Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1955, Qupperneq 23

Samvinnan - 01.12.1955, Qupperneq 23
að ieikningurinn væri of hár, brosti hann vingjarnlega, fór með reikning- inn og gleymdi að koma með hann aftur. Ef gestur var óánægður með steikina eða vínið, var það möglunar- laust tekið og honum boðið eitthvað annað í staðinn. Ritz var óvenjulega minnugur. Hann mundi, hvaða sígar- ettutegundir gestir hans reyktu, ef hann sá það einu sinni. Og ef einhver gesta hans gat t. d. ekki bragðað tómatsósu, kom það aldrei fyrir, að neitt slíkt væri nálægt honum. Ritz gaf oft ímyndunaraflinu laus- an tauminn. Eitt sinn ætlaði Caroline prinsessa af Bourbon að trúlofa sig, bað Ritz að útbúa veizluna og sagði honum að hafa hana eins og hann vildi. Þá útbjó Ritz veizlu, sem fræg er orðin: Við strendur vatnsins hjá Luzern flutu tólf blómum skreyttir og upplýstir seglbátar, og í hvert skipti, sem nýr gestur kom um borð, var marglitum flugeldum skotið frá stefninu. Stór bátur sigldi á milli smærri bátanna og bar gestunum mat og drykk. A fjórum tindum, sem stóðu upp úr vatninu, loguðu bálkestir. — Það þarf ekki að taka það fram, að gestirnir voru himinlifandi og lofuðu hugkvæmni snillingsins. Ritz fór til London árið 1882 til þess að taka við rekstri gistihússins Savoy. Þar var allt í hinum mesta ólestri. En með aðstoð eins af beztu matsveinum þeirra tíma, Escoffiers, tókst honum þó fljótlega að auka að- sóknina að gistihúsinu. Einnig lét hann gera gagngerar brevtingar. Stundum gekk hann á milli herbergj- anna, þegar búið hafði verið um, og átti það til að snúa við öllum sæng- unum til þess að vera fullviss um, að allt væri í lagi. Þegar hann leit eitt sinn eftir borðsalnum, komst hann að raun um, að það var dálítil sápa á einu glasinu, og sendi þess vegna hundruð glasa aftur til uppþvottar. Með þessu tókst honum að laða að sér heldra fólkið, og Savoy fékk þeg- ar á sig hið bezta orð. Nokkrum árum síðar hélt hann til Parísar. Þar rætt.ist einn af hans æðstu draumum: Á Placa Vendöme setti hann á stofn hið glæsilegasta af öllum Ritz-hótelum. Til þess að losna við alla óvelkomna gesti hafði hann forsalinn mjög lít- inn. Til þess að fá fólk til að koma á eftirmiðdögum og sitja og spjalla saman yfir bolla af kaffi eða tei lét hann útbúa smekklegan garð, svo að gestirnir gætu notið veðurblíðunnar. Af hreinlætisástæðum Iét hann mála veggi gistihússins í stað þess að vegg- fóðra þá, sem var algengt í þá daga. Hugmyndina að húsgögnum sínum sótti hann til Versala og Fontaine- bleau-hallarinnar, og af málverki eftir van Dyck fékk hann hugmynd- ina að litunum, sem hann notaði á veggina. Daginn, sem opnað var, var stöð- ugur straumur fólks, sem skoðaði gistihúsið eins og safn. Undrun fólks og aðdáun var geysileg, og heldra fólkið var í sjöunda himni. Á einum matseðli, sem ennþá er til, höfðu fjór- ir kóngar, sjö prinsar og fjöldi aðals- manna ritað nöfn sín. Um aldamótin byggði Ritz Hótel Carlton í London og fáurn árum síð- ar hið fræga Hótel Ritz á Piccadilly. Það var fyrsta byggingin í Englandi, sem var með stálgrind. Ritz hafði þráð að reisa slíka byggingu síðan hann skoðaði Eiffelturninn. Með aðstoð nokkurra auðmanna stofnaði Ritz alþjóðlegt félag, sem hafði urnsjón með rekstri Ritz-hótela um allan heim. Árið 1902 undirbjó Ritz veizlu í sambandi við krýningu Játvarðar konungs 7. Allt var tilbúið, þegar þau skilaboð bárust, að konungurinn hefði skyndilega veikzt. — Að kvöldi þessa erilsama dags fékk Ritz hjarta- slag. Þegar hann lá banaleguna, hvíslaði hann að konu sinni: „Gættu vel hennar dóttur okkar.“ Þau áttu tvo syni, en engar dætur. Þegar þau sín á milli töluðu um „dóttur sína“, áttu þar alltaf við Hótel Ritz í París. Arnold Toynbee (Framh. af bls. 13) Toynbee sinnti báðum þessum á- hugamálum sínum, þegar hann kom aftur til Englands. Hann kenndi sögu við Oxford háskóla og byrjaði að skrifa um alþjóðavandamál líðandi stundar. Um þau efni birti hann greinar í brezkum tímaritum eins og t. d. The Nation, og fyrstu bók sína, Þjóðerni og stríð, gaf hann út 1915 og sama ár Hin nýja Evrópa. Toynbee réðist til Brezku utanrík- isþjónustunnar og var einn af full- trúum Breta á friðarráðstefnunni í Versölum. Seinna gerðist hann pró- fessor í grísku, bókmenntum og sögu við Lundúna-háskóla. Þeirri stöðu hélt Toynbee þar til 1925 ,að honum var veitt lausn frá störfum til rann- sókna á Mannkynssögunni. Það var árið 1922 að Toynbee skrif- aði fyrstu punktana að hinu risavaxna verki um rannsóknir á Mannkynssög- unni. Eftir tólf ár komu þrjú fyrstu bindin út. Alls hafa komið út níu bindi. Af sex fyrstu bindunum hefur verið gefið út ágrip, og sú bók varð ein af metsölubókum ársins 1946 í Bretlandi og Bandaríkjunum. Toynbee býr í Kensington með seinni konu sinni, Veronica M. Boult- er. Skáldsagnahöfundurinn Philip Toynbee er sonur hans af fyrra hjóna- bandi. ,.Ég skrifa á hverjum morgni“, segir Toynbee, „hvort sem ég er vel upp- lagður eða ekki. Ef ég skrifaði aldrei nema þegar ég er vel upplagður, mundi mér ekki miða neitt“. Seinni part dagsins vinnur hann að Stiórnmálasögu seinni heimsstyrjald- arinnar og á kvöldin les hann upp- hátt fvrir konu sína. Er þá nokkur lærdómur fyrir tutt- ugustu öldina í þessu mikla verki Tovnbees? Ef fil vill er það aðeins það, að sam- kvæmt skoðunum Toynbees, hefur vestræn menning verið að veðrast og molna r íðastliðin fimm hundruð ár, og bersýnilega hefur hún ekki lengur styrk til að mæta hinum hræðilegu erfiðleikum, sem virðast vera á næstu grösum. Toynbee segir: „Við getum ekki sagt með vissu að dómsdagur sé í nánd og bó höfum við enga ástæðu fyrir bví. að svo sé ekki. Það væri sama og að segia, að við værum ekki ein~ og aðrir menn Slík niðurstaða bryti í báva við allt, sem við þekkjum um mannlegt eðli, hvort sem við lítum í kring um okkur eða í eigin barm“. f 23

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.