Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1955, Side 37

Samvinnan - 01.12.1955, Side 37
Kvennasíðan (Framh. af bls. 33) Nú getið þið mótað flest, sem ykk- ur clettur í hug. Skiptið því niður og litið hluta af því með matarlit. — Karlinn, sem myndin sýnir, er búinn til úr epli. Höfuðið er marcipankúla. Húfan er úr rauðu marcipan. Augu og nef eru kúrennur. Skeggið mandla. Handleggir og fætur er lakkriskon- fekt, stungið upp á tannstöngul. — Grísirnir eru úr marcipan. Rúllið út nokkuð þykka lengju. Formið höf- uðið þar af, togið upp eyru og búið til augu og nasaholur með hnífsoddi. Takið brennistein af 4 eldspýtum og stingið þeim í fyrir fætur og þekið þá með marcipan. Halinn er búinn til úr mjórri lengju af marcipan. Ur af- ganginum býr maður til litlar kúlur, sem svo er velt upp úr kakó eða smáttskornum, ristuðum möndlum eða engu, ef marcipanið er litað. Mjög gott er að taka steininn úr döðlu og láta marcipan inn í í staðinn. Dýfi maður döðlunni síðan ofan í brætt súkkulaði, þá er það úrvals konfekt. Bakaðar marcipankringlur. 250 gr. marcipan 75 gr. flórsykur 14 eggjahvíta. Þetta er allt látið í pott yfir vægan hita og hrært í stöðugt, þar til það hangir saman. Þá er það tekið upp og rúllað út í mjóar lengjur og gerðar úr þeim kringlur. Þær eru bakaðar ljósbrúnar við góðan hita. Fljótgert sœlgœti. 1. 100 gr. gráfíkjur 100 — apríkósur 100 — flórsyKur Zi dl. vatn 50 gr. kokosmjöl Apríkósurnar eru látnar liggja í bleyti í vatninu í sólarhring. Hellið heitu vatni yfir gráfíkjurnar og þurrkið síð- an. Þetta er malað í gegnum kjöt- kvörn. Því næst er flórsykrinum og kokosmjölinu blandað saman við. Búnar til litlar kúlur, sem svo er velt upp úr skrautsjrkri. 2. 1 bolli gráfíkjur eða apríkós- ur þurrkaðar % bolli hnetukjarnar 1 bolli cornflakes Þetta er allt malað gegnum kjötkvörn. 1 teskeið appelsínubörkur (rifinn) látinn í. Ollu blandað vel saman. Búnar til kúlur. Jólabakstur Ávaxtakaka. 18 gr. smjörlíki 185 — sykur 250 — hveiti 25 — rúsínur 25 — súkkat 50 — döðlur 1/4 dl. mjólk 2 egg '/4 tesk. lyftiduft 25 gr. kúrennur 25 — möndlur 25 — rauð kocktailber 25 — græn kocktailber Sykur og smjörlíki þeytt, þar til hvítt. Mjólk og eggjarauður látnar út í á- samt hveitinu, sem lyftiduftinu hefur verið blandað í. Gróftskornum ávöxt- um velt í hveiti og þeim bætt í. Síð- ast er stífþeyttum eggjahvítunum hrært í. Bakað í velsmurðu móti við jafnan hita í 1 !4 klst. Þegar kakan er köld, er hún þakin með glassúr úr 250 gr. af flórsykri og 2 eggjahvítum. Áður en glassúrinn er alveg harðn- aður má skreyta kökuna með rauð- um og grænurn berjum og súkkulaði- bitum. Þessi kaka geymist mjög vel. Jólakaka. 175 gr. smjörlíki 150 — sykur 3 egg 375 gr. hveiti 30 — rúsínur 30 — súkkat 114 dl. mjólk 4 tesk. lyftiduft Brúnkaka. 100 gr. smjörlíki 125 — sykur 1 egg 250 gr. hveiti 114 tesk. kanill 14 — kardemommur 2 — negull 3 — lyftiduft 114 dl. mjólk Tertubotnar. 100 gr. smjörlíki 3 egg 14 tesk. lyftiduft 125 gr. sykur 150 — hveiti Sykur og smjörlíki þeytt. Eggjunum hrært í. Síðast hveitinu með lyftiduft- inu. 3 botnar. Linsulagkaka. 250 gr. hveiti 60 — flórsykur 200 — smjörlíki 2 eggjarauður eða 1 egg Hveiti og smjörlíki nuddað saman. Flórsykri og eggi bætt í. Hnoðað létt. Bakað í 3 tertumótum. Botnarnir lagðir saman með ribsberjahlaupi og þeyttum rjóma. Piparhnetur. 125 gr. smjörlíki 14 dl. rjómi 14 tesk. kanill 14 — kardemommur 14 — sódaduft 125 gr. sykur 14 tesk. engifer 14 — pipar 14 — lyftiduft 250 gr. hveiti Smjör, sykur og rjómi er þeytt sam- an, þar til það er hvítt. Hveitið sigt- að með öllu kryddinu og lyftiduftinu. Því er blandað í og hnoðað. Búnar til litlar kúlur. Bakaðar í 5 mín. 37

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.