Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1955, Side 18

Samvinnan - 01.12.1955, Side 18
upp. Auðir gluggarnir minntu á star- andi, brostin augu. Plata hafði losnað á þakinu; hún tísti ámátlega, þegar vindurinn svipti henni til og frá, á þessu eina horni, sem fast var. Líklega færi hún alveg í nótt. Nú sáust þar ekki lengur spor eftir litla fætur í snjónum kringum bæinn. Það var sagt, að bóndinn hefði fengið vinnu á Vellinum.-----Sama- stað syninum hjá — samastað synin- um hjá. Það bjó heldur enginn lengur í Króki, kotinu næst fyrir austan. Nei, Árni gamli var nú ekki lengur þar. Þessi tvö ár, sem hann bjó þar einn, eftir að konan hans dó, höfðu þeir verið saman jólakvöldin. Arni hafði helzt alltaf viljað tala um fortíðina. Hann vildi helzt tala um framtíðina. En þeir nutu samverunnar þrátt fyr- ir það. — Og hann hafði setið og horft á hrukkótta andlitið, beinaberar hend- urnar, gráu hártoppana kringum skallann á Árna gamla, og fundið til þess, hvað Arni var orðinn gamall —' en hann ungur — og þó var alltaf ein- hver birta yfir gamla andlitinu hans Árna. Sonur Árna stundaði verzlunarnám í Ameríku. Árni var mjög hrifinn af syninum — hann talaði mest um soninn fyrir utan fortíðina og búskap- inn. Svo kom sonurinn heim frá Ame- ríku og gerðist sölumaður. Hann kom að Króki haustið eftir rigningasum- arið í nýjum, amerískum bíl — í bíln- um með honum var útlenzkur kjöltu- rakki, ófreskja hin mesta. Já, hann var mjög fínn maður, sölumaðurinn, sonur hans Arna gamla. Hann dvaldi nokkra daga í Króki, hjá föður sín- um, kom reyndar að Hloti líka — til að fá lán; hann var að gera stóran „bissness“, sagði hann, og vanhagaði um fáeinar krónur. En hann fékk ekk- ert lán. Það var nú aðallega vegna rakkaræksnisins. Árni kom með mjög lítinn fóður- bæti úr kaupstaðnum um haustið; hann var nú ekki vanur að kaupa mikið af svoleiðis vöru — treysti oft- ast á heyið og beitina. En heyin voru ón}'t, og allir vissu, að nú yrði að gefa mikið af fóðurbæti með þeim og beitinni. Þegar forðagæzlumaður- inn fór að athuga þetta, kom í ljós, að Árni skuldaði talsvert, og um frekari úttekt var ekki að ræða, nema gegn tryggingu. — Enginn skildi þetta; áður hafði hann alltaf átt inni, og það ekkert litla upphæð. Hann notaði heldur ekki óþarfann, hann Árni. Þegar tryggingin var fengin, var það um seinan, allur fóðurbætir var búinn. Litlu seinna urðu allir vegir ófærir. Snjóaveturinn var kominn. Hann hafði boðið Árna að lána hon- um, þó að hann vissi, að birgðirnar, sem hann hafði, voru sízt of miklar. Árni eyddi því alltaf, sagðist koma, ef hann þyrfti þess með; að það hlvti að koma snöp, að fóðurbætirinn hlyti að komast til þeirra, að Kalli sinn hefði einhver ráð, ef allt annað brygð- ist — ekki vissi hann þó til, að sölu- maðurinn hefði einu sinni skrifað Árna, hvað þá meira. Auðvitað hefði bann átt að skoða í hlöðuna hjá Árna, en honum fannst einhvern veginn, að hann hefði glatað trúnaði hans. Að hann væri sér reiður. Hann vildi, að sölumaðurinn hefði ekki haft með sér þennan hundskratta, þá hefði hann líklega lánað honum þessar krónur. En ef til vill hefði það engu breytt. Allir voru nú líka orðnir hræddir við heyleysi. Það þurfti sterkar taug- ar til að horfast í augu við hordauð- ann, heyra jarm og tannagnístran skepnanna, þegar komið var í húsin. Sami kuldinn dag eftir dag, oftast snjókoma eða skafrenningur. Stund- um var hreinviðri, en einhver móða í loftinu, svo að dauft sólskinið var eins og háðsglott yfir snæbreiðunni, sem lá yfir öllu. Svo var það eitt kvöld seint á ein- mánuði, að forðagæzlumaðurinn kom að Króki. Kindurnar voru úti, en gef- ið hafði verið á garðann, að heita mátti síðasta heyið. Hann fann Árna gamla hvergi. Morguninn eftir fundu þeir sporin hans — þau lágu niður að vök, sem var á ísnum á ánni, í snjón- um, sem var farinn að blána í fyrsta hlákublota vetrarins. Djúp spor, sem lágu beint að vökinni. Sölumaðurinn kom þá um vorið til að koma arfinum í verð. Hann mundi svo vel, hvað búslóð Árna gamla hafði verið ömurlega umkomulaus, þegar búið var að bera hana út; hon- um hafði orðið óglatt — suma við- stadda hafði hann séð glotta. Sölumaðurinn var prýðilega búinn — hann hafði gleymt að borga um- hirðu á arfinum — en það krafði hann heldur enginn. Ekki var útförin hans Árna dýr. Sjálfur hafði hann valið legstaðinn, þegar hann áleit allt tapað. Áin ann- aðist hitt, hún söng yfir honum, og einhvers staðar voru gömlu beinin hans sandorpin, í óhreinu hversdags- fötunum. Góður sölumaður var Kalli. Kotið seldi hann nokkrum stangarveiði- mönnum; þeir urðu að kaupa það, til að fá veiðiréttinn í ánni. --------I dag er glatt í döprum hjörtum.--------- Stormurinn þeytti mjöllinni á gluggann. Það söng í símaþræðinum, dularfullum, þunglyndislegum tón, sem stundum var mjór og titrandi, svo hækkandi — sterkur. Uti sást ekkert nema kóf, enda þurfti nú langt að horfa eftir ljósi — ekki hafði hann heyrt símann hringja í kvöld. Hann hlustaði á jólakveðjur til sjó- manna, og það lá við, að hann öfund- aði þá af kveðjunum. En eflaust voru margir, sem engar kveðjur fengu, en börðust við storminn kaldir og ein- mana. Svo lokaði hann útvarpstækinu. Það var verst með veðrið. Jæja, mað- ur kæmist svo sem að því á morgun, hvernig það yrði. Og hann tók lamp- ann og gekk inn í stofuna til að ná sér í bók. Hann litaðist um í daufu skini lampans, leit á húsgögnin, raðir bókanna. Hér var allt fágað og hreint. En það vantaði eitthvað eða ein- hverja næma hönd, sem gerði hana vistlega. Hann lyfti lampanum og horfði á myndir foreldra sinna.----- Gleðileg jól, pabbi og mamma, sagði bann hljóðlega. Svo tók hann „Sjálf- stætt fólk“ úr skápnum og gekk upp á loftið. (Framh. d bls. 31) 18

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.