Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1958, Qupperneq 6

Samvinnan - 01.06.1958, Qupperneq 6
í þessu virðulega keri, sem líkist þvottabala, eru mormónar skírðir. Flestir Islendinganna settust að í Spánar- forksveit og þar hefur þeim verið reistur þessi minnisvarði. eystra. Loftslag er að vísu hlýtt í TJtah mikinn part ársins, en vetur oft kaldur og stundum snjóasamur í þrjá mánuði. Fyrsta árið lifðu mormónar ýmist á veiðifángi ellegar rótum þeirrar villijurt- ar sem þeir kalla sígólilju og hafa gert þjóðblóm sitt. Vistarverur höfðu þeir ekki aðrar fyrst í stað en grafa sér hol- ur í jörðina. En mormónar voru verk- sígjarnir menn og lætur þeim vel að segja frá því, að tveim klukkutímum eftir að Brigham Young kom í dalinn með frumherjunum sumarið 1848, hafi þeir tekið plóg sinn ofanaf handvagni og farið að erja. Síðan sáðu þeir fáeinum kartöflum. Vorið eftir sáðu þeir ögn af hveiti, en þá kom sveimur af eingisprettu og lagðist á kornið. Þeir fóru út með bar- efli á móti eingisprettunni en ekkert dugði. Leit nú út fyrir að þar væri upp- skera mormóna öll. Það var ískyggileg tíð, uns drottinn alsherjar var ákallað- ur, og var hann fljótur að bregða við einsog jafnan áður þegar mormónar áttu í hlut, og sendi máva utanaf sjó og átu þeir eingisprettuna, en uppskerunni var borgið. Síðan er mávurinn þjóðfugl i Saltsævardal. Brigham Young var mikill útsjónar- og forstandsmaður og hafði farsæla hönd. Hann átti tuttugu og eina konu í senn. Hjónabandsáhyggjur virðast ekki hafa dreift kröftum hans að marki né innan- hússerjur tafið hann frá stórræðum. Sam- kvæmt guðlegri opinberun við Jósep Smið þá voru mormónar hvattir fremur en lattir til fjölkvænis um 50 ára skeið, uns drottinn gerði mormónum nýa opin- berun árið 1890, þá var fjölkvænisgrein lögmálsins dregin út. Brigham bóndi lagði áætlun og gerði grundvöll að efna- hagskerfi nýlendunnar og hann mældi út fyrir borgum og bygðarlögum og dró upp stórhýsi. Þegar hann mældi út fvrir Saltsævarborg ákvað hann að göturnar í borginni skyldu vera nær 50 metrum á breidd og voru þá hvergi breiðari borg- arstræti í heimi. Sá kall var ekkert blá- vatn. Eftir hans fyrirsögn var reist á tilvonandi höfuðtorgi Saltsævarborgar Sáttmálsörkin mikla, eða Tabernaklið, samkunduhús mormóna; um svipað levti var hafin smíð höfuðmusteris þeiri-a við sama torg. Bæði þessi mannvirki Brig- hams Youngs eru meðal stórfeinglegustu minnismerkja amerískrar byggíngarlist- ar. Brigham Young var að vísu hvorki smiður né húsameistari, en hann var þeim mun meiri vinur drottins og það gerði gæfumuninn. Drottinn blés honum í brjóst þeirri vitrun að ef góður hljóð- burður ætti að nást í samkunduhúsinu, svo drottinn mætti verða þar lofaður sem vert er, þá skyldi salurinn reistur eftir sömu reglu og mannskjaftur innan- verður frá vörum og niðrí kok. Reis nú þar á torginu ein furðulegust byggíng í heimi. Húsið er kríngum 90 metra lángt, 50 metra breitt og vel 25 metrar undir ris. Það er reist úr sandsteini og tré- verki. Á þeirn árum sem það var smíð- að, kríngum 1860, lá mormónaborgin svo útafburt að þess var ekki kostur að kaupa nagla né annað málmkvns til smíðanna, og var tréverkinu haldið sam- an ýmist með nokkurskonar geirneglíngu ellegar nautshúðarþveingjum. Þetta hús hefur svo góðan hljóðburð að það skipar einstæðan sess meðal samkomuhúsa í veröldinni. Sé staðið utarvið dyr. er ann- ar maður stendur í hinum enda salarins og lætur títuprjón falla úr hendi sér á altarið, þá má heyra fallið innvirðulega. Þessi salur er nú á dögum einn frægast- ur hljómlistarsalur í Ameríku, og er sótst eftir að útvarpa þaðan hljómleikum yfir meginlandið. Mormónamusterið sem rís þar andspænis Sáttmálsörkinni á sinn sérstaka kapitula í sögu amerískrar hús- gerðarlistar, sem ekki verður rakið hér. Flest er með nokkrum hætti merkilegt í gerðum mormóna. Þeir lúta kirkjulegri hagstjóm sem naumast á sinn líka með vestrænum trúflokkum þegar kaþólsk kirkja er undanskilin. Obbinn af jarðar- gæðum er kirkjueign í Utah, auk þess er kirkjan frumhreyfill líkrar sem ólíkrar starfsemi og mikill atvinnurekandi. Hér er ekki ríkisauðvald heldur kirkjuauð- vald. Þegar ég ók með Bearnson bisk- upi þá benti hann oft á óvænta hluti og sagði, þetta á kirkjan. Það minti oft á Kannitferstan í þýzku sögunni. Hann benti uppum fjöll og hálsa þar sem var verið að byggja landhús í ríkismanna- stíl og sagði: þetta á kirkjan. Við kom- um inn í veitíngahús að kaupa okkur límonaði: þetta á kirkjan (bæði veitínga- hús og límonaðiverksmiðjuna). Undir fjallshlíð standa miklir járnbræðsluofn- ar: kirkjan enn. í miðri Saltsævarborg ökum við á bílastæði og borgum 25 sent: þetta bílastæði á kirkjan. Hve gott hafi verið undir bú í Utah verður ljóst af því að 25 árum eftir komu Brighams Youngs til landsins, þá starf- ar Eiríkur fyrrum bóndi á Brúnum að rúníngu fjár hjá enskum saltsjódals- bónda sem á 10.000 ær, auk annarrar peníngseignar. Óvíða sem maður kem- ur í Ameríku mætir auganu jafn gróin velsæld með algerðri fjarveru fátæktar- bæla, svo stundum er einsog maður væri kominn til Svíþjóðar. Gæti ég trúað því að þetta samfélag væri einna farsælleg- ast skipað allra amerískra bygða. Ekki 6 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.