut-ench-Amons var tyrir hin- um óhreyfða hluta dyranna og voru því hin upprunalegu innsigli. Gröfin var þá ekki ósnortin, eins og við höfð- um vonað. Ránsmenn höfðu farið inn í hana, og það oftar en einu sinni; það sást á kofunum, að þeir hefðu verið á ferðinni ekki seinna en á dögum Ramsess IV. Hitt sást og, að þeir böfðu ekki gersópað hana; það sást af því, að gröfin hafði verið innsigluð að nýju.“ En Carter átti eftir að sjá fleira, sem kæmi honum í uppnám. Hann botnaði minna og minna í málavöxt- um. Þegar leifunum af ruðningnum hafði verið mokað upp úr niðurgöng- unni, fundust þar leirkerabrot og skrínum með nöfnum Echnatons, Sa- keres og Tut-ench-Amons, svo og padda, með nafni Þótmess VI. og hluti af annarri með nafni Amonhoteps III. Hvað átti af öllum þessum nöfnum að ráða: hér væri ekki eins manns gröf, eins og vonazt hafði verið eftir, heldur samsafn hrakninga. Þetta kæmi í Ijós, er inn væri kom- ið. Næstu daga fór fram undirbún- ingur þess að opna grafardyrnar. Cart- er hafði séð, er hann gægðist gegn- um gatið, að gangurinn var fylltur urð. Greinilegt var, að grjótið var af tvenns konar gerð. Hin þröngu göng, sem ræningjarnir höfðu gert sér gegn- um urðina, höfðu verið endurfvllt með dökku grjóti, nokkurs konar tinnu. Eftir nokkurra daga hörkuvinnu voru uppgraftrarmenn komnir eina tíu metra inn og stóðu þá andspæn- is annarri hurð. Einnig á henni voru bæði innsigli Tut-ench-Amons og hinna konunglegu legstaða, og einnig á þessum dyrum sáust ummerki þess, að þær höfðu verið rofnar. Allur umbúnaður þarna var líkur fráganginum á felustað Echnatons, er fundizt hafði í nágrenninu. Þeim Car- Framh. é bls. 20. 10

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.