Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1953, Page 11

Samvinnan - 01.10.1953, Page 11
 SÍS hafði frumkvæðið um að finna markað fyrir smárækju í Ameríku. Húsmóðirin vestur í Boston í Bandaríkjunum hafði lokið við upp- þvottinn og tekið til í eldhúsinu eft- ir hádegisverðinn, en börnin voru far- in út. Hún gekk inn í stofu, opnaði sjónvarpstækið og settist niður. Það var húsmæðraþáttur, sem hún ætlaði að horfa á, en Stjörnubúðirnar sjá um þennan þátt daglega. Fyrst sá hún myndir úr fallegu eldhúsi, þar sem ung kona var að matreiða og skýrði jafnframt uppskriftina. Síðan kom fram söngvari og flutti tvö hugnæm lög, og svo eldhúsið aftur. Unga elda- buskan sneri sér að áhorfandanum fyrir framan sjónvarpstækið og sagði: „Nú skulum við reyna nokkra rétti, sem eru alveg nýir, og eru framreidd- ir með Engilrœkjum frd Islandi, sem fást aðeins í Stjörnubúðunum. Engil- rækjurnar lifa í kristaltærum fjörðum Islands, og eru miklu minni en þær rækjur, sem við erum vön, þótt þær séu fullvaxta, en þær eru eftir því Ijúffengar. Sjómennirnir koma með þær ferskar að landi og þær eru þeg- ar soðnar, hreinsaðar og hraðfrystar. Næst þegar þið bjóðið gestum heim, skuluð þið koma þeim á óvart með ljúffengum rétti með Engilrækjum, og síðan getið þið sagt þeim söguna af þessum dásamlegu, litlu skeldýr- um norðan frá Islandi.“ Síðan hélt eldabuskan áfram og lýsti uppskriftinni um leið og hún sjálf matreiddi „Angel Shrimp a la Newburgh“ og minnti auðvitað á það, að hraðfrystar Engilrækjur frá Islandi fengjust aðeins í Stjörnubúð- unum. Ef við rekjum aftur á bak sögu rækjunnar, sem matreidd var „a la Newburgh“ í sjónvarpi vestur í Bost- on, reynist leið hennar hafa legið í stórum frystibílum frá New York til Stjörnubúðarinnar í Boston, í kæli- lestum Jökulfells frá ísafirði til New York og loks með rækjubát úr inn- anverðu ísafjarðardjúpi til frysti- hússins. Fryst rækja hefur um skeið verið útflutningsvara frá íslandi, og mun mega þakka það amerískum manni, Herbert S. Placanica að nafni. Hann eru sölumaður vestan hafs fyrir sjáv- arafurðir, sem SlS tekur í umboðs- sölu, og eru það að sjálfsögðu aðal- lega fiskflök. Eitt sinn, er hann heim- sótti ísland, borðaði hann þessar litlu (Framh. á bls. 20.) Rcclijan kemur i kössum til verksmiðjunnar. Svona er rœkjan soðin fyrir pökkun. 11

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.