Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1958, Síða 18

Samvinnan - 01.03.1958, Síða 18
Heimsmeistarinn a3 tafli. WASSILI SMYSLOV Eftir Svein Kristinsson Svo sem mönnum mun kunnugt, er Rússinn Wassili Smyslov núverandi heimsmeistari í skák, en þann titil vann hann af landa sínum, Botvinnik, á önd- verðu ári 1957. Ég mun hér fyrst víkja stuttlega að ævi- og afrekaferli Smyslovs, en gefa síðan lesendum kost á að skoða eina af skákum hins nýja heimsmeist- ara, þess sjöunda, er þann titil hefur borið. Smyslov fæddist í Moskvu í marz árið 1921 og verður því 37 ára á þessu ári. Faðir hans var verkfræðingur að at- vinnu, en einnig velþekktur skákmaður, og mjög ungur að árum lærði Smyslov mannganginn af föður sínum og tók frekari framförum undir handleiðslu hans. Aðeins 17 ára að aldri vann Smys- lov sér meistaratitil, og tveimur árum síðar varð hann þriðji á skákmeistara- móti Sovétríkjanna. Á hinu fræga „Sex- meistaramóti“, sem háð var árið eftir (1941), til úrslita um nafnbótina „Skák- meistari Sovétríkjanna“, náði hann einnig þriðja sæti, á eftir þeim Botvinn- ik og Keres. Fyrir þá frammistöðu ávann Smyslov sér titilinn „stórmeistari", að- eins tvítugur að aldri. Árið 1946 varð Smyslov enn þriðji á hinu merka skákþingi í Groningen í Hollandi, næstur þeim Euwe og Botvinn- ik. Eins og menn sjá af úrslitum þessara móta, var Smyslov á þessum árum kom- inn í röð fremstu skákmanna heims, þótt hann skorti ennþá fínustu brýnsluna til að ná sjálfum toþþinum. Árið 1948 var efnt til skákkepþni 5 stórmeistara, sem „að beztu manna yf- irsýn“ voru þá taldir þeir sterkustu í heiminum. Aljechin hafði látizt frá meistaratitlinum tveimur árum áður, og skyldi keppni þessi ákveða eftirmann hans. Áðurnefndir fimm stórmeistarar voru þeir Euwe, Botvinnik, Reshevsky, Keres og Smyslov. Þótt Smyslov væri þá þegar orðinn heimsfrægur stórmeistari, var það skoð- un margra, a.m.k. utan Rússlands, að hann væri „óhlutgengur öllum þeim“ miklu köppum, er þar voru saman komn- ir, líkt og Einar Þambarskelfir í Svoldar- orustu forðum. Raunin varð þó allt önn- ur. Smyslov náði þar sínum bezta ár- angri fram að þeim tíma og hlaut annað sætið, á eftir landa sínum Botvinnik, með 11 vinninga af 20. Hafði hann þann- ig náð þeim árangri aðeins 27 ára gam- all að vera talinn annar sterkasti skák- maður heims. Næstu fimm árin má ef til vill segja, að Smyslov hafi verið í nokkrum öldu- dal. Að vísu náði hann oft góðum árangri á skákmótum á þeim tíma, en þó tæp- lega þeim, sem mátt hefði vænta, miðað við fyrri orðstír hans. Það skyggði líka nokkuð á orðstír hans, að á þessum árum komust ýmsir fleiri rússneskir Spútnik- ar í hvirfilpunktinn og má þar fyrst frægan telja David Bronstein, svo og Bo- leslavsky, Geller, Taimanov og fleiri. Þannig varð Smyslov t. d. ekki fyrsti á- skorandi Botvinniks um heimstmeistara- titilinn, heldur landi hans Bronstein, sem gerði jafnt við Botvinnik í einvígi árið 1951. Árið 1953 tekur stjarna Smyslovs aft- ur að hækka, en þá vann hann frækileg- an sigur á skákþinginu í Zurich og fékk þarmeð rétt til að skora á Botvinnik. Það einvígi fór fram árið eftir og skildu keppendur jafnir svo sem kunnugt er, og hélt því Botvinnik titlinum. Ýmsir töldu, að þar með hefði Smys- lov misst af sínum strætisvagni og ein- hverjum öðrum mundi falla næsta tæki- færi í skaut. En Smyslov var ekki sömu skoðunar. Á kandídatamótinu í Hollandi árið 1956 vann hann annan frægan sig- ur og fékk því aftur áskorunarréttinn. Flestum mun svo í fersku minni það sem síðar gerðist. Einvígið fór fram á síðastliðnu ári og sigraði Smyslov eftir tuttugu og tveggja skáka viðureign með 12y2 vinning gegn 9V2. Náði hann þar með hæsta þrepinu í metorðastiga skák- listarinnar: heimsmeistaratign. Því má svo bæta við, að 4. marz í ár hófst þriðja einvígið milli þessara tveggja skákjöfra um heimsmeistaratitilinn. Verður vafalaust fylgzt með þeirri við- ureign af miklum spenningi um heim allan. Hvað skákstíl Smyslovs viðkemur, þá er hann svo fjölbreytilegur, að erfitt er að gera glögga grein fyrir honum í stuttu máli. Hann segist sjálfur hafa vantrú á algildum kennisetningum í skák og vera frábitinn allri kreddu og bókstafstrú hvað skák áhrærir. Þetta táknar að sjálf- sögðu ekki, að hann gangi í berhögg við ýmis þekkt og viðurkennd undirstöðuat- riði skákfræðinnar. Á skákstíl hans verða ekki greind mikil byltingarmerki og miklu síður en t. d. hjá Keres og Bron- stein. En með því að lýsa yfir andúð sinni á kreddu og bókstafstrú í skák á Smyslov við það, að fjölbreytni skákar- innar sé svo mikil, að jafnan verði að taka allar reglur með fyrirvara og meta glöggt allar aðstæður hverju sinni, áður en skákin er lögð á fræðilegar metaskál- ar. Tökum t. d. þá tiltrú, sem ýmsir skák- menn hafa á „biskupaparinu“, þ.e.a.s. tveimur biskupum, sem að jafnaði eru taldir t. d. tveimur riddurum eða ridd- ara og biskup fremri. Smyslov viður- kennir að sjálfsögðu, að í mörgum til- fellum séu yfirburðir biskupaparsins ó- véfengjanlegir, enda hefur hann sjálf- ur sýnt dæmi þess í mörgum skákum sín- um, en hinsvegar bendir hann á, að bæði biskupapör, riddarapör sem og annar liðsafli taflborðsins sé fyrst og seinast 18 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.