Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1955, Blaðsíða 10

Samvinnan - 01.12.1955, Blaðsíða 10
ÞAR GLITRA DAGGIR . . . Ljusnan, lífæð Helsingjalands Degi var tekið að halla og skugg- arnir af trjánum farnir að lengjast. Milli skógi vaxinna ása og hæða lið- aðist Ljusnan, lífæð landsins, á sama hátt og hún hefur gert um þúsundir ára, hvort sem dalverpi hennar og hliðar ánna voru byggð steinaldar- mönnum eða sonum atomaldar, ell- egar meðan maðurinn hafði ekki markað spor sín í sandinn við bakka hennar, troðið og beitt grasið, rutt skóga og brennt, né heldur gengið á vit guða sinna í helgum fórnarlund- um, hofum og kirkjum. Dagur í sögu árinnar er sem dropi í gífurlegu vatns- magni hennar. Enn einn var að líða og nú glampaði aftansólin enn einu sinni á lygnu vatnsborði árinnar, þar sem hún hvílir sig í Vognum. Ein- hvers staðar langt, langt inni á milli fjallanna var hún bara lækur, og eft- ir 430 km leið yfir landið fellur stór- fljót til sævar. FRÁ LJUSNETJÁRNEN TIL LJUSNE STRÖMMAR. Það er lítil á, sem fellur út úr Ferðaþættir eftir SIGVALDA HJÁLMARSSON Ljusnetjárnen rétt hjá landamærum Noregs og Svíþjóðar. Þetta er í 884 m. hæð yíir sjávarmál, og handan yf- ir landamærin fellur vatn til hennar af 2 km2 lands, en alls flytur hún brott vatn af 19.800 km2. Áin fellur í fyrstu meðal háfjallanna og innbyrðir hverja hliðarána af annarri. Hún lækkar sig ört áður en hún liðast út á brúksvell- ina í Ljusnedla, þar sem koparmynt var slegin fyrrum, en síðar unnið járn og nikkel. För hennar heldur áfram um Herdal, hið lítt bj^ggða en mjög skógi vaxna fjalllendi; framan af er hún stríð og fljót í ferðum, en er lengra kemur verður hún kyrrlátari. Flestöll fallvötn í Herdal enda skeið sitt í skauti hennar og þegar við Sveg, höfuðborg Herdals, er hún orð- in að vatnsmiklu fljóti, sem streymir þungt og hægt milli lágra, furuklæddra sandása. Á stöku stað myndar hún hólma, sem geta verið ævintýralega fagrir og gefið ánni svip stöðuvatns fremur en straumvatns. Þegar hún tekur að nálgast vest- urmörk Helsingjalands, hefur hún enn bætt við sig vatni, svo að til muna verður. Farvegur hennar lækkar nú til muna, og í Fárila, ofarlega í Hels- ingjalandi, er Laforsen, þar sem lax- inn strandar í ástríðufullri sókn sinni móti straumnum. Hér er fyrir nokkru hafin vegferð hennar um landið, sem hún hefur gætt lífi um þúsundir ára. Hún var drottning þess, er maðurinn leit það fyrst, og fóstra byggðarinn- ar er hún nú, gjafmild og hjálpsöm, ekki síður en þá, er fyrstu landnem- arnir lögðu leið sína upp með henni. FIÐLU-JÓN VIÐ FOSSINN. Nú opnast víðar byggðir og bú- sældarlegar, sem verið hafa vettvang- ur mikilla örlaga, menningarstarfs og baráttu um margra alda skeið. Á þess- um slóðum „féll dögg og draup regn“ í sveitasögum Margitar Söderholm. 10

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.