Samvinnan - 01.12.1955, Side 12
S<L
yis *!%
Hagyrðingur kveður sér hijóðs
Nokkrar tausavísur eftir
Trausta Reykclal á SigLufirði
Trausti Árnason Reykdal er fædd-
ur að Mýlaugsstöðum í Aðalreykja-
dal í Suður-Þingeyjarsýslu 7. ágúst
1888. Foreldrar hans voru: Guðbjörg
Guðmundsdóttir og Árni Kristjáns-
son, bæði af þingeyskum ættum.
Trausti var yngstur af 12 systkinum
og missti föður sinn tveggja ára að
aldri. Olst upp frá 4 ára til 15 ára
aldurs hjá hjónunum Kristjáni Jóns-
syni og Kristjönu Flóvensdóttur að
Hólmavaði í sömu sveit. Var síðan í
vinnumennsku um skeið þar um
sveitir. Fluttist til Akureyrar 1908.
Var á Akureyri til 1930. Stundaði
smíðar, fiskmat og vinnu sem lög-
giltur vigtarmaður. Gerðist þar næst
bóndi í Skagafirði: fyrst á Hvalnesi í
Skefilsstaðahreppi, síðan að Hrafna-
gili í sömu sveit. Fluttist til Siglu-
fjarðar árið 1942 og hefur átt þar
heima síðan. Hann er tvígiftur. F}rrri
koná hans var Sigurbjörg Flóvents-
dóttir. Hún dó 1914, þrem árum eftir
að þau giftust. Síðari kona Trausta
er Anna Tómasdóttir.
Á Siglufirði stundaði Trausti fisk-
mat, afgreiðslustörf o. fl., en er nú
orðinn hedsubilaður og þolir lítt
vinnu. Hann er deildarstjóri í Kaup-
félagi Siglfirðinga og samvinnumaður
góður.
Trausti er prúðmenni og snyrti-
menni. Vel gefinn niaður og fjölhæf-
ur að upplagi. Hann hefur vndi af
ljóðum og hefur sjálfur allmikið ort.
Hann er fljótur að kasta fram stöku,
og birtir Samvinnan hér sýnishorn af
stökum hans.
SAMVINNAN.
Sarnan vinna er hugsjón heið,
heilla spinnur þræði,
öruggt tvinnar lífs á leið
láns og vinnings gæði.
Þraut er létt, ef þunga er skipt,
úr þreyttra réttist bökum.
Hefir þetta þyngstum lyft
þjóðar Grettistökum.
Bál frá eldi bræðralags
hirtu veldur skærri.
Allt að kveldi efsta dag
eining heldur tærri.
VORAR SEINT.
(Höf. var að leita í vinningaskrá.)
Lítið gróður hefir hjarnað,
— hugarlöndin grá af sinu. —
Ennþá er ntér vinnings varnað.
— Vorar seint í Happdrættinu.
Á HESTBAK ÞÁ!
Bezt að taka lífi létt,
láta vaka drauma.
Hlaupa á bak og hleypa sprett,
hafa slaka tauma.
BJARTSÝNI.
Saman binda af bragarsmið
bjartar rnyndir skyldi:
kærleik, yndi, ást og frið,
auðnu og lyndismildi.
SÓLARLAG.
Þýtur í stráum þeyrinn hljótt,
þagnar kliður dagsins.
Guð er að bjóða góða nótt
í geislum sólarlagsins.
ENN ER VON FYRIR ALLA.
Enn er von tim ást og skjól,
eilíf hjálpargæði.
Ennþá drottins signir sól
sauði og hafra bæði.
KVEÐIÐ I FLUGVÉL.
Létt sent þrá urn heiðin há
— himinbláar leiðir —
vængjum fráum flugan á
ferðastjáið greiðir.
Á ÆSKUSLÓÐUM.
Fornar slóðir finnast mér
faðminn bjóði að nýju.
Örar blóð um æðar fer,
yljað móðurhlýju.
HJÁ LAXÁ í AÐALDAL.
Hér við Laxár hörpuslátt
hægt er stríði að gleyma.
Eg hef — finnst mér — aldrei átt
annars staðar heima.
SKÝJAROF.
Hélu af þéttum skýjaskjá
skafa glettur vinda.
Sólskin.sblettum bregður á
brúnagretta tinda.
GAMAN AFTUR.
Veðrið hamast, vart finnst skjól,
viljans lamast kraftur.
Víkur ami, er vermir sól,
og verður gaman aftur.
LENGI LIFIR í GÖMLUM
GLÆÐUM.
011 þó virðist ævintýr
undir fortíð heyra,
getur bros og geisli nýr
gefið von um nteira.
12