Samvinnan - 01.12.1955, Síða 32
Jólapakkar og jólabakstur
Eftir Ástu Jónsdóttir
J ólapakkarnir.
Þegar um jólagjafir er að ræða, er
það ekki aðeins innihaldið, sem hef-
ur gildi; umbúðirnar hafa líka sitt að
segja.
Myndskreyttur jólapappír er falleg-
ur og okkur finnst hann tilhevra jól-
unum. Tilbreyting er þó í að hafa eitt-
hvað af pökkum einlitt með fallegum
böndum. Venjuleg satin-silkibönd má
nota og nú fást alls konar falleg bönd,
dálítið stíf, sem hægt er að binda úr
ýmis konar slaufur og skraut á pakk-
ana. Hér fylgja nokkrar myndir, sem
sýna, hvernig fara á að því að búa til
slíkar slaufur.
1. Búið til tvær lykkjur og hafið
endana aðeins lengri en lykkjurnar.
Bindið fast utan um miðjuna með
mjóum þræði. Tvær eða fleiri slíkar
slaufur bundnar saman geta litið út
líkt og fjóluvöndur. Hnýtið með gul-
um þræði utan um bláar slaufur og
hvítar. Hnýtið utan um gular slauf-
ur með hvítu. Eða hafið tvær bláar
slaufur, hnýtið utan um aðra með
grænu, hina með gulu. Hnýtið þá með
gula þræðinum yfir þá með græna
þræðinum. Klippið gulu endana frá,
þegar fast hefur verið hnýtt að, en
látið grænu endana fylgja. Síðast er
svo fjólunni hnýtt yfir samskeytin á
bandinu, sem pakkinn er annaðhvort
krossbundinn eða hornbundinn með.
2. Þessi slaufa er fallegust úr nokk-
uð breiðu bandi. Búið fyrst til hring
eins stóran og slaufan á að vera um-
máls. Vefjið ekki minna en sex hringi
upp eins og myndin sýnir. Því fleiri,
sem hringirnir eru, þess þéttari verð-
ur slaufan, og því stærri ummáls, sem
hringurinn er, því oftar verður að
vefja. Leggið nú hringinn saman, en
gætið þess að setja ekki brot í lykkj-
urnar. Leggið nú tvöfalt og klippið
af miðjunni eins og myndin sýnir.
Bindið yfir miðjuna. Dragið nú
innstu lykkjuna út úr og haldið á-
fram, þar til allar lykkjumar hafa
verið losaðar sundur. Nú á að vera
kominn vöndur eins og neðsta mynd-
in sýnir. Þá bindið þið hann fastan á
krossband pakkans, með mjóa þræð-
inum, sem heldur vendinum saman.
3. Vindið nokkra smáa hringi af
rauðu bandi. Gætið þess, þegar þið
klippið frá, að endinn sé um það bil
2 cm. fram yfir þann endann, sem
byrjað var á. Vefjið þar utan yfir
nokkra hringi af gulu eða gylltu bandi.
Hnýtið nú yfir með mjóum, rauðum
spotta og gætið þess, að allir endarn-
ir hnýtist með. Brjótið nú rúlluna
saman við þráðinn og svo langt, sem
rauði liturinn nær, svo að brot komi
í efri enda allra rauðu lykkjanna, en
gætið þess að gera ekki brot í þær
gulu.
4. Klippið marga jafnlanga enda af
stífum böndum, 15—20 cm., eftir því,
hvað stóran dúsk þið viljið búa til.
Bindið þar yfir miðju með mjóu
bandi og bindið fast á bandið á pakk-
anum. Strjúkið síðan milli hnífs og
þumalfingurs eftir hverjum enda.
Byrjið við miðju og dragið út til enda.
Þá rúllast endamir upp.
32