Samvinnan - 01.03.1958, Side 2
Útgefandi: Samband ísl.
samvinnufélaga.
Ritstjóri: Benedikt Gröndal.
Blaðamaður: Gísli Sigurðsson.
Ritstjórn og afgreiðsla í
Sambandshúsinu, Reykjavík.
Ritstjórnarsími: 17080.
Kemur út mánaðarlega.
Verð árgangsins kr. 90.00
Verð í lausasölu kr. 9.00
Prentsmiðjan Edda.
Efni:
Skattgreiðsla samvinnu-
félaga og einkareksturs bls. 3
Á slóðum Væringja í
Miklagarði. Eftir Guðna
Þórðarson ................ — 4
Vinirnir, gömul saga,
sem Jón Björnsson hef-
ur skráð ................ —• 7
Kjartan Sæmundsson,
kaupfélagsstj. hjá Kron — 8
Hörð samkeppni á ben-
zín- og olíumarkaði Sví-
þjóðar ................... — 10
Offjölgun mannkynsins
alheimsvandamál, en
mannfæð háir íslend-
ingum. Eftir Gunnar
Gunnarsson ............. — 11
Markmið hinnar and-
legu framvindu — bréf
frá Benedikt á Auðnum
til Sigurðar í Yztafelli — 12
75.000 tonn af sementi á
ári — grein um Sements-
verksmiðju ríkisins á
Akranesi ............... — 14
Wassili Smyslov, heims-
meistari í skák. Eftir
Svein Kristinsson .... — 18
Vaðlaklerkur, framhalds-
saga ................... — 21
Verðlaunaritgerð Kf.
Þingeyinga: — í dag
stígur þú, glókollur,
fyrstu sporin. Eftir Sig-
urjón Jónsson ..... — 27
M A R Z 1958
Lll. árgangur 3.
Nýr teiknari.
Glöggir menn munu veita því athygli,
að teikningarnar með framhaldssögunni
eru með öðru og ólíku handbragði en áð-
ur. Höfundur þeirra er Gunnar Gunnars-
son, listmálari,
sonur Gunnars
rithöfundar. —
Hann er fædd-
ur í Danmörku
1914 og hefur
teiknað og mál-
að frá blautu
barnsbeini.
Gunnai nam
listræn fræði í
Kaupmanna-
höfn og síðar í
Hollandi og
Frakklandi.Fjöl-
skyldan fluttist
til íslands 1939
og settist að á Skriðuklaustri eystra, en
fluttist síðan til Reykjavíkur 1949.
Gunnar settist að í Ási við Brúarland
í Mosfellssveit og þar vinnur hann að
list sinni.
Kvæntur er Gunnar Signýju Sveins-
dóttur frá Þykkvabæjarklaustri.
Jón Ólafsson 65 ára.
Vöxtur og viðgangur hinna ungu Sam-
vinnutrygginga stendur ekki hvað sízt í
sambandi við dugmikið starfslið. I fylk-
ingarbrjósti fyrir því liði stendur Jón
Ólafsson, framkvæmdastjóri Samvinnu-
trygginga og Andvöku. Jón hóf trygg-
ingastörf fyrir nær 30 árum, þegar hann
varð framkvæmdastjóri Andvöku 1929.
Það var norskt félag, en varð alíslenzkt
1950. Síðan 1. jan. 1955 hefur Jón auk
þess haft með höndum framkvæmda-
stjórn Samvinnutrygginga. Jón er þraut-
reyndur í öllu, sem að tryggingum lýtur,
farsæll í störfum og drengskaparmaður,
sem vill leysa hvers manns vandræði. r
sambandi við 65 ára afmælið bað Jón
Samvinnuna þess lengstra orða að fara
nú ekki að skrifa afmælisgrein um sig,
eða rekja ævisögu sína, en hinsvegar bað
hann þess, að blaðið færði alúðarþakkir
hans til starfsfólksins í Samvinnutrygg-
ingum og Andvöku, sem færði honum
fagra gjöf á afmælisdaginn: Silfurbakka
með eiginhandaráletrun allra, sem vinna
þar undir stjórn hans. Jón bað einnig
fyrir þakkir fyrir hlýjar kveðjur og
blómagjafir frá stjórnum félaganna.
Látinn samvinnumaður.
Fyrir skömmu var borinn til moldar
góður bóndi og samvinnumaður, Sigurð-
ur Jakobsson á Varmalæk í Borgarfirði.
Hann var ættaður þar úr héraði og
átti alla ævi heima
á Varmalæk. Þrátt
fyrir stutta skóla-
setu aflaði hann sér
haldgóðrar þekk-
ingar af góðri greind
og fróðleiksfýsn. —
Sigurður var ævin-
lega öruggur stuðn-
ingsmaður sam-
vinnufélagsskapar-
ins í héraðinu.Hann
var oddviti sveitar-
innar meiri hluta starfsævi sinnar og
rækti þau störf eins og önnur af stakri
alúð og skyldurækni.
Búnaðarþing í boði
Sambandsins.
Samband ísl. samvinnufélaga bauð
fulltrúum á búnaðarþingi til kaffi-
drykkju í samkomusal Sambandsins 7.
marz. Erlendur Einarsson forstjóri á-
varpaði þingfulltrúana og ræddi um
fjármál landbúnaðarins. Sýnd var kvik-
myndin „Gróður og grænar lendur", sem
fjallar um landbúnað víðsvegar um
heim. Formaður Búnaðarfélags íslands,
Þorsteinn Sigurðsson á Vatnsleysu,
þakkaði móttökur fyrir hönd Búnaðar-
þings og í því sambandi gerði hann að
umtalsefni þýðingu samvinnusamtak-
anna fyrir framfarir í sveitum landsins.
Gunnar
2 SAMVINNAN