Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1955, Page 4

Samvinnan - 01.12.1955, Page 4
Frá Hamarsfirði til heimsborganna Svipmyndir úr viðburðaríkri ævi listamannsins Ríkarðs Jónssonar Skápshurð (mahogni). Eigandi Benedikt Ög- mundsson, skipstjóri. Það var uppi fótur og fit á Strýtu í Hamarsfirði einn vorkaldan dag í aprílmánuði árið 1905. Jón bóndi tók hesta og lagði á. Ólöf húsfreyja raðaði fötum niður í koffort. Unglingur á sevtjánda ári með fíngerða drætti og draumlyndi í augunum, tók nokkra útskorna muni úr tálgusteini ofan af hillu og setti þá í koffortið. Það var nokkur óeirð og ferðahugur í drengn- um, því að hann var að leggja af stað til höfuðstaðarins — í námsför. Fjögur yngri systkini stóðu hjá og undruðust þessa dirfsku hjá stóra bróður. Skipið fór frá Djúpavogi og þangað lá leiðin fyrst. Foreldrar drengsins fylgdu honum til skips, en það var klukkustundar ferð. Jörð var auð, en kuldi og krap í loftinu. Dreng- urinn kvaddi móður sína í fjörunni, en faðir hans reri með honum út í skipið ásamt verzlunarmanni einum á Djúpavogi, sem hét Páll H. Gísla- son og hafði átt sinn þátt í því, að drengurinn fór þessa för. Skipið hét „Hólar“ og annaðist strandferðir. Hafði verið pantað ká- etupláss fyrir drenginn, en einhverra hluta vegna brást það og var hon- um sagt, að hann mundi fá koju frá Hornafirði. Hann var öllu vanur til lands og sjávar og setti ekki fyrir sig að standa ofanþilja til Homafjarðar, enda dagurinn fyrir hendi. Það syrti í lofti, er á daginn leið, og hver krapahryðjan rak aðra. Káetu- plássið frá Hornafirði brást líka. Nótt- in var nú að detta á og drengurinn gekk um þiljurnar og orti sér til hug- arhægðar. Hann hafði reyndar byrj- að á því löngu fyrir fermingu. Hann var í venjulegum íslenzkum ullarföt- um, en næðingurinn smaug í gegn um þau og honum var kalt. Auk þess fór skipið að velta og hann gerðist sjó- veikur. Hann fann að lokum þröngt skot uppi við reykháfinn og þar settist hann. Þar var að minnsta kosti af- drep fyrir ágjöfinni. Þegar drengnum var að renna í brjóst, kom þar að gamall maður og spurði, hvort hann hefði ekki káetu- pláss og sagði drengurinn sem var. Bauð þá maðurinn honum koju sína og bar nú ekki til tíðinda sem eftir var ferðarinnar suður. Reykjavík var ekki víðáttumikill bær árið 1905. Byggðin var í mið- bænum, með Vesturgötunni, Lauga- vegi og Hverfisgötu og að nokkm neðst í Þingholtunum. Austfirzkum dreng, sem steig þar á land í fyrsta sinn, þótti að vísu nokkuð til þess koma. Ekki þekkti hann nokkra lif- andi sál í þessum bæ. Kennarinn til- vonandi átti að taka á móti honum, en hann hafði ekki varað sig á skips- komunni. Drengurinn sneri sér þá til gamla mannsins, sem hafði lánað honum kojuna sína, og þar stóð ekki á fvrirgreiðslu. Þessi maður reyndist vera Böðvar póstur frá Vopnafirði. En drengurinn frá Strýtu hét Rík- arður Jónsson og skyldi hann nú nema tréskurð hjá Stefáni Eiríkssyni „hinurn oddhaga“ í Reykjavík. Stef- RikarSur Jónsson, sextugur. 4

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.