Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1955, Page 7

Samvinnan - 01.12.1955, Page 7
jjjgimi ' , NORDj • ' áz. * f'‘; •: Til vinstri er hin frœga prófsmíð Rikarðs. Það er spegilurngjörð, sem nú er eign Þjóðminjasafnsins. Myndin til hœgri er af Konungshorninu, en j/að voru skipshafnir af norskum skipum, sem gáfu hornið konungi sinum, Hákoni VII, að striðinu loknu. Uppi’ í Hultrahömrum heyrði eg undrið tala. Eg var barn að aldri — eg var þá að smala. Heyrði’ ég lágt í leyni ljúfum hvíslað orðum; Ekkert land á unað eins og þar var forðum. I Hamarsfirði austur er Iandslag stórbrotið og hrikalegt. Hamrar og strýtur og ægifagur Búlandstindur er eins og stórkostlegt höggmyndasmíði og litríkt málverk í senn. I Hultra- hömrum er rauður tálgusteinn og í Tobbugjótarkambi er brúnn steinn. Langt inni á Búlandsdal er jafnvel til grænn tálgusteinn. Það var að vonum, að svo f jölskrúð- ug náttúrufegurð markaði spor í næma barnssál. Um aldamótin síðustu gekk tólf ára drengur um þessa haga og safnaði sér tálgusteinum. Hann hefur ef til vill leitað að óskasteinum líka. Að minnsta kosti átti hann sér takmark. Þessi drengur hét Ríkarður Jóns- son, og þótt ungur væri, hafði hann þá þegar getið sér orðstír vítt um sveitir fyrir óvenjulegan hagleik. Það kom samt engum á óvart, því að drengurinn átti til listfengra að telja í báðar ættir. Það voru smiðir, bókamenn og hagyrðingar, en Jón Þórarinsson, faðir Ríkarðs, mun þó hafa verið mestur snillingur þeirra. Alla þessa góðu eiginleika hlaut dreng- urinn í vöggugjöf í ríkum mæli. Foreldrar Ríkarðs bjuggu að Tungu í Fáskrúðsfirði og þar fæddist hann 20. september 1888. Móðir hans var Ólöf Finnsdóttir, ættuð þar frá Tungu, en faðir Jón Þórarinsson, bónda á Núpi á Berufjarðarströnd. Hann var tvígiftur, átti með fyrri konu sinni átta börn, en þau dóu öll í æsku. I báðar ættir Ríkarðs voru traustir stofnar, greint og gott bændafólk, orðlagt fyrir hagleik. Þau Jón og Ólöf fluttu að Eyjum í Breiðdal þegar drengurinn var miss- iris gamall, en ári síðar að Strýtu í Hálsþinghá í Hamarsfirði. í því fagra umhverfi ólst Ríkarður upp til fjórtán ára aldurs. Snemma beygist krókurinn að því, sem verða skal. Svo fljótt sem Rík- (Framh. d bls. 28) 7

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.