Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1955, Síða 2

Samvinnan - 01.12.1955, Síða 2
Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga. Ritstjóri: Benedikt Gröndal. Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, Re}-kjavík. Ritstjórnarsími 7080. Kemur út mánaðarlega. Verð árgangsins kr. 50.00. Verð í lausasölu 5 kr. Prentsmiðjan Edda. Efni: Bls. != Hátíð friðarins — þrátt fyrir allt ................'. . . 3 Frá Hamarsfirði til heims- borganna ................. 4 Loforðið, jólasaga, eftir Preben Schultz ........... 8 Þar glitra daggir . . . ferða- þættir, eftir Sigvalda Hjálmarsson ............. 10 Hagyrðingur kveður sér hljóðs, vísur eftir Trausta Reykdal ................. 12 Arnold Toynbee, frægasti sagnfræðingur vorra tíma 13 Frægir málarar VI.: E1 Greco ................ 14 Jólakveðja, eftir Sigurð frá Brún .................... 15 Jól í fásinninu, saga eftir Garðar Jóhannesson .... 16 Ferð Umjaans gamla........ 19 Kengúran................... 21 Ævintjmið um Cesar Ritz .. 22 SIS Austurstræti, mynda- opna .................... 24 Framhaldssagan: Hrekk- vísi örlaganna, sögulok . . 26 „Melgrasskúfurinn harði“ er meitlaður í kjarna þjóð- arinnar ................. 30 Jólapakkar og jólabakstur, eftir Ástu Jónsdóttur . . 32 Rósin frá Ríó, ný framhalds- saga fyrir börn ........... 35 DES. 1955 XLIX. ÁRG. 12. Kjarabótum kjörbúðar kynnist þjóðin von bráðar. — Kjarabúð og kaupfélag koma verzlun bezt í lag. Hjörtur Þórarinsson. Kjörbúð SÍS er kraftaverk, kjörbúð SÍS er nýjung merk. Ef kjörbúð SÍS þú kemur í, þín kjörbúð verður upp frá því. Valdimar K. Guömundsson. UM ÞAÐ BIL, sem síðasta örkin af þessu jólahefti fer í prentvélina, er verið að opna á Akureyri fjórðu kjör- búðina, sem samvinnufélögin standa að, og hina fjórðu í landinu. Er sú á Akureyri, við sjálft Ráðhústorg, mynd- arleg og fögur, eins og KEA var von og vísa. Það er merkilegt við þessa verzlun, að hún er ekki innréttuð eða skipulögð eftir dönskum fyrirmyndum eins og sunnlenzku búðirnar, heldur eftir sænskri gerð. Er þar á nokkur munur, sem mun að vísu ekki vera mikill í augum félagsfólksins, en get- ur skipt nokkru máli fyrir þá, sem stjórna og eiga að finna hið hentug- asta form fyrir íslenzkar aðstæður. Þótti samvinnumönnum skynsamlegt að sækja fyrirmyndir til beggja frændþjóða okkar, Dana og Svía, sem hvorir tveggja standa í fremstu röð í heiminum í gerð slíkra verzlana. KJÖRBÚÐ var nafnið, sem dóm- nefndin í samkeppninni valdi, og hafa spunnizt um það nokkrar deilur, eins og vænta mátti. Hátt á annað hundr- að manns höfðu sent tillögu um orð- ið valbúð, sem nefndin þó hafnaði og taldi ekki eins gott og kjörbúð. Menn sýndu aðdáanlegan áhuga í þessari samkeppni og alls voru það 623, sem sendu tillögur. Sumir sendu jafnvel yfir 20 tillögur. Það kann að vera ein- hverjum til nokkurrar skemmtunar og fróðleiks að sjá sýnishorn af þess- um tillögum. Forfeður okkar voru frá- bærlega orðhagir og ýmis forn heiti eru gimsteinar. Eftir þessum tillögum geta menn svo dæmt um, hvort nú- tímamenn eru verrfeðrungar. Þetta er aöeins lítill hluti af nafngiftunum: Kjörbúð, valbúð, rásbúð, hraðbúð, kaupvangur, hraðsala, snarbúð, sjálf- henda, körfubúð, kaupskemma, sísala, hagbúð, vildarsala, gripla, kjörbjörg, búrverzlun, hagsala, valsalir, velja, lystibúð, léttiverzlun, handbúð, vals- verzlun, kvikk-búð, valgreiðslustöð, tínubúð, sólóverzlun, f jölhagsstöð, ný- sala, handraði, búrbúð, sjálfselja, ráp- sala, göngubar, valhöll, valtína, fjöl- sala, sölugerði, kauptröð, autohrað, hremma, sælusala, sjálftaka, örskipti, kjörskáli, sýslun, reiðusala, biðléttir, kjós, fjölhöndlun, sjálfbirgingsverzl- un, eiginþjónustuverzlun, snillistýrð- arverzlun, djarfstýrðarverzlun, hrað- mangari, kjarvalsbúð, sjálfbirgingur, hrifsiverzlun, gramsverzlun, útíhönd- verzlun, stallbúð, personaldeild, tak- sjálfverzlun, höndlverzlun, álitsdeild SÍS, beitarverzlun, rápsala, röltkaup, randbúð, svinglbúð, regludeild, al- menningsafgreiðsla, gripdeild, val- þjófsstaðir. MYNDIRNAR af listaverkum Rík- arðs Jónssonar tók Alfreð D. Jónsson ljósmyndari. Norðri gefur nú út mjög fallega og vandaða bók með myndum af listaverkum eftir Ríkarð. Norðri er þrjátíu ára um þessar mundir og gef- ur í því tilefni út bókina „Gamlar myndir". Myndirnar eru valdar úr söfnum elztu ljósmyndara á íslandi. Myndirnar úr kjörbúð SÍS í Aust- urstræti og myndina af Sambands- húsinu tók Þorvaldur Ágústsson. Myndirnar í sögurnar „Jól í fásinn- inu“ og „Loforðið" teiknaði Gísli Sigurðsson. SAMVINNAN óskar öllum lesendum sínum gleðilegra jóla, árs og friðar V_________________, 2

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.