Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1953, Blaðsíða 6

Samvinnan - 01.10.1953, Blaðsíða 6
5^4 óem Á c^eýur ocý tebur, (ífc cýcir oc^ Sigurður Magnússon segir frá Menamfljóti, þar sem það rennur um Bangkok, höfuðborg Síam ------Stefnið klýfur sléttan flöt- inn. Bylgjurnar rísa hæst þar sem þær bruna út frá kinnungunum til beggja handa, en lækka svo óðfluga, unz ekk- ert er framar að sjá, er minni á feril bátsins á hinu mógula yfirborði Men- am, fljótsins mikla, sem heldur til ltafs, hægt en örugglega, eins og fyrir mörgum öldum, — eins og eftir þús- und ár. — ----Sólin var nýkomin upp er við lögðum af stað frá bryggjunni, neðan stórbygginga Austur-Asíufélagsins danska, og stefndum upp ána. Far- kosturinn er allstór vélbátur. Við er- um fjórir alls, ég, thailenzkur leið- sögumaður, formaðurinn og sonur hans. Eltir klukkutíma ferð munum við vera komnir inn í eina hinna mörgu kvísla, er liggja út frá ánni. Þar ætlum við að skoða hinn fræga ,.fljót- andi markað" Bangkokborgar, en eng- inn getur verið þekktur fyrir að iiafa átt viðdvöl í höfuðborg þeirra Siams- búa eða Thailendinga, eins og þeir nefna sig oftast sjálfir, án þess að sjá hann. Hitinn er þægilegur, tæpar 25 gráð- ur, en loftslagið er hér langtum betra en margur útlendingur ætlar, meðal- hiti ársins tæp 28 stig. Það rigndi í nótt, og laust fyrir dögun skullu skruggur, en með morgninum breytt- ist veður til hins betra. Loftið er hreinna og tærara en að undanförnu. Móða er þó yfir, svo sem jafnan mun hér. Er trúlegt að þungt verði yfir og lieitt í veðri um hádegið. Meðan báturinn ber okkur norð- vestur ána virði ég fyrir mér formann- inn og smásveininn, son lians. Þeir bera öll liin tliailenzku einkenni, fað- irinn lágvaxinn, grannur, hörundið brúnleitt, augun dökk, lítið eitt ská- sett, nefið breitt, munnurinn fremur stór, varirnar þykkar, kinnbein há, hárið svart og slétt, svipurinn góðleg- ur, drengurinn hýr í bragði, kvikur í fasi og öruggur til aðstoðar föðurnum. Þeir taka tal saman. Svo segir faðirinn frá, sonurinn hlustar, eftirvæntingar- fullur, opnum munni. „Þeir eru að tala um ána“, sagði leiðsögumaðurinn, er ég bað hann svala forvitni minni. „Forfeður þeirra liafa, öldum saman, verið ferjumenn, og faðirinn er að segja frá afa sínum, sem taliún var mikið hraustmenni og komst oft í hann krappann. Nei, þeir eiga ekki bátinn. Flestir ferjubátanna eru eign Kínverjanna, sem hafa næst- um alla þræði atvinnulífs okkar í höndum sér, þótt þeir séu ekki nema um sjötti hluti þeirra 17 milljóna, sem byggja þetta land.“ Þannig er Jtað í Austurlöndum. Fá- menn yfirstétt heldur öllum Jrráðum atvinnulífs í höndum sér. Þess vegna dreymir lítinn, thailenzkan dreng, að liann muni stjórna eigin skipi á ánni, Jregar hann er orðinn eins stór og sterk- ur. og faðirinn, sem söguna segir eða langafinn, er sagan greinir frá, en Jreg- ar hann horfir ntiðaldra í augu sonar- ins, þá er hvergi nerna Jrar að finna nokkra von um, að sá draumur ættar hans eigi eftir að rætast. Upptök árinnar eru langt norður í landi, fimmtán hundruð kílómetra frá mynninu úti við Siamsflóann, en það er nú góðan spöl sunnan við Bangkok, sem Jró var reist á fremstu nöf Jress lands, er Jzá hafði myndast báðum megin óssins, Jrar sem áin féll í hafið. Einu sinni stóð önnur höfuðborg, Ayudhya, við mynni þessa sama fljóts. Nú situr hún langt uppi í landi, æru- verðug en ellifúin. Árbakkarnir neðan liennar vitna einnig um sögu höfuð- Sigurður Magnússon, kennari, er löngu þjóðkunnur rithöfundur og útvarpsmað- ur. Hefur hann nteðal annars náð vin- s.ældum fyrir ferðaþætti sína, en hann hefur komið víða og sérstaklega ferðazt niikið með flugvélum. Síðar í haust kem- ur út hjá Norðra bók með ferðaþáttum eftir Sigurð, og kaliar hann Iiana „Veg- ur var — yfir“. Hér birtist hluti af loka- kafla bókarinnar um hið margbrotna og merkilega Iíf fólksins á síamiska stórfljót- inu Menam. ----------’J 6

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.