Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1953, Qupperneq 27

Samvinnan - 01.10.1953, Qupperneq 27
I HÚSMÆÐUR! ÍSLENZKAR HÚSMÆÐUR nota stangasápu mikið, og hafa langa og góða reynslu af SÓLSÁPUNNI. Nú fást einstakar stangir í nýjum pökk- um, en sápan er eins og áður, sambæri- leg við, eða betri en allar slíkar sáp- ur, sem eru á markaðinum. — FYRIR NOKKRUM ÁRUM var blautsápa seld í tunnum og afgreidd í lausri vigt til húsmæðra. Nú hefur SJÖFN byrjað að pakka KRISTALsápunni í plastumbúðir og pappaöskju þar utan um. Eru þetta mikil framför og húsmæðrum til þæginda. — Spyrjið því ávallt um KRISTAL-SÁPU SÁPUVERKSMIÐJAN SJÖFN í i \ \ \ \ Skyndilega hörfaði hann aftur á bak og hrópaði: ,,Hvað! Eruð það þér, herra?“ Ég leit aftur á manninn og sá, að þar var kominn vin- ur minn Don José. Á þessu augnabliki iðraði mig þess að hafa bjargað honum frá gálganum. „Eruð það þér, félagi góður?“ hrópaði ég og brosti eins eðlilega og mér var unnt. „Þér trufluðuð þessa ungu stúlku, þegar hún var að segja mér fyrir mjög merkilega hluti!“ „Alltaf sama sagan. Þetta skal taka enda!“ hvæsti hann á milli tannanna og leit hana illu auga. Meðan þessu fór fram, talaði stúlkan í sífellu við hann á sínu einkennilega tungumáli. Hún varð æ æstari. Augun urðu grimmdarleg og blóðhlaupin, andlitsdrættirnir stirðnuðu, hún stappaði niður fætinum. Hún virtist vera að telja hann á að gera eitthvað, sem honum var þvert um geð. Hvað það var, þóttist ég skilja næsta vel, því að um leið og hún talaði, dró hún fingurinn hvað eftir annað um þveran háls sér. Ég hafði gilda ástæðu til að ætla, að hún vildi láta skera einhvern á háls, og einhvern veginn grunaði mig, að það væri enginn annar en ég sjálf- ur, sem ætti að verða þess vafasama heiðurs aðnjótandi. Tvö eða þrjú stutt orð voru einu svörin, sem Don José gaf við mælskuflóði hennar. Þá leit hún á hann með megn- ustu fyrirlitningu, settist síðan í eitt hornið að tyrknesk- um sið, þreif appelsínu, reif af henni börkinn og tók að eta. Don José tók í handlegg mér, opnaði dyrnar og leiddi mig út á götuna. Við gengum tvö hundruð skref í djúpri þögn. Þá rétti hann mér hendina. „Farið beint áfram,“ mælti hann, „og þá munuð þér koma að brúnni.“ Að svo mæltu snerist hann á hæli og stikaði stórum sömu leið til baka. Ég gekk heim á veitingahúsið í fremur slæmu skapi yfir þessum málalokum. Þó keyrði fyrst um þverbak, þegar ég háttaði og tók eftir því, að úrið mitt var horfið. Ýrnsar ástæður lágu til þess, að ég krafðist þess ekki dag- inn eftir og bað heldur ekki Corregidorinn að vera svo vænan að leita að því fyrir mig. Ég lauk rannsókn minni á Dominíska handritinu og hélt síðan áfram til Sevilla. Eftir nokkurra mánaða flakk hingað og þangað um Anda- lúsíu, fýsti mig að lialda enn á ný til Madrid, og varð ég þá að leggja leið mína um Cordova. Ég ætlaði mér ekki að hafa þar viðdvöl, því að ég hafði fengið andúð á þessari ágætu borg og hinum fögru konum, sem böðuðu sig í Guadalquivir. Þrátt fyrir þetta varð ég að fara í nokkrar heimsóknir og sinna ýmsum erindum, og fyrir þá sök tafð- ist ég um nokkra daga í þessari fornu höfuðborg hinna múhameðsku prinsa. Um leið og ég birtist í klaustrinu, kom einn munkur- inn, sem sýnt liafði mikinn áhuga á rannsóknum mínum varðandi vettvang orrustunnar við Munda, fagnandi á móti mér og hrópaði: „Lofaður sé Guð: Verið þér velkominn, kæri vinur! Við héldum allir, að þér væruð dáinn, og marga stundina hef ég beðið pater og ave yður til sáluhjálpar (og ekki iðrar 27

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.