Samvinnan - 01.09.1953, Síða 19
Hér sést hluti af hinum laufskrýdda veizlusal á efstu hœð kaupfélagshussins i Húsavik, er Þing-
eyingar kvöddu kaupfélagsstjóra sinn.
Þingeyingar kveðja Þórhall
Sigtryggsson, kaupfélagsstj.
Fyrr á þessu sumri urðu kaupfélags-
stjóraskipti í Húsavík, er Þórhallur
Sigtryggsson lét af störfum og við
tók Finnur Kristjánsson, fyrrum
kaupfélagsstjóri á Svalbarðseyri.
Hinn 30. ágúst kvöddu Þingeyingar
Þórhall með veglegu hófi í hinni
nýju byggingu kaupfélagsins í Húsa-
vík, og sóttu það yfir 300 manns víðs
vegar af félagssvæðinu. Hófið var
haldið á efsta lofti kaupfélagshúss-
ins, sem er mikill og rúmgóður salur,
og var hann allur fagurlega skreyttur
sem laufskáli væri.
Karl Kristjánsson, formaður KÞ,
stjórnaði kveðjuhófinu, og flutti
jafnframt aðalræðuna, þar sem hann
þakkaði Þórhalli hið mikla og fórn-
fúsa starf, sem hann hefur lagt fram
fyrir félagið í hálfan annan áratug,
fyrir samvinnuhreyfinguna í rúma
þrjá áratugi og við verzlunarstörf
yfir hálfa öld.
A eftir Karli tóku margir til máls,
og voru fluttar samtals átján ræður
í hófinu, en á milli þeirra var almenn-
ur söngur, sem Páll H. Jónsson
stjórnaði. Ræður fluttu þessir: Bald-
Formaður KÞ, Karl Kristjánsson, alþm., þakkar
Þórhalli langt og gott starf.
SÍS lækkar farm-
gjöld fyrir skreið
Skipadeild SÍS hafði í ágúst-
mánuði síðastliðnum frum-
kvæði um lækkun farmgjalda
fyrir skreið, sem nú er ein
mikilvægasta útflutningsvara
þjóðarinnar. Höfðu farm-
gjöldin numið 200 shillingum
fyrir smálest, en SÍS lækkaði
þau niður í 180 eða um 10%.
Var lækkun þessi byggð á
bættum pökkunaraðferðum,
sem hafa það í för með sér,
að skreiðin tekur minna rúm
og meira kemst af henni í
skipin.
Nokkru eftir að skipadeildin
tilkynnti lækkun þessa, kom
Eimskipafélagið á eftir og
lækkaði sín farmgjöld fyrir
skreið niður í 175 shillinga.
Lækkaði þá SÍS enn niður í
175. Þessi lækkun, sem varð
vegna frumkvæðis SÍS, mun
spara skreiðarútflytjendum
um hálfa milljón króna.
Framkvæmdastjóri skipa-
deildar SÍS er Hjörtur Hjart-
ar og starfa við deildina sex
manns við alla stjórn á út-
gerð fjögurra eða fimm skipa
auk leiguskipa.
ur Baldvinsson (sem mælti fyrir minni
frú Kristbjargar Sveinsdóttur, konu
Þórhalls), Axel Benediktsson, séra
Friðrik Friðriksson, Þórir Friðgeirs-
son, Júlíus Havsteen sýslumaður,
Þórður Markússon, Helga Þorgríms-
dóttir, Kristján Jónatansson, Jón
Gauti, Pétur Jónsson, Jón Sigurðs-
son, Sigfús Hallgrímsson, Alfreð As-
mundsson, Jón Haraldsson, Bene-
dikt Gröndal og Sigurður Lúther Vig-
fússon. Að lokum tók Þórhallur til
máls og þakkaði hlý orð og gott sam-
starf á þeim árum, sem hann fór með
stjórn kaupfélagsins.
Þórhalli voru færðar ýmsar fagrar
gjafir til minningar um starf hans
fyrir Kaupfélag Þingeyinga, og dvöl-
ina í Húsavík á starfsárunum. Hann
og kona hans eru nú flutt búferlum
til Reykjavíkur.
19